Spássían - 2013, Blaðsíða 4

Spássían - 2013, Blaðsíða 4
4 „ . . . lifir á hverjum fingri ljóð“ www.uppheimar.is TÍMI KALDRA MÁNA Magnús Sigurðsson ÞÚFNATAL Guðbrandur Siglaugsson SKULDUNAUTAR Steinunn G. Helgadóttir Löng leið að óvæntri lausn Eftir Ástu Gísladóttur Sólveig Pálsdóttir. Hinir réttlátu. JPV. 2013. Morð á golfvelli, sprengingar og verndun hvala eru í forgrunni nýrrar spennusögu eftir höfund Leikarans sem kom út síðasta sumar. Sólveig Pálsdóttir teflir fram lögregluteyminu sem hún kynnti þar til leiks og beinir nú athygli að lögreglukonunni Særós sem hafði aðeins verið í litlu hlutverki áður. Einhver hefur myrt veitingahúseigandann Hinrik Eggertsson sama morgun og sprenging verður í hvalveiðiskipi og mótmælendur hafa hlekkjað sig við veitingahús hans. Þetta þykja of miklar tilviljanir og lögreglan er sannfærð um að málin séu skyld. Það reynist þó þrautinni þyngra að finna út hvernig. Inn í söguna fléttast svo samband Særósar við hálfsystur sína, Anitu, sem gæti mögulega verið viðriðin málið.  Hinir réttlátu er sjálfstætt framhald Leikarans og þótt vísað sé til atburða sem þar gerðust er aldrei ljóstrað upp um málsatvik. Frásagnirnar eru áþekkar í uppbyggingu þar sem flakkað er á milli einkalífs lögreglufólksins og rannsóknarinnar sjálfrar. Skilin þar á milli reynast oft lítil enda meiri líkur en ekki á Íslandi að maður þekki mann. Framvindan er helst til hæg framan af en tekur kipp þegar þrír fjórðu hlutar eru búnir af bókinni og leikar æsast. Lausnin, þegar hún kemur loksins, kemur á óvart og liggur um leið í augum uppi þótt höfundur hefði mátt undirbyggja hana betur. Þannig eiga góðar spennusögur að vera: Framreiða fléttu sem er ekki fyrirsjáanleg en þannig úr garði gerð að athugull lesandi hefði átt að geta sér til um hana. En góð flétta er ekki alltaf nóg. Mikið ríður á að persónan Særós nái að halda athygli lesenda en því miður er hún ekki nógu geðþekk til að það takist að fullu. Hún er haldin fullkomnunaráráttu sem gerir hana hálf óþolandi – bæði í augum lesanda sem og persóna bókarinnar. Mikil áhersla er lögð á að lýsa útliti hennar og tískuáhuga. Hún er í sífellu að leiðrétta fólk og hefur litla þolinmæði gagnvart þeim sem henni þykir sér ekki samboðnir. Svona persónur eru auðvitað til og Sólveig dregur upp sannfærandi mynd af uppskrúfaðri og metnaðarfullri konu með líkamsræktarblæti. Vandamálið er að hún nær ekki að öðlast mikla samúð hjá lesendum. Samband hennar við hálfsysturina er brokkgengt og eitt af því fáa sem nær að ljá hana mannlegum blæ.  Bókin er sæmilegasta afþreying. Stíllinn er einfaldur og alþýðlegur en ef til vill full knappur. Helstu kostir Hinna réttlátu er glæpafléttan sem er haganlega sett saman og persónugallerí lögregluteymisins hefur alla burði til að verða fjölbreytt og áhugavert þegar bætist í bókaflokkinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.