Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 17
Gaman heima 20. mars 2020 KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is COREDATA SOLUTIONS: Íslenskt hugvit og fjarlausnir fyrir fyrirtæki og stofnanir Fjarvinna verður leikur einn með CoreData. Þar er að finna í einni lausn, allt það sem sameinar það besta í skjala-, verk- og málastjórnun. Með íslensku hugviti höfum við byggt upp og rekið frábærar lausnir með góðum árangri. Viðskiptavinir CoreData eru af öllum stærðum og gerðum og tilheyra hinum ýmsum atvinnugreinum. Viðskiptavinir okkar hafa meðal annars komið böndum á óreiðu skjala, náð yfirsýn yfir öll verkefni og tryggt öruggan rekstur. Þeim markmiðum hafa þeir náð með lausnum frá CoreData. Við teljum að íslensk fyrirtæki þurfi hraða innleiðingu hugbúnaðarlausna þannig að þau séu fær um að aðlaga sig að síbreytilegu umhverfi. Við gerum félögum kleift að koma til móts við starfsmenn sína með auknum sveigjanleika með aðgangi að öllum skjölum og verkefnum hvar sem er í heiminum og hvenær sem þeim hentar. Frá umsókn til undirritunar. Viðskiptavinir þínir hafa aðgang að vefgátt þar sem þeir geta sent inn umsóknir, athugasemdir, beiðnir og önnur erindi – allt eftir þínum þörfum. Allt þetta ferli er pappírslaust og hvert rafrænt undirritað skjal sparar tíma, bílferðir og umstang viðskiptavina. Að sama skapi spara rafræn skjöl og umsóknir tíma starfsmanna við vinnslu, styttir afgreiðslutíma og stuðlar að umhverfisvænni rekstri. Með því að velja CoreData eykur þú sveigjanleika í þínu fyrirtæki ásamt því að styðja við fjarvinnu. Ef þú kannast við þessar áskoranir, ekki hika við að heyra í okkur – við setjum upp fjarfund og ræðum málin. Nánari upplýsingar á www.coredata.is Tölvupóstur: coredata@coredata.is Sími: 550-3900 Átt þú erfitt með að finna réttu skjölin? Við hjálpum þér að skipuleggja skjölin þín á einfaldan og þægilegan máta. Að auki er mjög öflug leit í kerfinu sem hjálpar þér að finna það sem þú ert að leita að. Vantar þig aðgang að skjölunum þínum – sama hvar þú ert? Við geymum öll skjölin þín í skýinu fyrir þig og þú hefur aðgang að þeim hvar sem er í heiminum. Vantar þig betri yfirsýn verkefna? Öllum verkefnum er hægt að úthluta ákveðnum starfsmönnum, tengja við þína viðskiptavini og fylgjast svo með stöðu þeirra. Þarft þú að auka samvinnu teyma – bæði á skrifstofunni og annars staðar? CoreData býður upp á skýra yfirsýn yfir verk, mál og öll skjöl sem þeim tengjast á einum notendavænum stað. Þurfa viðskiptavinirnir ennþá að heimsækja þig? Væri ekki betra fyrir alla aðila ef þeir gætu skráð sig rafrænt inn og sent þér umsóknir, verkbeiðnir og önnur gögn á öruggan og pappírslausan máta?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.