Spássían - 2013, Blaðsíða 60
60
Eyja
Höfundur: Sveinbjörg Þórhallsdóttir og danshópurinn
Leikmynd og búningar: Eva Signý Berger og Mao
Tónlist: Lilja Björk runólfsdóttir
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson
Myndband: Máni M. Sigfússon
Eyja var sjónrænt verk. Það hófst á áhrifaríkri mynd þar
sem svarthærð stúlka í hvítri blússu með mittislinda
sat á sviðinu tengd við gólfið með risastóru marglitu
teppi. Í bakgrunni var þokukennt myndband af einhverju
sem líktist hrauntoppum séð ofan frá. Myndbandið og
dansinn áttu síðan eftir að skapa fleiri fallegar myndir á
sviðinu þar sem augað nam fegurð og kraft.
Dansverkið gladdi ekki aðeins augu áhorfenda
heldur hreyfði ekki síður við tilfinningum þeirra. Þar
unnu sviðsmynd, lýsing, tónlist, búningar og dans sterkt
saman rétt eins og í sýningum Ballet russes í byrjun
síðustu aldar þar sem dans var ekki hreyfingin ein og sér
heldur heildarupplifun listrænnar samvinnu.
rauði liturinn var áberandi í verkinu sem
skapaði tilfinningu fyrir vellandi hrauni og heitum
ástríðum. Ekki þó ástríðum á milli karls og konu í
hefðbundnum skilningi þess orðs heldur ástríðum
og ólgandi skapi kvenna sem takast á við lífsins
ólgusjó. Konurnar á sviðinu voru ekki ójarðneskar
dísir heldur konur af holdi og blóði sem takast þurftu
á við umhverfið sitt sem og eigið skap. Upphafsmynd
Útþensla
Eftir Sesselju G. Magnúsdóttur
NEMENDALEikHúSið/
SAMTíMADANSBrAuT, VOr 2013
útskriftarnemendur/dansarar: Anna Kolfinna
Kuran, Arna Sif Gunnarsdóttir, Arndís
Benediktsdóttir, Berglind ýr Karlsdóttir,
Elín Signý W. ragnarsdóttir, Elísabet Birta
Sveinsdóttir, Gígja Jónsdóttir, Guðrún Selma
Sigurjónsdóttir og Halla Þórðardóttir.
úTSKrIFTArSýNING NEMENDA
SAMTÍMADANSBrAUTAr LHÍ UNDIr MErKJUM
NEMENDALEIKHúSSINS Er GOTT DæMI
UM HVErSU BrEITT HUGTAK LISTDANS Er
OrðIð EN ÞAð VAr LENGI VEL EINUNGIS
TENGT VIð BALLETTINN. HUGMyNDIN
UM HVAð Er DANS HEFUr ÞANNIG FærST
ÓrAFJArLæGð FrÁ UPPrUNA SÍNUM
ÞAr SEM LISTDANS VAr HrEyFING VIð
TÓNLIST, SÖGUÞrÁðUr VAr ÓMISSANDI OG
PErSÓNUSKÖPUN MIKILVæG.
M
ynd: LHÍ
dansformsins