Spássían - 2013, Qupperneq 51
51
dönsk, Mánar og Hjálmar að bóka
tónleika, þessar stóru hljómsveitir
sem nota hammondorgel, því það
er auðvitað ekki vinnandi vegur að
koma slíku frá reykjavík. Ég ákvað
þá að fara í þetta af fullum þunga
og græjaði staðinn upp. Það eru öll
tæki hérna: Píanó, trommur, orgel
og allir magnarar. Hljómsveitir geta
bara komið á einum fólksbíl án þess
að vera með hálffullan sendibíl af
græjum.“
FJöLBrEYTTir LiSTAMENN
Haukur segir ganga vel að fá fólk
til að spila og yfirleitt þarf ekki
að ganga á eftir hljómsveitum og
listamönnum. Mezzoforte, Þursa-
flokkurinn, Todmobile, Hjálmar,
Nýdönsk, Skálmöld og Ljótu
hálfvitarnir hafa verið tíðir gestir í
gegnum árin. „John Grant kemur
hérna í sumar. Ég reyni að hafa
þetta sem fjölbreyttast og svo
leyfir maður minni spámönnum að
komast að því það er ekki endalaust
sem þessir stærri og þekktari geta
verið hérna. Maður verður að
rækta hitt með.“ Græni hatturinn er
bókaður fram í ágúst og margir bíða
eftir að Haukur finni handa þeim
dagsetningu fyrir tónleika. „úrvalið
og framboðið hefur verið svo
rosalega mikið að það hefur verið
dálítið erfitt fyrir þessi óþekktu að
fá einhverja aðsókn nema þau séu
sjálf dugleg að hvetja vini til að
mæta. Ég hef séð um auglýsingar
og kynningarmál fyrir þau en það
er takmarkað sem maður kemst
yfir. Í fyrra voru haldnir hérna 150
tónleika. Það gerir þrjá á viku að
meðaltali.“
Utanbæjarfólk er duglegt að
koma á Græna hattinn, að sögn
Hauks, og mikið er hringt og spurt
um dagskrár hverrar helgar. „Ég er
alltaf á vaktinni og það er ekki opið
nema ég sé á svæðinu. Ef ég tek
mér frí þrjár til fjórar helgar á ári
spyr fólk: „Hvað er þá hægt að gera
á Akureyri?“ Þetta er eini staðurinn
sem býður upp á lifandi músík.“
Haukur hefur séð alfarið einn
um að reka Græna hattinn. „Svo
er ég með fólk sem ég kalla út.
Maður er að vinna allar helgar og
svo þarf að þrífa. Ég er reyndar
með ágæta manneskju með mér í
því. Einnig þarf að vinna á barnum,
fara með ruslið, kaupa inn, taka á
móti vörum, auglýsa og fylgja því
eftir, hengja upp plaköt, sjá um að
koma miðum í sölu og allt annað
sem getur komið upp. Samt er fólk
er ennþá að spyrja mig hvort ég sé
ekki að vinna með þessu!“
SAMViNNA Við HOF
Haukur segir ekki hafa verið
mikið um samvinnuverkefni við
Akureyrarbæ. „Ég hef ekki fengið
neina styrki. Ég hef að vísu tvisvar
sinnum verið með gítarhátíð;
heila helgi með hinum ýmsu
gítarleikurum, og ég fékk styrki
í þau verkefni en kom samt út
með bullandi tapi. Þetta var bara
unnið af brennandi áhuga.“ Hann
hefur átt í þónokkru samstarfi við
Menningarhúsið Hof og skipulagt
þá tónleika sem rúmast ekki á
Græna hattinum. „Fyrsta árið
sem Hof var opið var ég með tíu
tónleika og síðan hafa þeir verið
fimm á ári eða svo. Ég hef ekki
komist yfir meira.“ Hann sér fram á
áframhaldandi samstaf við Hof og
einnig að halda Græna hattinum
gangandi um ókomna tíð. Þó hefur
hann ekki hugsað sér að stækka við
sig. „Ég held að það sé kostur að
hafa þetta mátulega lítið þótt það
sé annað slagið fullt. Þetta er bara
passlega stórt.“
Haldnar eru tónlistahátíðir
hringinn í kringum landið á ári
hverju: reykjavík Airwaves,
Aldrei fór ég suður á Ísafirði,
Tónlistarhátíðin Gæran á Sauðár-
króki, Keflavík Music Festival í
reykjanessbæ o.fl. Því vaknar
sú spurning hvort það komi ekki
fljótlega að Akureyri. Haukur er
efins. „Ég veit það ekki. Það er
eiginlega tónlistarveisla hérna um
hverja einustu helgi.“
„mezzoforte,
þurSaflokkurinn,
todmobile,
hjálmar, nýdönSk,
Skálmöld og ljótu
hálfvitarnir hafa
verið tÍðir geStir
Í gegnum árin.“
„ég reyni að
hafa þetta Sem
fjölbreyttaSt og
Svo leyfir maður
minni Spámönnum að
komaSt að.“
„
„