Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Blaðsíða 19

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Blaðsíða 19
standa höllum fæti. Allir æskulýðs- leiðbeinendur, hvort sem þeir eru í fullu starfi, hlutastarfi eða sjálfboða- vinnu eiga möguleika á þátttöku í slíkum ferðum og þjálfun. Kynnis- og fræðsluferðir taka þrjá til tíu daga, en starfsþjálfun tekur lengri tíma (frá 5 upp í 25 daga). “Ungt fólk í Evrópu” hefur styrkt æskulýðsleiðtoga sem starfa með fötluðum í að minnsta kosti fjórar slíkar ferðir. Auk þessa er hægt að sækja um styrk til upplýsingamiðlunar til ungs fólks og til æskulýðsrannsókna. Framlög fást einnig til svokallaðra “Frumkvæðisverkefna ungmenna”, sem eru upphugsuð og framkvæmd af þeim sjálfum. Þau eru ekki hugsuð sem framtak einstaklinga, heldur sem samvinnuverkefni margra ungmenna. Viðfangsefnið er algjörlega háð því unga fólki sem tekur þátt og varðar beint þarfir þeirra og áhugamál. Sjálfboðaliðastarf á vegum “Ungs fólks í Evrópu” gefur einstaklingum kost á að gerast sjálfboðaliðar tímabundið (frá einum mánuði til eins árs) og taka þátt í verkefnum í öðrum Evrópuríkjum. Ekki eru veittir styrkir til: 1) Ungmennahátíða, eins og leik- listarhátíða eða íþróttamóta 2) Skemmtiferða 3) Ferða sem teljast innan ramma skólakerfisins 4) Ráðstefna samtaka eða stofnana 5) Ungmennaskipta á vegum æsku- lýðsfélaga stjórnmálaflokka 6) Ungmennaskipta sem skipulögð eru af fyrirtækjum 7) Einstaklingsferða í lauginni er ljómandi gaman. Sundlaug SLF vígð Hinn 29. maí sl. var vígð ný og glæsileg sundlaug hjá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra að Háaleitisbraut 13 í Reykjavík. Mikill fjöldi góðra gesta var viðstaddur athöfnina sem var bæði hátíðleg og skemmtileg. Formaður félagsins, Þórir Þorvarðarson bauð gesti velkomna til þessa tímamótaviðburðar. Hér væri um einkar ánægjulegan áfanga að ræða hjá félaginu, sem mörgum myndi að mætu gagni koma. Hann færði þeim Sigrúnu Benediktsdóttur framkvæmdastjóra félagsins og Jónínu Guðmundsdóttur forstöðukonu Æfingastöðvar SLF fagra blómvendi í þakkarskyni, en á þeim hefði framkvæmd þessi mest mætt. Sigrún framkvæmdastjóri tók svo næst til máls og lýsti verkinu, hverjir hefðu þar helst að komið og færði þeim öllum kærar þakkir fyrir afar vel unnin störf. Hún minnti einnig á hinar góðu gjafir til félagsins sem gert hefðu kleift að sundlaugin væri nú staðreynd. Kallaði hún til sín einn hinna góðu gefenda, Asbjörgu Jónsdóttur frá Akranesi og færði henni fagran blómvönd. Laugin er 6x12 1/2 m og mun framkvæmdin hafa kostað í kringum 60 millj. kr. Jónína forstöðukona greindi svo frá hinni dýrmætu aðstöðu sem þarna skapaðist, en þjálfun í vatni einn meginþátta í árangursríkri hreyfingu sem endurhæfingu. Jónína gaf svo Ingibjörgu Pálmadóttur heilbrigðisráðherra orðið. Hún flutti hlýjar hamingjuóskir frá ráðuneyti sínu og rrkisstjórn og afhenti síðan formanni SLF peningagjöf til kaupa á þjálfunarbúnaði. Verkefnið er á ábyrgð mennta- málaráðuneytisins, sem gerði samstarfssamning við íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur um rekstur landsskrifstofu. Sú skrifstofa er staðsett í Hinu Húsinu, Aðalstræti 2. Verkefnastjóri er Margrét Sverris- dóttir (sími 552 2220, fax 562 4341). Sækja þarf um á stöðluðu eyðublaði sem gildir fyrir hverja tegund verkefnis. Umsóknarfrestur getur breyst frá ári til árs og er mismunandi eftir flokkum. Allar frekari upp- lýsingar um umsóknir fást á lands- skrifstofunni. Arsæll Már Arnarsson Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra Séra Halldór Gröndal gerði nokkuð að umtalsefni kröpp kjör ýmissa minnihlutahópa í þjóðfélaginu s.s fatlaðra og kvað það brýnast alls að bæta þau kjör sem aðbúnað allan. Hann flutti síðan ritningarorð og bað framtíðarstarfi í þessari sundlaug blessunar guðs. Þá klipptu tvö börn á borðann til merkis um að sundlaugin væri opnuð og var þessum gjörningi vel fagnað. Þá stigu út í laugina 8 einstaklingar, fjögur börn sem þarna munu þjónustu njóta með hvert sinn þjálfunaraðila með sér. Var bæði sungið og synt og buslað bærilega og vakti mikinn fögnuð. Stúlknakór Snælandsskóla söng 3 lög af list góðri, en síðan flutti Helgi Seljan árnaðaróskir Öryrkjabandalags Islands með fágætlega góða framkvæmd. Á eftir þáðu gestir góðar veitingar í boði Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra. Fyrir réttu ári fórum við í sérstaka heimsókn til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra og frá henni ítarlega greint hér í Fréttabréfi. Þar var góð grein gerð fyrir því gróskumikla og gefandi starfi sem innt er af hendi hjá félaginu og nú enn komin hin besta viðbót, en þessi nýja laug leysir aðra og mun minni laug af hólmi. Öryrkjabandalag íslands óskar þessu ágæta aðildarfélagi sínu hjartanlega til hamingju með framtak gott og farsældamkt fyrir svo marga. H.S. FRÉTTABRÉF ÖRYRKJAB ANDALAGSINS 19

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.