Spássían - 2013, Page 45

Spássían - 2013, Page 45
45 LiSTAgiLið á AkurEYri hefur lengi verið gróskumikil miðstöð myndlistar og menningarlífs. Þar verður áfram líf og fjör í sumar, en árið 2013 er að mörgu leyti merkilegt ár í akureysku menningarlífi almennt. Leikfélag Akureyrar fagnar til dæmis 40 ára afmæli sínu, Listasafn Akureyrar á 20 ára afmæli og tónleikastaðurinn Græni hatturinn verður 10 ára. Spássían rölti niður eftir Listagilinu á vormánuðum, og reyndar alla leið niður að Hofi, og ræddi við forsvarsmenn menningarstofnana og listamenn sem margir hverjir eru enn að kljást við erfiðar eftirstöðvar efnahagshrunsins. Sumir telja að aukið samstarf sé málið, aðrir vilja meiri sérhæfingu, en þótt framtíðin sé óráðin og jafnvel gruggug halda allir þó áfram að sinna verkefni sínu; að skapa list og koma henni á framfæri. menningarlífá akureyri

x

Spássían

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.