Spássían - 2013, Qupperneq 6

Spássían - 2013, Qupperneq 6
6 Þegar Spássían kíkti við í Mjólkurbúðinni í apríl vildi svo til að þar var að finna sýningu á verkum Dagrúnar sjálfrar og inn um gluggana sáust stór málverk, nærmyndir af snævi þöktum fjallshlíðum með mildum gulbrúnum tónum. „Ég kalla þessi málverk Fjöllótt. Þetta eru fjöllin mín,“ segir hún en hlær þegar hún er spurð hvort þetta séu þá fjöllin fyrir vestan. „Ég hef sagt fólki að það megi bara ráða hvaða fjöll þetta eru, en fyrirmyndin er auðvitað í og með þessi klettóttu, bröttu fjöll fyrir vestan sem toga svolítið. En ég er líka með myndir í vinnslu þar sem ég nota Vaðlaheiðina sem fyrirmynd.“ Galleríið er opið um helgar en fólk sem á leið hjá getur prófað að taka í hurðina á öðrum tímum, ef þeir sjá að ég er á staðnum. „Ég er ekki með neinar merkingar ennþá en er að vinna í því. Samt sem áður ratar fólk alltaf hingað til mín. Stundum er jafnvel hringt í mig því einhvern langar svo að kíkja inn. Og stundum gera hópar líka boð á undan sér og við mælum okkur mót utan vanalegs opnunartíma“ Dagrún vinnur oftast málverk en notar einnig aðra miðla, til dæmis skúlptúr og vídeó. Og í innra herbergi sýningarrýmisins, sem hún kallar kankvís setustofuna, hanga grafíklistaverk sem í ljós kemur að eru unnin úr mat. „Ég hef alltaf unnið mikið með mat. Þarna var ég á grafíkverkstæði í Noregi. Og mér var boðið í norskan rømmegrøt með pylsum og svo gat ég ekki klárað - skömm að segja frá því, ég fékk svo stóran skammt. Svo ég fór með afganginn inn á grafíkverkstæði og setti í pressuna. Maturinn býr sem sagt til formin. En á fyrstu myndinni rann maturinn reyndar allur til og klesstist!“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Spássían

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.