Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Page 10
Dagvist Sjálfsbjargar
- dýrmæt mörgum
Gengið við hjá Guðmundi
s
hlýjum júnídegi á liðnu vori
var haldin sýning í Dagvist
Sjálfsbjargar á munum þeirra
sem þar höfðu átt góða vist og kenndi
þarmargvíslegragrasa. Greinilegt var
að ákveðin fjöl-
breytni var í fyr-
irrúmi höfð og
mátti þarna sjá
hina margbreyti-
legustu muni,
púða, slæður,
myndir, útsaum,
klukkur, málverk,
leirmuni, smíðis-
gripi og er þá fátt
eitt talið.
Ritstjóri leit þarna inn og hreifst
sannarlega af handverki snjöllu og af
því hann er vel kunnugur ýmsum
alvarlegum annmörkum sem dagvist-
arfólk býr við og ættu að hindra það
nokkuð í gerð slíkra listmuna var
honum enn ljósara en ella hver alúð
og vandvirkni nákvæmninnar hafði
verið lögð hér að. Sýningin var ein-
faldlega mikið augnayndi og bar sýn-
endum fallegt vitni. Eins og menn
vita sem lesa þetta blað urðu forstöðu-
mannaskipti á síðasta ári hjá Dagvist
Sjálfsbjargar, Steinunn Finnboga-
dóttir lét þar af sinni styrku stjórn til
margra ára, en við tók
Guðmundur Magnússon
og hefur vel famast. Guð-
mundur leit hér inn í fram-
haldi af sýningunni góðu
og ritstjóri ræddi við hann
yfir rjúkandi tebolla og
vínarbrauði.
Guðmundur segist hafa
verið ráðinn frá 1. feb.
1996 en hafið störf sem
forstöðumaður 1. mars,
eina viku hafi þau Stein-
unn og hann verið bæði,
honum til aðlögunar.
Á starfið er því komin
nokkur reynsla og Guð-
mundur er ánægður með
hana og það veit ritstjóri
vel að gestir dagvistar eru ánægðir
með hann.
Hvað um rekstur dagvistar -
hvaðan kemur fjármagnið -
afl þeirra hluta sem gera skal?
Dagvist Sjálfsbjargar er í raun sem
ein deild Vinnu- og dvalarheimilis
Sjálfsbjargar, stjórn heimilisins er um
leið stjórn dagvistar, framkvæmda-
stjórinn, Tryggvi Friðjónsson æðsti
yfirmaður dagvistar.
Eins og þú veist væntanlega er
Sjálfsbjargarheimilið í einum pakka
á fjárlögum, er sem sagt á föstum
fjárlögum, en áður á daggjöldum og
þá voru sérdaggjöld fyrir dagvist. Það
má því segja nú að Þórdís skrifstofu-
stjóri hafi tögl og hagldir hvað varðar
fjármálalegan þátt rekstrarins.
Leyfi til dagvistar eru bundin
tölunni 30 og þá í heilsdagsvist og því
eru þarna alltaf mun fleiri innritaðir í
einu, allt að 70. Sannleikurinn auðvit-
að sá að Vinnu- og dvalarheimilinu
hefur verið og er naumt skammtað fé
eins og fleirum á undangengnum og
viðvarandi samdráttartímum.
Hverjir sækja dagvist heim?
Það er nú sem betur fer hvergi
nærri einsleitur eða einlitur hópur.
Þegar ég kom hér til starfa setti ég mér
það mark að ná meir og betur til yngra
fólksins, hreyfihamlaðs fólks þó fyrst
og fremst. Staðreyndin er nefnilega
sú að aldraðir hafa bæði meiri og fleiri
möguleika til dagvistar, þó eflaust sé
þar ekki nóg að gert. Fatlaðir hafa í
fá hús að venda hvað dagvist varðar.
Hreyfihamlaðir hvergi nema í dagvist
MS félagsins sem meir er byggð upp
fyrir beina sjúkraþjálfun, og eðlilega
byggð upp í kringum MS sjúklinga
og Parkisonsfólk þá, sinnir því öllu
mjög vel, en fullnægir hvergi nærri
félagslegri þörf hreyfihamlaðra fyrir
dagvist.
Sannleikurinn er sá að ungt fólk
sem hyggur á dagvist og kemur svo
þar sem eingöngu er eldra fólk, það
fælir nokkuð frá og er fráhrindandi,
því líkur sækir líkan heim. Ég ákvað
því fljótt að vinna að opnun með
skipulögðum hætti fyrir yngra fólk og
hef unnið markvisst að því.
Og hvernig hefur gengið
og hvað gerst?
Dagvistin hefur verið opnuð fyrir
hópa þar sem aðaláherslan er lögð á
sjálfstyrkingu. Þetta er tilraunaverk-
efni þar sem ætlunin er að taka inn
þrjá hópa og er unnið með styrk frá
Reykjavíkurborg, en nú
styttist einmitt í það að
málefni fatlaðra fari al-
farið yfir til sveitar-
félaganna. Inn í þetta
samhengi má ég til með
að skjóta því að Vinnu-
og dvalarheimili Sjálfs-
bjargar hefur sótt það
allfast að færast yfir til
félagsmálaráðuneytis frá
heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneyti, en alltaf
fengið neitun, þar til nú,
en þá verður líka aðeins
eitt ár í flutninginn til
sveitarfélaganna.
Segðu mér svo
meira af þessum
10