Víkurfréttir


Víkurfréttir - 04.06.2020, Síða 2

Víkurfréttir - 04.06.2020, Síða 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@vf.is Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson Hilmar Bragi Bárðarson Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Ársreikningur Reykjanesbæjar 2019 var samþykktur á bæjar- stjórnarfundi þriðjudaginn 2. júní, 2020 með tíu atkvæðum en einn bæjarfulltrúi sat hjá. Helstu niðurstöður bæjarsjóðs samkvæmt rekstrarreikningi eru að rekstrarniðurstaða er jákvæð um 5.313,2 milljónum króna. Hagn- aður fyrir fjármunatekjur og fjár- magnsgjöld nam 3.553,1 milljónum króna. Eigið fé bæjarsjóðs í árslok nam 9.693,3 milljónum króna og er eiginfjárhlutfallið 26,80%. Sam- kvæmt efnahagsreikningi nema veltufjármunir 8.391,6 milljónum króna, skammtímaskuldir 5.133 milljónum króna og veltufjárhlut- fall 1,635. Heildarskuldir og skuld- bindingar bæjarsjóðs nema 26.472,4 milljónum króna og er skuldahlutfall samkvæmt því 152,88%. Skuldavið- mið samkvæmt reglugerð 502/2012 er hins vegar 88,69%. Samkvæmt rekstrarreikningi sam- stæðu a og b hluta nam hagnaður af rekstri 5.553,4 milljónum króna. Hagnaður fyrir fjármunatekjur og fjármagnsgjöld nam 5.895,8 millj- ónum króna. Eigið fé nam um 24.844,1 milljónum króna og er eiginfjárhlutfallið 36,10%. Sam- kvæmt efnahagsreikningi nema veltufjármunir 11.572,3 milljónum króna, skammtímaskuldir 5.518,2 milljónum króna og veltufjárhlut- fall er 2,097. Heildarskuldir og skuld- bindingar nema 43.974,5 milljónum króna og er skuldahlutfall samkvæmt því 185,95%. Skuldaviðmið sam- kvæmt reglugerð 502/2012 er hins vegar 110,12%. Á árinu 2019 gerði Fagfjárfestinga- sjóðurinn ORK upp kröfu Reykja- nesbæjar á sjóðinn en bókfært verð kröfunnar var 1.333 milljónir króna við uppgjörið. Uppgjör kröfunnar nam 4.070,1 milljónum króna og er því færður hagnaður sem nemur 2.737,1 milljónum króna í rekstrar- reikning ársins. Í samkomulagi milli Reykjanesbæjar, Eignarhaldsfélags- ins Fasteignar hf. og kröfuhafa þess félags frá 12. febrúar 2018 er skjalfest að við uppgjör Fagfjárfestingasjóðs- ins ORK á kröfu Reykjanesbæjar verði þeim fjármunum ráðstafað til lækkunar á skuldum Eignarhalds- félagsins Fasteignar hf. við kröfu- hafa. Til að gangast við því keypti Reykjanesbær þær fasteignir í eigu félagsins sem ekki eru nýttar fyrir lögbundna starfsemi sveitarfélaga á 2.943,9 milljónir króna og gerði Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. upp skuldir við kröfuhafa sem hvíldu á þeim eignum. Ljóst er að heimsfaraldur af völdum COVID-19 veirunnar muni hafa veruleg áhrif á íslenskt efna- hagslíf og mun hafa mikli áhrif á fjár- hag Reykjanesbæjar. Búast má við því að tekjur bæjarins dragist saman vegna minni i umsvifa í atvinnulífinu og aukins atvinnuleysis og að útgjöld muni aukast vegna atvinnuskapandi verkefna og aukinnar fjárhagsað- stoðar. Erfitt er að meta endanleg áhrif á rekstur og efnahag bæjar- ins á meðan óvissa ríkir en ljóst er að árið 2020 verður sveitarfélaginu þungt og mun árið 2021 verða erfitt líka vegna atvinnuástands sem hefur áhrif á útsvarstekjur sveitarfélagsins sem munu dragast saman. Reykjanesbær er nú að hefja fjár- hagsáætlanagerð fyrir árið 2021 og fyrir þrjú ár eftir það eins og lög gera ráð fyrir og mun hún endurspegla það sem er að gerast á þessu ári í kjölfar faraldursins, segir í tilkynn- ingu frá bænum. Gott rekstrarár að baki hjá hjá Reykjanesbæ 2 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.