Fréttabréf Öryrkjabandalags Íslands - 01.09.1997, Síða 36
Magnús Einarsson:
HUGARBURÐUR
Tileinkað bjartri minningu Þórðar Möller fv. yfirlæknis á Kleppi
Lítill drengur sat í fangi gamla
mannsins og þeir hlustuðu
saman á tónlist í herberginu.
Plötusafnið var mikið og antikhús-
gögnin ásamt gömlum bókum í viðar-
hillum áttu vel við
barokktónlistina.
Fyrir utan var
Kleppur og falleg
tré.
Gamli maður-
inn sagði sögur
sem spönnuðu all-
an heiminn og
drengurinn spurði
látlaust spurninga
sem vöktu ánægju
gamla mannsins svo það kurraði í
honum. Hann hafði djúpa fallega
rödd. Drengurinnstóðupptilaðsnúa
við plötu og spurði um leið hvort þeir
gætu flogið til Mars. Gamli maðurinn
tók til við að setja saman geimskutlu
í orðum og drengurinn bætti ýmsu við
og settist aftur íkjöltu hans. Þeir tlugu
um undirheima sem báðir voru sann-
færðir um að væru jafn lifandi þeim
og orðin sem streymdu fram í leik
þeirra.
“Komdu strákur”; hjarta stráksins
tók kipp og hann hljóp til mömmu
sinnar. “Ætlarðu ekki að kveðja með
kossi?” spurði mamma brosandi.
Drengurinn hljóp til þess gamla og
kyssti hann bless. Hann vissi að hugir
þeirra héldu áfram að starfa saman og
oft fannst honum eins og þeir hugsuðu
alltaf í takt; þrátt fyrir fjarlægðina.
Allan tímann á leiðinni heim velti
strákurinn fyrir sér geimskutl-
unni og foreldrar hans voru hissa á
honum. “Þetta er nú meira hugarflug-
ið”, tautaði mamma hans. Drengurinn
átti ekki svona herbergi heima hjá sér
og var alltaf úti að leika sér með félög-
um sínum. Hann vissi að hann og
gamli maðurinn voru þeir einu sem
skildu hugarburðinn og að kannski var
allt satt sem til var í huganum. Dreng-
urinn var glaður og hann vissi að
hugsun sem var lifandi og tautaði
“kúturinn" varkannski gamli maður-
inn þó hann væri langt í burtu.
Dagar og ár liðu en ferðum hans
að Kleppi til gamla mannsins fækkaði
og eitthvað hvísl og laumuspil fór
vaxandi, honum fór að líða illa. Þor-
lákur er veikur, hann fer bráðum að
deyja, sagði mamma hans honum.
Drengurinn hafði séð fyrir sér eitt-
hvert ský í huga gamla mannsins.
Hann vildi fara til hans.
Foreldrar hans fóru með hann.
Hann gekk til hans að rúminu og
gamli maðurinn brosti og tók báðum
höndum um útrétta hönd hans. “Þú
verður mikill maður”; sagði Þorlákur
en strákurinn gat ekkert sagt og þagði.
Þegar Þorlákur dó og var jarðsettur
sat drengurinn einn heima hjá sér og
hlustaði á Bach í stofunni og hugsaði
grátandi að nú ætti hann ekkert her-
bergi.
Sársaukinn var aldrei raunveruleg-
ur en sveið hægt og eiginlega var
einsog ekkert hefði skeð eða einsog
hver annar þröstur hefði dáið. Það
komu stundir þegar sársaukinn sveið
drenginn þegar hann var einn. En
alltaf lifði hugsunin. Hún gerði vart
við sig einsog úr öðrum heimi: “kút-
urinn” og það var svo mikil dýpt.
Drengurinn lifði lífinu einsog sofandi.
Hann hætti t.a.m. að vera góður í skóla
og brosið á andliti hans fölnaði með
árunum. Hann saknaði gamla manns-
ins og herbergisins. Kannski kæmi
hann einsog vinur að handan í nýtt
herbergiefhannhlustaðiáBach. Það
hvfldi alltaf sofandaháttur yfir drengn-
um rétt einsog skýið sem hann sá fyrir
sér yfir höfði þess gamla. Hann
glímdi við bækur, konur, tónlist þó
ekki væri nema til að vakna en þá var
einsog alltaf væri veggur sem mætti
honum; gamli maðurinn var dáinn.
Kannski er hann ekki alveg dáinn;
kannski vakir ára hans yfir mér, samt
er einsog ég hafi sofnað við dauða
hans? hugsaði hann en fannst samt
einsog þetta væri bæði skrítið og
svolítið óraunverulegt.
Ungi maðurinn fékk loks herbergi
með klassískri tónlist og honum leið
mun betur og drakk í sig tónlist og
hugsanirnar flugu hratt um heila hans.
Kannski væri hægt að ímynda sér
geimskutlu sem færi hraðar en allt
stjarnkerfið og þá mundi gamli mað-
urinn vakna. Hann vissi að þesskonar
hugarburður yrði dásamlegur.
Magnús Einarsson
er rithöfundur og býr
hér í Hátúnshúsunum.
Aðalfundur og kjararáðstefna
Aðalfundur Öryrkjabandalags íslands verður haldinn laugardaginn
18. okt. og að vanda munu þar mörg mál til umfjöllunar verða m.a.
skipulagsmál bandalagsins sem nú eru til sérstakrar skoðunar. Þá eru
kjaramál sem fyrr í brennidepli og tryggingamálin almennt í leiðinni, en
nú virðist enn einu sinni borin von að nokkuð gerist í endurskoðun
almannatryggingalaga svo bráðbrýn sem hún óneitanlega er.
En kjaramálin verða einnig krufin til mergjar á sérstakri ráðstefnu
sem haldin verður daginn fyrir aðalfund, föstudaginn 17.okt. þar sem
fengnir verða hinir fróðustu framsögumenn til að reifa og ræða kjaramálin
í víðastri merking. Aherslan á þessi mál nú er eðlileg, enda kjara- og
réttindabaráttan ævarandi viðfangsefni hjá örorkulífeyrisþegum sem
öðrum hópum samfélagsins.
Er vonandi að af þessum tveim samkomum bandalagsins verði árangur
sem erfiði.
H.S.
Magnús
Einarsson.
36