Spássían - 2013, Blaðsíða 53
53
YFIRLESIn
inn. Hof kemur þó ekki í staðinn
fyrir neitt sem fyrir var. Leikfélag
Akureyrar er til dæmis enn staðsett
í Samkomuhúsinu, sem er frábært
hús, en hins vegar opnast hér ný
tækifæri til að setja upp stærri
sýningar. Það er algjör bylting að
hafa 500 sæta sal fyrir tónleika
eða leiksýningar en fram að þessu
var Samkomuhúsið með stærsta
salinn í bænum, sem tekur 200
manns í sæti. Margir viðburðir
standa ekki undir sér með þann
sætafjölda. Við höfum líka verið
með myndlistarsýningar hér í
anddyrinu en þær koma ekki í
staðinn fyrir neitt í Listagilinu
heldur eru frekar til þess fallnar að
vekja athygli og áhuga á því starfi
sem þar er unnið. Munurinn er ef til
vill mestur fyrir Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands. Hún fær í fyrsta skipti
æfingaaðstöðu og tónleikaaðstöðu
sem er hugsuð sem slík. Hitt
hlutverk okkar eru verkefni sem
snúa að ferðaþjónustunni, og þá
aðallega því að skapa aðstöðu til
ráðstefnu- og fundarhalda og að
markaðssetja svæðið í tengslum við
slíka viðburði. Þau verkefni vinnum
við mikið með Akureyrarstofu,
hótelum og ferðaþjónustuaðilum
á svæðinu. Því þótt aðstaða á
borð við þá sem nú er til í Hofi sé
forsenda fyrir því að hægt sé að
halda hér ráðstefnur þurfa gestir
líka að hafa trú á öllu stoðkerfinu;
samgöngurnar þurfa að vera í lagi,
svo og gistiaðstaða. Þetta er því
átak sem margir á svæðinu þurfa að
koma að.“
MikiL gAgNrýNi
Líkt og Harpa var bygging
menningarhússins Hofs töluvert
gagnrýnd, sérstaklega eftir hrunið,
og Ingibjörg Ösp segir það hafa
verið ljóst frá upphafi húsið mætti
ekki verða „elítuhús“ ef skapast
ætti sátt um það. „Gagnrýnin var
mikil og skiptar skoðanir alveg
fram að opnun. Í raun gat maður
ekki gert annað en sýnt þessari
gagnrýni skilning. Þetta var erfiður
tími, í miðri kreppu og hruni, og
enginn vissi hvað yrði. Húsið er
að auki þannig staðsett að flestir
bæjarbúar keyrðu fram hjá því oft
á dag, voru að koma úr skólanum
eða leikskólanum þar sem verið
var að skerða þjónustu eða af
vinnustöðum þar sem var verið að
segja upp fólki. Það var því tilvalinn
blóraböggull. Auðvitað reyndum
við að upplýsa um það hvað við
ætluðum að gera en fyrst og fremst
ákváðum við bara að draga djúpt
andann og treysta því að eftir
opnun hússins gætum við sýnt fram
á hve mikilvægt það væri að þessi
aðstaða yrði til hérna. Það tel ég að
hafi tekist.“
HVErNig HúS?
„Þegar ég kem upphaflega
að verkefninu árið 2008 var
fjölmörgum spurningum enn
ósvarað. Hverjar eiga áherslurnar
að vera? Eiga allir að hafa aðgang
að húsinu? Á að vera listrænn
stjórnandi? Á að framleiða
viðburði? Vinnan sem fór í að svara
þeim var mjög gagnleg og ég held
að niðurstaðan hafi verið góð. Við
höfum að minnsta kosti ekki gert
neinar grundvallarbreytingar þótt
við séum auðvitað alltaf að lagfæra
eitthvað.“
Því til stuðnings nefnir Ingibjörg
Ösp að orðið hafi viðsnúningur
í viðhorfi fólks til hússins. „Það
gerðist nánast á einni nóttu, um
leið og húsið var opnað. Þegar
dagskráin var kynnt og fólk sá að
það ættu allir erindi hingað, að
hér myndu allir finna eitthvað við
sitt hæfi. Ég held að það hafi gert
gæfumuninn. Svo náðum við strax
inn fundum og ráðstefnum og þá
finnur fólk í atvinnurekstri, og þá
aðallega verslun og þjónustu, að
það skapast umferð hérna sem
skiptir miklu máli. Við létum gera
viðhorfskönnun til hússins í haust
og þá sögðust 82,4% aðspurðra
vera jákvæð gagnvart starfsemi
hússins hingað til og 87,2% sögðust
telja starfsemina mikilvæga
fyrir bæjarfélagið. En það hefur
SamStarf af ýmSu tagi hefur
reynSt lykilhugtak Í StarfSemi
hofS. Skemmtilegt dæmi eru
útvarpSþættirnir geStir út um allt.
einn Sunnudag Í mánuði eru margrét
blöndal og felix bergSSon af ráS
2 með tveggja tÍma Skemmtun og
tónleika Í beinni útSendingu, uppi á
Sviði og með geStum Í Sal.
„