Spássían - 2013, Blaðsíða 39

Spássían - 2013, Blaðsíða 39
39 áður verið gert á Íslandi af hálfu ríkisins. Viðhorfið hefur verið að stjórnvöld eigi ekki að hafa skoðun á menningu en auðvitað hafa stjórnvöld haft skoðun á menningu, sem hefur til að mynda birst í því hvernig þau hafa sett fé í hana og hvaða lög þau hafa sett. Mér hefur því alltaf fundist þetta falsrök; einhver afskiptaleysisstefna sem gildir ekki í raun og veru. Það að þingið hafi samþykkt að það sé eðlilegt að hafa hér stefnu í menningarmálum, eins og við erum með heilbrigðisstefnu og samgöngustefnu, færir okkur líka nær því viðhorfi að menningin sé eðlilegur hluti af samfélaginu.“ HVAð Er ÞJóðLEgT? Um þá ákvörðun nýrrar stjórnar, að færa málefni sem skilgreind eru sem „þjóðmenning“ frá menningarmálaráðuneytinu og undir forsætisráðuneytið, segir Katrín að sér finnist það sérkennileg tilhögun. „Því að ég tel raunar ekki hægt að skipta menningu upp eftir landamærum. Samkvæmt fréttum úr stjórnarráðinu snýst þessi tilfærsla um Minjastofnun, Þjóðminjasafnið og Árnastofnun en ekki til að mynda um Þjóðleikhúsið eða Listasafn Íslands. Ég spyr mig: Hver getur dregið slíka markalínu og skilgreint einhverja tiltekna menningu sem „þjóðlega“? Því með slíkri aðgreiningu er um leið verið að skilgreina aðra menningu sem eitthvað annað — þá væntanlega síður þjóðlega. Þannig að ég tel þessa aðgreiningu sérkennilega og mér finnst það ekki góð þróun ef stjórnvöld telja sig þess umkomin að fara í slíkar skilgreiningar. Þá finnst mér vægast sagt sérkennilegt að setja rannsóknastofnun á borð við Árnastofnun undir forsætisráðuneytið – slík stofnun á að vera í samstarfi við háskóla og vísindasamfélagið sem allt heyrir þá undir annað ráðuneyti. Mér finnst þetta nokkuð gamaldags sýn þar sem reynt er að lyfta ákveðnum hluta menningar en litið framhjá samspili hins þjóðlega og alþjóðlega og samspili rannsókna, nýsköpunar og varðveislu. En þetta á eftir að skýrast nánar vænti ég.“ VErði Ekki TEkið TiL BAkA Þegar Katrín er spurð að því hvað hún telji mikilvægast að leggja áherslu á í menningarmálum í nánustu framtíð segir hún það tvíþætt. „Ég myndi vilja sjá áframhaldandi fjárfestingu í sjóðum sem styðja við grasrótarstarfsemi En það er auðvitað áhyggjuefni að þegar farið var í fjárfestingar í sjóðum og gerð var fjárfestingaáætlun fyrir árin 2013-1015 töluðu einhverjir einstaklingar úr þeim flokkum sem nú taka við völdum um skapandi greinar sem gæluverkefni. En þetta snýst alls ekki um eitthvað dedú sem einhver ráðherra hefur gaman af. Ég myndi til dæmis ekki vilja sjá tekna til baka alla þá eflingu sem gert er ráð fyrir í fjárfestingaáætlun, þar sem við sjáum Kvikmyndasjóð tvöfaldaðan, bókmenntasjóður fékk innspýtingu, sem og tónlistarsjóður og leiklistarsjóður. Þá á að setja á laggirnar nýjan myndlistarsjóð, sem aldrei hefur verið, og nýjan hönnunarsjóð. Þetta er allt lykill að vaxandi uppgangi þessara greina. Og það er svo miklu auðveldara að kippa svoleiðis úr sambandi en heilli stofnun. En ég ætla bara að trúa því að það verði ekki gert. Mér heyrðust nú allir flokkar vera farnir að tala um hinar skapandi greinar fyrir kosningar. Hitt atriðið sem mér finnst mikilvægt er að nú verði líka horft til uppbyggingar stofnana. Eftir mikinn niðurskurð höfum við snúið vörn í sókn hvað sjóðina varðar, með því að fá þá fjármuni sem settir voru í fjárfestingar af hálfu ríkisins að hluta til þar inn, en stofnanir eru allar HVEr GETUr DrEGIð SLÍKA MArKALÍNU OG SKILGrEINT EINHVErJA TILTEKNA MENNINGU SEM „ÞJÓðLEGA“? ... MÉr FINNST ÞETTA NOKKUð GAMALDAGS SýN.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Spássían

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.