Fréttablaðið - 19.05.2020, Qupperneq 48
GRAFÍKLISTAMENN
VILJA ALLIR LÆRA
ÞAÐ NÝJASTA NÝTT Í GRAFÍK-
LISTINNI OG BÆTA VIÐ SÍNA
ÞEKKINGU.Afmælissýning félags-ins Íslensk graf ík stendur yfir í Nor-ræna húsinu. Þar eru sýnd verk eftir 46 félagsmenn, en félag-
ið fagnar hálfrar aldar afmæli sínu.
„Verkin eru flest unnin á þessu ári
eða síðasta. Verk hvers listamanns
geta verið eitt stakt verk eða upp
í fjögur til fimm ef um seríu er að
ræða. Það er mikill fjölbreytileiki
í sköpun listamannanna,“ segir
Elísabet Stefánsdóttir sem er for-
maður félagsins. „Á sérvegg eru
síðan valin verk eftir heiðursfélaga
sem eru átta talsins, listamenn sem
hafa að mati stjórnar skarað fram
úr í grafíklistinni og eða unnið vel
unnin störf fyrir félagið, þar á meðal
er Einar Hákonarson sem stofnaði
þetta félag fyrir 50 árum. Nýjasti
heiðursfélaginn er Magdalena Mar-
grét Kjartansdóttir.“
Verkin á sýningunni eru unnin
með ýmsum aðferðum grafíklist-
arinnar. „Í grafík eru notaðar afar
fjölbreyttar aðferðir til að vinna
verk, allt frá dúk- og tréristum upp
í mjög f lóknar aðferðir með tölvu-
tækni. Áður var silkiþrykkið og
tréristan það sem þekktast var en
það er komið mjög mikið af nýjum
aðferðum sem við í grafíkinni
lærum af grafíklistamönnum sem
koma að utan, vegna þess að lítil
sem engin grafík er kennd lengur
í myndlistarnámi á Íslandi,“ segir
Elísabet.
Nýjar aðferðir kenndar
Þegar blaðamaður leitar skýringa
á þessu segir Elísabet: „Þegar Lista-
háskólinn var stofnaður árið 1999
fór fyrsti árgangur nemenda hver
í sína deild, eins og málun, grafík,
fjöltækni og svo framvegis, en það
breyttist árið eftir þegar þeir nem-
endur sem þá voru teknir inn fóru
annaðhvort í myndlist eða hönnun
og sérþekkingin í grafíkinni ekki
í boði. Ég var svo lánsöm að vera í
þessum fyrsta árgangi, þannig að ég
Það óvænta í útkomunni
Félagið Íslensk grafík heldur afmælissýningu í Norræna húsinu. Verk eftir fjörutíu
og sex félagsmenn. Lítil sem engin grafík er kennd í myndlistarnámi hér á landi.
Það er mikill fjölbreytileiki í sköpun listamannanna, segir Elísabet Stefáns-
dóttir, formaður félagsins Íslensk grafík. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Myndir á sýningunni í Norræna húsinu.
fékk kennslu í grafík í Listaháskól-
anum og tel mig ríkari fyrir vikið.
Það var mikill heiður að læra þessa
aðferð af meisturum sem flestallir
eiga verk á sýningunni.“
Spurð hvort þessi staða leiði
ekki til þess að það fjari undan
grafíkinni sem eigi jafnvel á hættu
að deyja út segir Elísabet: „Við ótt-
umst það og þess vegna hefur félag-
ið verið að styrkja sig með því að fá
hingað til lands erlenda grafíklista-
menn sem kenna félagsmönnum
nýjar aðferðir sem við miðlum
áfram með námskeiðum í húsnæði
okkar í Hafnarhúsinu fyrir mynd-
listarmenn, kennara og almenning.
Grafíklistamenn vilja allir læra það
nýjasta nýtt í grafíklistinni og bæta
við sína þekkingu.“
Ævintýralegt ferli
Elísabet segir almenning hafa mik-
inn áhuga á grafík. „Þegar fólk fær
að komast í tól og tæki hjá okkur
þá er það óstöðvandi því grafík er
svo bráðsmitandi skemmtileg. Við
verðum með grafíksmiðjur fyrir
börn sem verða hluti af sýningunni
í tengslum við Barnamenningar-
hátíð í samvinnu með Norræna
húsinu. Börn hafa mjög gaman
af grafík, eins og þeir fullorðnu.
Grafíkferlið er ævintýralegt og
fólki finnst spennandi að upplifa
það óvænta í útkomunni.“
Á vef Borgarbókasafnsins má nú
lesa tólf splunkunýjar smásögur
eftir nýja höfunda. Smásögurnar
eru afrakstur ritlistarnámskeiðs-
ins Margt smátt, sem fram fór á rit-
smíðaverkstæðinu Skrifstofunni á
Borgarbókasafninu í Kringlunni.
Leiðbeinandi á námskeiðinu var
Sunna Dís Másdóttir, sem jafnframt
ritstýrði útgáfunni.
Sögurnar má lesa á vef Borgar-
bókasafnsins. Þar má jafnframt
nálgast sögurnar á raf bókarformi,
sem og í PDF-skjali til prentunar.
Þetta er í annað sinn sem Borgar-
bókasafnið gefur út sögur með
þessum hætti.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
Barnabókaverðlaun Reykjavíkur-
borgar eru veitt árlega. Að þessu
sinni hlýtur Margrét Tryggvadóttir
verðlaunin í f lokki frumsaminna
bóka fyrir bók sína Kjarval: málar-
inn sem fór sínar eigin leiðir.
Rán Flygenring fékk verðlaunin
í f lokki myndlýsinga í barna- og
ungmennabók fyrir bók sína Vig-
dís: bókin um fyrsta konuforsetann.
Hún fær verðlaunin þriðja árið í röð.
Í fyrra fékk hún verðlaunin fyrir
Söguna um Skarphéðin Dungal og
þar á undan fyrir Fugla.
Þórarinn Eldjárn fær verðlaunin
í f lokki þýddra bóka fyrir þýðingu
sína á Hver vill hugga krílið? eftir
Tove Jansson.
Fær verðlaun
þriðja sinn í röð
Rán Flygenring myndskreytir.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Nýjar smásögur
Bi
rt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
m
yn
d-
o
g
te
xt
ab
re
ng
.
GENGIÐ
FRYSTUM
Reykjavík
Krókhálsi 9
Sími: 590 2020
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
Sími: 420 3330
Opið
Virka daga 9–18
Laugardaga 12–16
Opið
Virka daga 12–17opel.is
Frábær ferðafélagi!
Opel Grandland X
Verð frá 3.990.000 kr. Takmarkað magn
Bílabúð Benna hækkar ekki verð
1 9 . M A Í 2 0 2 0 Þ R I Ð J U D A G U R24 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð