Spássían - 2013, Side 56

Spássían - 2013, Side 56
56 Uppi á hlöðuloftinu er umhverfið klætt brúnum við og rýmið yfirfullt af risastórum málverkum á trönum – þar sjáum við meistarann sitjandi í stólnum sínum, horfandi einbeittur á málverkið fyrir framan sig, eða önnum kafinn með pallettuna í annarri – tusku eða bursta í hinni. Það sem fyrst grípur athyglina, fyrir utan óvenjulegt útlit Odds Nerdrum – stórvaxinn búkinn, strýtt hvítgult hárið og pokalegan sloppinn – er einbeiting hans sem snarkar í rýminu eins og rafmagn. Margir nemendur hafa séð hann detta um stól þegar hann bakkar frá málverki, hann lætur ekki augun af punktinum sem hann rannsakar. en stúdíóið er líka fullt af samtölum og hlátri. Odd er sögumaður af guðs náð og veit hvernig á að ögra og hreyfa við nemendum sínum. Á meðan hann vinnur spinnur hann skemmtilegar rökræður, kryddaðar með norskum orðatiltækjum til að koma sínu til skila. Til dæmis ræðir hann um líf hetjunnar: „Sá leitaði ekki að spegilmynd sinni í augum annarra.“ eða útskýrir: „Þú verður að fara inn í myrkan helli og leita að litlum skuggaloga.“ Hann talar um vegferð þeirra sem algjörlega helga sig verkum sínum. Á hverju ári leita nemendur hvaðanæva úr veröldinni eftir tækifæri til þess að læra hjá Odd, hann hefur verið kallaður „vörður hins mikla evrópska málverks“. Sú staða er engin tilviljun heldur afleiðing einbeitts vilja eða ásetnings. Þegar Odd var 14 ára tók hann ákvörðun um að helga líf sitt því að verða jafngóður málari og rembrandt. Eftir David Molesky Þýðing: kristrún Heiða Hauksdóttir ræSkinGAr í MAnni úti í GArði rjúFA ÞöGninA á róLeGuM vetrArMorGni. Svo MArrAr í Hurðinni oG bAMM! Henni er SkeLLt. AuGnAbLiki SíðAr HrAðA kLoSSArnir SÉr upp Þrepin. boMM. boMM. boMMboMMboMMboMM! ÞettA er vekjArAkLukkA neMenDA í nerDruM-AkADeMíunni. Odd Nerdrum

x

Spássían

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Spássían
https://timarit.is/publication/1454

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.