Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Side 44
arfélags vangefinna kemur fram að á
tæplega 40 ára ferli félagsins hafa
formenn þess aðeins verið þrír og þar
af einn í 18 ár og annar í 17.
Maí blað SÍBS frétta inniheldur
ýmsan mætan fróðleik undir
styrkri stjóm Sigurjóns Jóhannssonar
en á ábyrgð Hauks Þórðarsonar
formanns SÍBS.
I happdrætti SIBS eru mánaðarlega
dregnir út listmunir sem vakið hafa
verðskuldaða athygli. Viðtal er við
fulltrúa Handverks Guðrúnu Hamele
Henttinen og Eyjólf Pálsson sem hafa
séð SÍBS fyrir þessum fögru verkum.
Guðrún vill að upp rísi hér öflugur
handverksskóli. Þorsteinn Blöndal
berkalyfirlæknir segir í glöggri grein
frá samstarfi Eystrasaltslanda og
Norðurlanda gegn berklum.
Þar kemur m.a. fram að í Litháen
er hreint neyðarástand í berklamálum,
sem rakið verður beint til andfélags-
legrar hegðunar.
Berklavarnaráætlun þarf til að
koma með vel skipulögðum mark-
miðum og starfi að þeim. Hann sér
fyrir sér framhald í 3ja - 5 ára verk-
efni. Fyrsta brúðarparið á Reykja-
lundi rifjar upp gamlan tíma: Anna
Víglundsdóttir og Hjálmar Stefánsson
heita þau og voru bæði með berkla.
Fengu fyrst tveggja manna herbergi í
húsi númer fimm á Reykjalundi.
Hjálmar er smiður og Anna ganga-
vörður. Anna segir: “Ef maður fær
ekki heilsuna á Reykjalundi, þá fær
maður hana hvergi’’. Birtar eru helstu
tillögur samþykktar á þingi SIBS í
okt. 1996 m.a. um upplýsinga- og
þjónustumiðstöð SIBS, ráðningu
félagsráðgjafa í hlutastarf, varðstöðu
um velferðarkerfið, sjúklingalög,
nánara samstarf sjúklingasamtaka og
stuðning við frjómælingar.
Björn Magnússon lungnasérfræð-
ingur skrifar um aðgerðir á lungna-
bólgusjúklingum þar sem hluti lungna
er fjarlægður. Gerðar á átta sjúkling-
um, en þessar aðgerðir henta mjög
fáum sjúklingum. Björnbendiráfor-
varnir - hættið að reykja! Og er ráð-
legging hans dálítið öfug við vísuna
gömlu frá 1912 - auglýsingu um
tóbakið sem þarna birtist og er svona:
Reyktu, tyggðu, taktu nef í
tóbakið með sældarþef í
svo að þig ei komi kvef í
kauptu tóbakið hjá Leví.
Og mætti allt eins kalla þetta
öfugmælavísu.
Velferð málgagn LHS er einnig
undir ágætri stjórn Sigurjóns
Jóhannssonar. Þar er greint frá enn
einu nýju skrefi í hjartaskurðlækn-
ingum, sem bæði tekur styttri tíma og
er ódýrari. Þetta er hjartaskurðaðgerð
með brjóstholsspeglun, var fram-
kvæmdafBjarnaTorfasyni. Tilþessa
þarf blóðflæðimæli sem LHS ætlar að
styðja kaup á.
Opnaðu hjartað, heitir leiðari for-
manns Gísla J. Eyland sem fagnar HL
stöðvum víðs vegar um land, annarri
stöðu hjartalæknis við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri, landssöfnun
Neistans og framförum í læknavís-
indum. Vitnar í Gunnar Dal sem segir
m.a.:
Opnaðu hjartað
og eðli þitt
og opnaðu sálu þína.
Jón Þór Jóhannsson form. Félags
hjartasjúklinga í Reykjavík segir í
skýrslu frá félaginu að þar séu nú
1700 manns, hafi fjölgað um 100 á
liðnu starfsári. Segir rekstur HL
stöðvar í Reykjavík hafa vel gengið.
A þessum aðalfundi Reykjavíkur-
félagsins flutti Þórarinn Eldjám erindi
um limrukveðskap og þaðan birt þessi
limra föður hans, Kristjáns forseta:
Ljúft er að láta sig dreyma
og líða um heima og geima
en það er helvíti hart
að hugsa svo margt
að það hafist ekki undan að
gleyma.
Boðaður er bæklingur um starf og
stefnu LHS og þau atriði áréttuð í
blaðinu.
Ritstjóri segir frá samtökum
lungna- og hjartasjúklinga í Noregi,
en félagsmenn eru 52 þús. af 450 þús.
hjartasjúklingum og 150 þús. lungna-
sjúklingum. Samtökin reka hjarta-
spítala, iðnskóla fyrir 120 nemendur
og styðja baráttu við berkla í Afríku.
Langir biðlistar eru þar hjá hjarta-
sjúklingum.
Sömuleiðis er sagt frá starfi hjarta-
sjúklinga í Danmörku sem hafa sam-
tök upp á 70 þús. félaga. Langir bið-
listar eru þar einnig.
Mikill áróður fyrir heilsusam-
legri hegðan foreldra 25-45
ára sem ekki er sem skyldi, skokk-
klúbbar eru reknir svo og klúbbar um
góðan og lystugan mat.
Greint er frá aðalfundum félaga
hjartasjúklinga á Suðurlandi og Aust-
urlandi. Sigríður Pétursdóttir er for-
maður á Suðurlandi og Aðalsteinn
Valdimarsson á Austurlandi. Ovissa
mikil um HL stöðina í Hveragerði en
3 HL hópar hafa verið stofnaðir á
Suðurlandi. Austurlandsfélagið hefur
gefið Fjórðungssjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað góðar gjafir.
Jóhann Kárason er formaður Vest-
fjarðafélagsins. Þá ritar Magnús Þor-
grímsson greinina: Um veikindi og
sorg. Lífið er stöðugur öldugangur,
segir Magnús. Hann rifjar upp hin
ýmsu stig sorgarferils, þar sem er hægt
að festast hvar sem er. Hann ritar um
nauðsyn þess að losna úr viðjum van-
ans. Mikilvægt er að geta tengst
öðrum og Magnús skorar á fólk í lokin
að leyfa tilfinningunum að blómstra
og skapa fegurra líf um leið.
Sagt er frá myndbandi um krans-
æðasjúkdóma, en LHS styrkti gerð
44