Spássían - 2013, Blaðsíða 22

Spássían - 2013, Blaðsíða 22
22 Flaskan á eldhússkápnum í Fjarverunni á sér hliðstæðu í Suðurglugganum, en þar er það ginflaska, Gordon‘s Dry, sem „stendur óhreyfð uppi á eldhússkápnum“ (101). Sögumaðurinn í Suðurglugganum þorir þó „ekki að hætta alveg að drekka“ (116) og reynir að halda sér við með bjórþambi í þau fáu skipti sem hann bregður sér í bæinn, sem gefur til kynna þá hugmynd að áfengið sé í augum hans nokkurs konar taug við lífið sjálft, tenging sem er smám saman að rofna. Og það má ef til vill líka heimfæra upp á samband Ármanns við áfengið, sem ógnar heilsu hans en verður oft eins og eini drifkraftur atburðanna í lífi hans. Í tilviki Ármanns er áfengið því í senn lífsins vatn og dauðans og undir lokin er ljóst flaskan er honum of krefjandi, engu síður en Esther. Því er ekki að undra að uppgjöf hans gagnvart þeim helst í hendur, þar sem hann tekur upp flösku sem hefur verið „kysst af Esther“ (201): Hann leggur glasið síðan frá sér, tekur upp flöskuna og ber stútinn upp að vörunum, hægt og yfirvegað, án þess að láta renna úr honum. Þannig heldur hann flöskunni svolitla stund; svo hallar hann henni upp og tekur stóran sopa“ (206). Þessi sena er eitt af fáum merkjum um að lesa megi hefðbundinn, aristótelískan söguþráð úr verki Braga, en hér verða vissulega hvörf sem leiða til ákveðinna söguloka. Í ritdómi á Bókmenntavefnum segir úlfhildur Dagsdóttir reyndar að í Fjarverunni hafi Bragi Ólafsson „á vissan hátt fullkomnað þá margvíslegu höfnun atburðarásar sem einkenndi [fyrri bækur hans] Sendiherrann og Handritið“, þótt hún taki jafnframt réttilega fram að „[m]itt í þeirri fullkomnu ördeyðu atburða sem einkenna alla ‚framvindu‘ verksins er svo margt að gerast að það hálfa hefði verið nóg.“5 Og í raun má segja að höfnun hefðbundinnar atburðarásar einkenni að einhverju leyti öll þrjú verkin sem hér hafa verið til umfjöllunar. Í Fjarverunni felst sú höfnun einna helst í þeim frásagnarmáta að vísa með hugrenningatengslum óbeint til atburðarásar sem lesandi þarf svo sjálfur að púsla saman í höfði sér – og ef til vill munu engir tveir lesendur gera það á sama hátt. HVErFuLLEikiNN Er DAuFur kArL Hverfulleikinn er daufur karl með sölnaðan ritvélarborða, samkvæmt þeirri mynd sem hér hefur verið dregin upp, en Íslendingablokk, Suðurglugginn og Fjarveran hverfast allar í kringum tilraunir til að miðla veruleika okkar, varðveita hverfula tilveru okkar, gegnum frásögn. Í þeim er einnig sterk meðvitund um máttleysi slíkra tilrauna. Það endurspeglast ekki síst í þeirri staðreynd að í öllum verkunum má finna ókláraðar bækur, bækur sem ekki eru gefnar út og ekki lesnar. Í lokin standa reyndar eftir handrit eða hugmynd að handriti. En hvað í þeim stendur og hvað af þeim verður vitum við ekki. 1 „Orð um bækur“, RÚV , viðtal Jórunnar Sigurðardóttur við Pétur Gunnarsson, 20. janúar 2013, sótt 11. maí 2013 af http://www.ruv.is/ sarpurinn/ord-um-baekur/20012013-0. 2 Sama. 3 robert Messenger: „Typing Writers: An endangered species (but not yet extinct)“, The Canberra Times, 14. febrúar, 2009, 16-17. Sótt 31. mars 2013 af http:// site.xavier.edu/polt/typewriters/typingwriters.pdf. 4 Sama. 5 úlfhildur Dagsdóttir: „Fögnuður prófarkanna“, Bókmenntavefurinn, desember 2012, sótt 11. maí 2013 af http://bokmenntir.is/desktopdefault.aspx/ tabid-3409/5648_read-34237/. ÍSlendingablokk, Suðurglugginn og fjarveran hverfaSt allar Í kringum tilraunir til að miðla veruleika okkar, varðveita hverfula tilveru okkar, gegnum fráSögn. Í þeim er einnig Sterk meðvitund um máttleySi SlÍkra tilrauna. „ Samtök forstöðumanna almenningsbókasafna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.