Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.12.1990, Blaðsíða 9
MATUR ER MANNSINS MEGIN
Jólamatseöill fyrir fjóra
ÝSUMÚS MEÐ KOKKTEILSÓSU
Þennan rétt er gott að eiga yfir jólin.
Fyrstu sneiðamar eru hafðar í forrétt
og afgangurinn geymist svo
auðveldlega í nokkra daga í góðum
kæli og er tilvalinn smáréttur.
400 g ýsa, roðdregin og beinlaus
1314 tsk. salt
1 msk. kartöflumjöl
4 dl rjómi eða rjómabland
Tætið fiskinn fínt í rafmagnsblandara
eða hakkið hann tvisvar í hakkavél.
Blandið salti, kartöflumjöli og rjóma
eða rjómablandi saman við og hrærið
vel. Smyrjið stórt hringlaga kökumót
(með túðu í miðjunni) og jafnið farsinu
í mótið. Smyrjið örk af álpappír og
leggið yfir fatið. Bakið deigið í 175—
200° C heitum ofni í 25 mín. Látið
mesta hitann rjúka úr hringnum áður
en hann er settur á disk. Breiðið plast
yfir hringinn og geymið hann í kæli
fram aðframreiðslu. Beriðýsumúsina
fram með kokkteilsósunni. Ef vill má
fylla hringinn í miðjunni með rækjum.
Kokkteilsósa
150 ml sýrður rjómi
2— 3 kúfaðar msk majones (gott er að
nota kólesteróllaust Hellman's
majones)
3— 4 msk tómatsósa úrflösku
2 tsk. sœtt sinnep
pipar eftir smekk
Blandið öllu saman í skál og kælið.
SVÍNAKÓTILETTUR
MEÐ
RJÓMASVEPPASÓSU
f 4
Fjöldi svínakótilettanna fer að
sjálfsögðu eftir því hversu mikið þið
viljið borða og hversu stórar
kótilettumar eru. Hér er reiknað með
einni vænni kótilettu á mann, enda er
sósan saðsöm.
4 vœnar svínakótilettur
4 msk. hveiti, blandað með 1 tsk. af
Umsjón:
íris Erlingsdóttir
salti og 7/2 tsk. afpipar
2 msk. smjör eða smjörlíki til
steikingar
Rjóma-sveppasósa
50 g smjör
100—150 g nýir sveppir, skolaðir vel.
þerraðir og skornir í sneiðar
5 dl vatn
1 svínakjötsteningur og 1
grœnmetisteningur (langbest er að
nota teninga frá Knorr eða Maggi. 1
teningur þarf21/2 dl afvatni)
1—2 tsk. sterkt sinnep, helst Dijon
sinnep
sósujafnari, sósulitur
Snyrtið kótilettumar og veltið þeim
upp úr hveitiblöndunni. Bræðið
smjörið eða smjörlíkið á djúpri pönnu
eða í víðum potti og steikið yfir
meðalháum hita í 3—4 mín. á hvorri
hlið eða þar til þær eru fallega
brúnaðar. Færið kótiletturnar á fat og
breiðið álpappír yfir þær.
Lagið sósuna. Hellið feitinni úr
pönnunni eða pottinum sem
kótilettumar voru steiktar í, en þvoið
ekki. Bræðið smjörið á pönnunni eða
pottinum yfir meðalháum hita. Steikið
sveppina í smjörinu þar til þeir eru
fallega brúnaðir. Sveppirnir drekka
mikið í sig svo það getur þurft að bæta
við þá smjöri. (Þeir sem vilja gæta sín
á kólesteróli bæta bara vatni saman
við). Hellið vatninu yfir sveppina og
setjið teningana út í. Látið suðuna
koma upp, lækkið hitann og setjið lok
á pottinn og látið sjóða í 10—15 mín.
Bætið rjómanum og sinnepinu saman
við og látið sjóða í 2 mín. Þykkið
sósuna með sósujafnara eftir smekk
og litið með sósulit ef þurfa þykir.
Setjið svínakótilettumar út í sósuna
og látið þær krauma í henni í 6—8
mín. Gott er að bera kótilettumar fram
með soðnum hrísgrjónum og t.d.
maísbaunum og spergilkáli.
MARENGS-
KARAMELLUTERTA
Þessi terta er „meiriháttar"!
3 egg
1 bolli sykur (notið bollamál)
1 bolli saxaðar salthnetur
1 bolli mulið kornfleks
100 g smátt saxað suðusúkkulaði
1 tsk. lyftiduft
Karamellukrem
2 dl rjómi
120 g sykur
2 msk. síróp
30 g smjör
2112 dl rjómi, þeyttur
Hitið ofninn í 175° C. Stífþeytið egg
og sykur í skál. Blandið öllu öðru
saman í annarri skál og hrærið því svo
varlega saman við eggja- og
sykurblönduna. Smyrjið stórttertumót
(24—25 cm í þvermál) hellið deiginu
úr skálinni, takið hana úr mótinu og
látið hana kólna að mestu á kökurist.
Setjið botninn í plast og lagið kremið.
Setjið rjóma, sykur, síróp og smjör í
pott og látið krauma í 45 mín. Kælið
kremið. Hellið köldu kreminu yfir
tertuna. Setjið þeyttan rjómann yfir
kökuna og rífið súkkulaði yfir. Berið
fram strax.
Bestu óskir um gleðileg jól og farsælt
komandi ár.
Henni Iris er af heilum hug þakkað hennar
ágœta framlag til Fréttabréfsins. Hlýhug
hennarmunuallir lesendurmetavirkilega
vel.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
9