Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.06.1989, Side 29
o o
ftvirkveiftmgar OrYrkia
“C7------------
bandalags fslaimds
Eftir að Öryrkjabandalag ís-
lands fékk lottóféð til umráða
þ.e. þau 40% ágóðans sem lög
mæla fyrir um, hefur vissulega
orðið mikil breyting á högum
bandalagsins.
Eins og öllum á að vera
kunnugt er skipting þess ijár,
sem Ö.B.Í. fær úr lottóinu sú að
Hússjóður Ö.B.Í. fær 80% og
Ö.B.Í. til sinnar félagsstarfsemi
og sinna félaga 20%.
í desemberhefti Fréttabréfs-
ins 1988 var glögglega gerð
grein fyrir því, hversu fjármun-
um Hússjóðs Ö.B.I. hefði þá
verið varið í ítarlegu yfirliti Odd
Ólafssonar formanns hús-
stjórnar.
Þar kom fram, svo ekki varð
um villst, að vel hefði fénu verið
varið og margur fengið lausn
síns mikla vanda. Hinu má svo
ekki gleyma hversu lengi hafði
verið beðið byrjar, hversu bið-
listar allir höfðu lengst á með-
an, og eins því, hversu margir
bætast á biðlista í mánuði
hveijum. Það var því að vonum
að spurt væri af framkvæmda-
stjóra bandalagsins í þriðja
tölublaði síðasta árs hvað væri
til ráða og þar spurði Ásgerður
Ingimarsdóttir beint og hrein-
skilið, að því hvort loka skyldi
biðlistum um hríð á meðan eitt-
hvað mætti saxast á það sem
fyrir er.
Þetta er svona einskonar
innskot, því ævinlega er hollt að
hafa það í huga, hver skipting
lottófjárins er og um leið hlýtur
sjálf fjárhagsáætlun Öryrkja-
bandalagsins að einkennast af
því að þar er aðeins ráðstafað
1/5 ágóðahlutans úr lottóinu.
Þessa er sér í lagi rétt að gæta
grannt fyrir félög Öryrkja-
bandalagsins, sem eðlilega
sækja á um styrki til sinna
ýmsu félagslegu verkefna, sem
á þeim brenna og þau verða sem
fyrst að fá úrlausn á.
Á hitt ber þá líka að líta, að ef
hvoru tveggja er tekið inn í
myndina félagastyrkirnir og
samstarfsverkefni Þroska-
hjálpar og Öryrkjabandalags-
ins svo og útgáfa Fréttabréfs,
styrkur til Tölvumiðstöðvar
fatlaðra og fleira sem á að koma
félögunum beint og óbeint til fé-
lagslegra nota s.s. erlend sam-
skipti þá er þar vel yfir 60% af
heildinni að ræða, enda tæp-
lega unnt að tala um bruðl hjá
Öiyrkjabandalaginu sjálfu með
sína eðlilegu, ijölþættu starf-
semi.
Hér á eftir fer yfirlit yfir
styrkveitingarnar í heild sinni
eins og þær voru samþykktar á
stjómarfundi 11. apríl 1989:
Styrkir til félaga:
Samband íslenskra berkla-
og brjóstholssjúklinga v/könn-
unar á félagslegum högum
þeirra er nutu endurhæfingar á
Reykjalundi 1987/88 kr.
300.000.
Heyrnarhjálp v/norræns
móts á íslandi sumarið 1989 kr.
250.000.
Foreldra- og styrktarfélag
heyrnardaufra til þess að tákn-
málssetja myndbönd kr.
200.000.
Blindrafélagið v/útgáfu á
sögu blindra og sjónskertra á
íslandi kr. 300.000.
sama v/sumarbúða blindra
og sjónskertra ungmenna á
Norðurlöndunum kr. 200.000.
Gigtarfélag íslands v/útgáfu
á fræðsluritum um gigtar-
sjúkdóma fyrir gigtsjúka kr.
800.000.
Félag heyrnarlausra v/út-
gáfu bókar um þróun heym-
leysingjakennslu á íslandi kr.
300.000.
sama v/eldhúss fyrir félags-
heimili kr. 100.000.
Styrktarfélag vangefinna v/
leikhópsins Perlunnar kr.
350.000.
sama v/sumardvalarstarf-
semi kr. 400.000.
Lauf v/afmælisátaks kr.
400.000.
Styrktarfélag vangefinna,
Styrktarfclag lamaðra og fatl-
aðra, Sjálfsbjörgog Þroskahjálp
v/foreldranámskeiðs kr.
100.000.
Geðhjálp - ferðakostnaður
v/norræns samstarfs kr.
50.000.
sama v/hópstarfs og nám-
skeiðshalds 250.000, v/sum-
arferðar á norrænt sumarmót
kr. 190.000.
sama til kynningarstarfa kr.
200.000.
Sjálfsbjörg til aðlögunar-
námskeiðs fyrir fatlaða kr.
280.000.
sama v/ráðstefnu um
heimaþjónustu kr. 250.000.
Samav/félagsmála- ogfönd-
umámsk. hjá Sjálfsbjörgu í
Neskaupstað 80.000.
Styrkir til annarra en
aðildarfélaga:
Sigrún Þórarinsdóttir,
þroskaþjálfi v/náms og starfs-
kynningar á vegum Twin Cities
Intemational USA kr. 100.000.
íþróttafélag fatlaðra v/sum-
arnámskeiða að Laugarvatni
kr. 150.000.
TryggviSigurðsson, sálfræð-
ingur, til rannsókna á sam-
skiptum foreldra og fatlaðra
barna á forskólaaldri með mis-
munandi fatlanir kr. 150.000.
Sævar Berg Guðbergsson.
félagsráðgjafi, til að vinna að
gerð könnunar/lýsingar á að-
stæðum og þjónustu fyrir börn
og ungmenni á Suðurlandi kr.
100.000.
Elfa Bergsteinsdóttir til
náms í táknmálstúlkun í Dan-
mörkju. Styrkurinn er bundinn
því skilyrði að hún starfi a.m.k.
eitt ár að málefnum heyrnar-
lausra á íslandi kr. 350.000.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
29