Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Side 21
Heyrnar- og talmeinastöð íslands, en
hún hefur starfað frá árinu 1979.
Heimsóknir á sl. ári voru 13.300
og 19.000 aðgerðir framkvæmdar.
Nýir einstaklingar voru um 5000.
Fjárskortur hefur háð starfseminni
m.a. komið niður á þjónustu við
landsbyggðina. Sömuleiðis erbiðlisti
eftir heyrnartækjum allt of langur.
Hann kveður mjög vel fylgst með allri
nýrri tækni. Birgir As leggur áherslu
á að Heyrnar- og talmeinastöðin verði
áfram sjálfstæð stofnun. Hinn
heyrnarskerti hefur alltaf átt undir
högg að sækja, segir Birgir Ás í lokin.
Þrjár ungar konur: Kolbrún Hulda,
Anna Guðlaug og Margrét Gýgja
segja frá ferð í sumarbúðir í Dan-
mörku á ráðstefnu heyrnarskertra.
Saman voru komin 71 ungmenni frá
14 löndum. Þar var margt sér til gam-
ans gert og þær stöllur skora á ungt
heyrnarskert fólk hérlendis að halda
hópinn og hittast oftar.
Gylfi Baldursson heyrnar- og
talmeinafræðingur skrifar snöf-
urlega grein: Sjálfsköpuð heyrnar-
skerðing. Gylfi segir að með viðeig-
andi forvörnum mætti koma í veg
fyrir meira en 90% alls heyrnarskaða
af völdum hávaða.
Hann minnir á notkun heyrnarhlífa
og hlutverk Vinnueftirlits ríkisins í
hávaðavörnum. Endar svo á að segja
það hörmulegt ef inn í sjúkraskýrslur
þúsunda landsmanna þurfi að færa:
“Orsök heyrnarskerðingar: trassa-
skapur.”
Leysiefni geta valdið heyrnar-
skemmdum er fyrirsögn á þýddri
grein. Með rannsókn á tilraunadýrum
er þetta fullsannað. Þarna er mikil
hætta á ferðum fyrir þá sem umgang-
ast þurfa ákveðin leysiefni og fullrar
varúðar þörf. Hjörtþór Ágústsson
segir frá ígræddu heyrnartæki sínu.
Örsmáum rafskautum er komið fyrir
inni í kuðungi eyrans sem tengjast svo
hljóðnema og magnara, umbreytir svo
rödduðum hljóðum í rafboð sem
heyrnartaugin skilar upp í eyra, hluta
búnaðar er komið fyrir undir húð aftan
við eyra, sannkallaðir tæknigaldrar.
Hjörtþór hafði algerlega misst alla
heyrn en með tækinu ígrædda er hún
aftur komin og lætur hann afar vel af
sér. Að lokum er svo sagt frá NNS,
Samtökum heyrnarskertra á Norður-
löndum sem Heymarhjálp er aðili að
og er skemmst að minnast ágætra
þemadaga á vegum samtakanna
hérlendis haustið 1996. Afmælisritið
er hin ágætasta lesning og hamingju-
óskir hlýjar eru héðan sendar í tilefni
tímamótanna H.S.
SKYGGNST í SKÝRSLU VINJAR
Eins og lesendum þessa blaðs er
vel kunnugt þá rekur Rauði kross
íslands athvarf fyrir geðfatlaða að
Hverfisgötu 47 í Reykjavík, sem heitir
því hlýlega nafni Vin og hefur fengið
verðuga kynningu hér í blaðinu.
Vin er opin alla virka daga frá 9.30
- 16.30 og hefur nú verið rekið í
allnokkuð á fimmta ár. Skýrsla barst
hingað um starfið 1996. Meginmark-
miðin eru skilgreind svo:
1) að rjúfa félagslega einangrun geð-
fatlaðra á höfðuborgarsvæðinu,
2) að fyrirbyggja endurinnlagnir á
geðdeildir,
3) að skapa umhverfi þar sem gagn-
kvæm virðing og traust er ríkjandi
og tekið er tillit til hvers og eins.
Starfsmenn Vinjar eru 3 í fullu
starfi, 1 í hálfu starfi og starfsmaður
við ræstingar að auki. Gestir athvarfs-
ins koma á eigin forsendum, engrar
tilvísunar er þörf. Húsfundir eru öðru
hvoru með fullri þátttöku gesta. Heit-
ur matur eldaður í hádegi daglega,
einn gestur og einn starfsmaður skipt-
ast á um að elda. Fjölmargt er sér til
gamans gert, farið á sýningar, á
kaffihús, myndlist er gert hátt undir
höfði, farið í dagsferðir, garðrækt
stunduð o.s.frv. Vin átti góðan hlut
að samkomunni 10. október, alþjóð-
lega geðheilbrigðisdaginn, m.a. með
myndlistarsýningu gesta Vinjar.
Vinahópur er sjálfboðaliðshópur
frá URKÍ, að meðaltali 8 yfir árið,
skilaði 160 vinnustundum. Góð
tengsl eru við þá aðila er starfa að
málefnum geðfatlaðra, einkum þó
Geðhjálp. Gestakomur voru samtals
5909 á móti 5179 árið áður. Matar-
gestir voru 3054 á móti 2084 árið
áður. Að baki þessum tölum eru 300
einstaklingar, 30% konur, en voru
14% árið áður.
Mikil fjölgun gesta sannar mikil-
vægi Vinjar. Mikil fjölgun er á gesta-
komum yfir sumarið í beinu samhengi
við lokanir á geðdeildum. Það er gott
andrúmsloft í Vin og góður andi svífur
greinilega yfir vötnum þar. Megi
starfsemin blómgast og bera ávöxt
fyrir alla þá er þangað leita athvarfs -
athvarfs sem er svo ótalmörgum ofur-
dýrmætt.
H.S.
FRÉTTABRÉF ÖRYRKJABANDALAGSINS
21