Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Qupperneq 32

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Qupperneq 32
Hafdís Hannesdóttir, félagsráðgjafi: MISSTIAF ÚTIHÁTÍÐ MEÐ AUÐIEIR Af fundum í Kaupmannahöfn og Valmieri í Lettlandi Hér í fréttabréfinu hefur áður verið sagt frá samstarfi fatl- aðra kvenna á Norðurlönd- um, en það starf hófst upp úr kvenna- þingi sem haldið Hafdís Hannesdóttir. var í Osló 1988. Síðan efldist þetta starf og náði til fleiri þjóða en þeirra sem hófu leikinn. Sagt var frá undirbúningi fyrir kvennaþing í Turku í Finnlandi 1994, en þar lögð- um við til efni og tókum þátt í dag- skránni á marg- víslegan hátt. Nú í vor fórum við Ólöf Ríkarðs- dóttir að nýju til samráðsfundar norrænna kvenna sem haldinn var 7,- 9. mars í Kaupmannahöfn. Efni fundarins snerist að miklu leyti um það að fara yfir þá ávinninga sem urðu með þátttöku fatlaðra kvenna á kvennaþingi Sameinuðu þjóðanna í Peking í september 1995. Og svo fengum við mjög ítarlega yfirferð um uppbyggingu ýmissa af þeim stofnunum Sameinuðu þjóðanna sem sinna málum fatlaðs fólks, og/eða mannréttindamálum. Það er markmið allra að þeirra sé getið, ávinningarnir felast í því að komast á blað. Það tókst í inngangi eins kafla Pekingáætlunarinnar um verkefni til framtíðar og svo jafnframt í yfirlýsingu ráðstefnunnar. Þar er nefnt að konur standi frammi fyrir margvíslegum hindrunum á veginum til jafnréttis, m.a. vegna fötlunar. Ríkisstjórnir aðildarlandanna ætla að auka baráttuna fyrir auknum mann- réttindum öllum til handa, og þar er fötlun kvenna líka nefnd þ.e. í grein 32 í Beijing ávarpinu. Ut frá slíkum yfirlýsingum vinnum við síðan hvert í sínu landi að því að bæta stöðu þeirra sem við vinnum fyrir. Afnám allrar mismununar gegn konum. Á fundinum í Kaupmanna- höfn fengum við líka kynningu á samningi Sameinuðu þjóðanna um afnám allrar mismununar gegn kon- um, hann er frá 1979 og kallast CEDAW samningurinn, þegar heitið er stytt eins og nauðsyn ber til. Öll þátttökulöndin kynntu stöðu mála heimafyrir. Við sögðum frá því að CEDAW samningurinn hefði verið þýddur og væri nú verið að kynna hann á íslandi í tilefni af 90 ára afmæli Kvenréttindafélags Islands í janúar 1997. Jafnframt sögðum við frá því að Öryrkjabandalagið hefði gerst aðili að Mannréttindaskrifstofu Islands og ættum við þar samleið með öðrum frjálsum félagasamtökum sem vilja vinna að framgangi mannréttinda- mála. Og ekki var hægt að stilla sig um að segja frá því að Háskóli Islands væri með rannsóknarstofu í kvenna- fræðum. Við sögðumst mæta áhuga og skilningi þar sem við kynntum þetta samstarf, en okkur vantar góða og áhugasama liðsmenn til að fylgja eftir þeim tækifærum sem gefast til að vinna réttindamálum fatlaðra kvenna framgang. Svo var á dagskrá samstarf okkar við fatlaðar konur frá Eystrasalts- löndunum. Það var rætt í Kaup- mannahöfn, en fyrstu skrefin eru eldri eða frá 1994 þegar konum frá Eystra- saltslöndunum þrem var boðið til Turku í Finnlandi, en þar tóku þær þátt í öllum dagskrárliðum. Konur og karlar tala saman Nú í ágúst var haldið þing í Val- mieri í Lettlandi, þar sem konum og körlum var boðið til samræðna um jafnréttismál. Norræna ráðherra- nefndin og yfirvöld í Eystrasalts- ríkjunum, en þó einkum Mannrétt- indaskrifstofa Lettlands stóðu fyrir undirbúningnum. Alls voru þar yfir Inara og félagi aka Hafdísi Hannesdóttur og Tore Hygom hinni dönsku á markaði í Valmieri. 32

x

Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands
https://timarit.is/publication/1440

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.