Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Blaðsíða 27
Höfundur
Vigdís Þjóðbiarnardóttir:
VÖGGUVÍSUR FOSSINN MINN
Úti myrkrið andar milt og hljótt
yfir líður koldimm vetramótt.
Engin stjama í hæðum uppi hlær
himinn jörð með tárum sínum þvær.
Farðu að sofa litla ljúfan mín
liggðu kyrr og byrgðu augun þín
undurfagra engla sérðu þá
yfir svífa hvítum vængjum á.
Hlustaðu, þú heyrir ljúfan óm
hjartans kær þér hvísla þýðum róm.
Sofðu vært, þig vekur sól af blund
varir myrkrið aðeins litla stund.
Ég breiði um þig móðurfaðminn minn
myrkrið láttu ei heyra grátinn þinn.
í svefni gleymast sorgir dagsins skjótt
sofðu bam mitt þessa löngu nótt.
Aftur leggjast augun bláu þín
yndisfagurt bros á vörum skín.
Ég veit í draumi opnast útsýn þér
til alls sem fagurt, gott og hugljúft er.
Þig hefur vetur fært í fannaskrúða
falið þig undir sínum hvíta hjúp.
Ei laugast blóm í báru þinnar úða
þau blunda rótt við algleymisins djúp.
Frostrósir kaldar falla þér að hjarta
flúin er gleði, bundinn strengur hver.
Harpan er þögnuð, burtu er dísin bjarta
sem brosti sæl við ástarljóð frá þér.
Ég horfi löngum hrærð á fjötra þína
mitt hjarta skilur kvöl sem líður þú.
Því eitthvað bugar, bindur vængi mína
mitt bros er hjúpað vetrarkulda nú.
En foss minn kær þig vekur vor af blundi
vermandi sól þér réttir milda hönd.
Þá vökvarðu aftur blóm í ljúfum lundi
og ljóðar sæll um frelsi og horfin bönd.
Minn andi hljóður fagnar frelsi þínu
og finnur gleði við þinn ljúfa nið.
Og máske sól með lífsins ljósi sínu
mig leysi úr viðjum, gefi um eilífð frið.
Vigdís Þjóðbjarnardóttir.
Legg ég þig í litla rúmið þitt.
Ljóssins englum fel ég bamið mitt.
Bið þá vaka vöggu þinni hjá
vemda það sem dýrmætast ég á.
Um höfundinn:
Vigdís er nú á sjötugasta og níunda aldursári og býr nú í Reykjavík og hefur gert frá árinu 1956. Vinnu stundaði
hún til 76 ára aldurs. Hún er frá Neðra-Skarði í Leirársveit í Borgarfirði. Bjó lengi á Vestfjörðum og kenndi sig og
kennir enn við Grund í Reykhólasveit. Kvæði hennar sýna hvað ljóðlistin á víða listfenga unnendur og kann ég
henni bestu þakkir fyrir.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
27