Spássían - 2013, Qupperneq 26
26
ástæða þess að ég ákvað að hlusta á palomu Faith var að hún var svo fyndin og
skrítin sem gestur í breska spurningaþættinum Never Mind the Buzzcocks. Ég ákvað
að prófa að hlusta á hana og varð eiginlega kjaftstopp. paloma er hreinlega einhver
flottasta söngkona sem ég hef heyrt í lengi og nýjasta platan hennar, Fall to Graces,
er skemmtilegt bland af diskói, poppi og sálartónlist með smá „retro“ tilfinningu.
Lögin eru áferðarfalleg og mynda flotta heildarmynd á plötunni án þess að allt hljómi
keimlíkt. textarnir eru heildstæðir en auðgleymanlegir. Það sem stendur upp úr er röddin og, já, hvílík rödd.
(paloma gerði líka ábreiðu af inXS smellinum „never tear us apart“ sem er alveg þess virði að hlusta á að minnsta
kosti einu sinni, ef ekki tvisvar.)
Ef þér líkar við Paloma Faith, hlustaðu þá á The Noisettes, Jessie Ware, Duffy og Emeli Sandé.
paloma Faith
Fall to Grace
Grímuleikritinu Hjartaspaðar í uppsetningu
Skýjasmiðjunnar og Gaflaraleikhússins. Leikritið
fjallar um ástarþríhyrning (eða jafnvel ferhyrning)
á elliheimili og er bæði hjartnæmt og hin besta
skemmtun. Einn helsti sjarmi leikritsins er
sú staðreynd að allir leikarar eru með stórar
heilgrímur og leika án orða. Þeir þurfa því að
treysta algjörlega á líkamstjáningu til að koma
tilfinningum og samskiptum til skila. Þetta er
krefjandi leikstíll sem nánast hrópar á skapandi
lausnir og það er skemmst frá því að segja að
leikstjóranum, Ágústu Skúladóttur, og leikurunum
tekst allt í senn; að glæða persónurnar miklu lífi,
skapa með þeim samlíðan, vekja spennu og kitla
hláturtaugarnar.
Sýningin var tilnefndi til Grímuverðlaunanna sem
sproti ársins og fyrir búninga, en Aldís Davíðsdóttir,
ein af leikhópnum, hannaði grímurnar sem eru afar
vel heppnaðar og í raun ótrúlega tjáningarríkar.
Volcano sirkushátíðinni sem Norræna húsið
stendur fyrir 4.-14.júlí og fer fram í Vatnsmýrinni
og í Borgarleikhúsinu þar sem Cirkus Cirkör sýnir
Wear it Like a Crown. Litríkt sirkusþorp mun rísa
í Vatnsmýrinni þar sem sjö sirkustjöldum verður
slegið upp, auk sölutjalda og veitingatjalda.
Norræna húsið lofar því að Sirkusþorpið muni
iða af lífi frá morgni til kvölds en sýningar
verða fyrir alla aldurshópa auk námskeiða
í sirkuslistum. Ein af sýningunum er Pluto
Crazy, en þar er vísað í franskt orðatiltæki,
plut tôt crazy, sem þýðir hreinlega að vera
algjörlega brjálaður. Í þessari sýningu vinnur
norski sirkushópurinn Cirkus Xanti með ungum
finnskum sirkushóp, Sirkus Aikamoinen, sem
árið 2011 var nefndur sem ein af björtustu
vonunum í sirkusheiminum í Evrópu, og býður til
„fjörugs brjálæðis í yndislegu sirkusandrúmslofti
með kitlandi lifandi tónlist“.
SPáSSíaN er
Spennt Fyrir: