Víkurfréttir - 04.06.2020, Side 4
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, verður í Bakkalábandi Vísis-
fjölskyldunnar á tónleikum laugardaginn 6. júní á Bryggjunni í
Grindavík. Dagskráin hefst klukkan 15 og er aðgangur ókeypis.
Bakkalábandið er skipað Vísis-fjölskyldunni; Margréti, Pétri,
Kristínu og Svanhvíti Pálsbörnum, ásamt Ársæli Mássyni, Axel
Ómarssyni, Halldóri Lárussyni og engum öðrum en sóttvarna-
lækninum Þórólfi Guðnasyni.
Föstudagskvöldið 5. júní verða tónleikar þar sem hinir þjóðkunnu
tónlistarmenn Jógvan Hansen, Matthías Matthíasson og Vignir
Snær Vigfússon flytja helstu smelli hljómsveitarinnar The Eagles.
Landris hafið að nýju og
hundruð skjálfta við Grindavík
Jarðskjálfti af stærð M2,8
mældist aðfararnótt þriðju-
dags um 3 km vestsuðvestur
af Reykjanestá og fannst hann
í byggð. Laugardaginn 30. maí
jókst jarðskjálftavirkni í nágrenni
Grindavíkur og voru staðsettir
um 300 skjálftar þann dag.
Stærsti skjálftinn var 2,7 að
stærð. Einnig var skjálfti af
stærð 2,5 aðfaranótt 31. maí
sem fannst í Grindavík.
Heldur hafði dregið úr
skjálftavirkni á Reykjanesskaga
síðustu vikur en rúmlega 120
jarðskjálftar mældust þar í síð-
ustu viku (20.–27. maí).
Samkvæmt gögnum frá
26. maí eru vísbendingar um
að landris sé hafið að nýju við
Þorbjörn, þó hægt sé. Meiri
gögn þarf til að fullyrða frekar
um núverandi ferli og þær
hættur sem því fylgja, segir á
vef Veðurstofu Íslands.
Óvissustig vegna landriss er
enn í gildi hjá almannavarna-
deild Ríkislögreglustjóra.
Grindavíkurbær skilar um hálfum milljarði í hagnað
Rekstrarniðurstaða Grindavíkurbæjar var
jákvæð um 496 milljónir króna árið 2019
samkvæmt ársreikningi sveitarfélagsins.
Rekstrartekjur sveitarfélagsins námu
3.642 milljónum króna samkvæmt árs-
reikningi A- og B-hluta. Rekstrartekjur
A-hluta námu 3.312 milljónum króna á
meðan rekstrarniðurstaða A-hluta nam
443,8 milljónum króna.
„Það er gleðiefni að fjárhagsstaða bæjar-
ins skuli vera jafn sterk og raun ber vitni.
Samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð
fyrir 314 milljónum í rekstrarafgang en
niðurstaðan varð umtalsvert betri. Á
sama tíma skuldar bæjarfélagið engin
vaxtaberandi lán og handbært fé okkar
hækkaði um 63,7 milljónir á milli ára.
Góður rekstrarafgangur og sterk eigin-
fjárstaða er grundvöllur þess að hægt sé
að ráðast í viðamiklar
framkvæmdir og það
á svo sannarlega við
hér í Grindavík,“ segir
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grinda-
víkurbæjar, í tilkynningu.
Bæjarstjórn Grindavíkurbæjar sam-
þykkti reikninginn samhljóða á fundi
í lok apríl og var honum vísað til síðari
umræðu bæjarstjórnar í kjölfarið.
Veruleg óvissa ríkir um efnahagsleg
áhrif COVID-19-faraldursins segir í árs-
reikningnum og á sveitarfélagið von á því
að tekjur þess verði lægri árið 2020.
„Að okkur hafi tekist að fara fjárhags-
lega sterk inn í þetta ár er auðvitað kostur.
Íbúar okkar verða samt alltaf í fyrsta sæti
og munum við gera okkar besta til að
mæta þörfum þeirra. Grindavíkurbær
hefur skapað um 50 ný störf í sumar og
flestir í þeim hópi eru nemendur í fram-
haldsskólum eða háskólum. Auk þess
verða í vinnuskólanum um 140 nemendur
og að viðbættum verkstjórum og flokks-
stjórum verða hjá okkur meira en 200
sumarstarfsmenn sem er mikil aukning
frá fyrri árum,“ segir Fannar.
4 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár
Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.
Eagles-heiðurstónleikar og sóttvarnalæknir í sjómannabandi