Víkurfréttir - 04.06.2020, Page 16
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta Smelltu á myndskeiðið til að horfa og hlusta
Arnar Geir Halldórsson, nýstúdent, lék á selló Sarabande,
Courante og Gigue, kafla úr Svítu nr. 1 eftir Johann Sebastian Bach.
Alexander Fryderyk Grybos, nýstúdent, spilaði á píanó og
söng Rocket Man eftir Elton John, texti eftir Bernie Taupin.
Við athöfnina veitti skólameistari Katrínu Sigurðardóttur,
kennara, gullmerki Fjölbrautaskóla Suðurnesja
en hún hefur starfað við skólann í 25 ár.
Jónas Eydal Ármannsson, málmiðnakennari, og
íslenskukennararnir Kristrún Guðmundsdóttir og Þorsteinn
Þorsteinsson voru kvödd á útskriftinni en þau voru að hætta
störfum eftir að hafa kennt við skólann um árabil.
Júlía Mjöll Jensdóttir,
nýstúdent, flutti skemmtilegt
ávarp fyrir hönd brautskráðra.
Sjáðu það hér í myndskeiðinu.
16 // VÍKurFrÉttir á SuÐurnESjum Í 40 ár
Fimmtudagur 4. júní 2020 // 23. tbl. // 41. árg.