Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 23
2320. mars 2020 Gamla auglýsingin Alþýðublaðið, 10.maí 1984Tímavélin Strætisvagnar í sóttkví vegna alnæmisótta Í upphafi níunda áratugarins stóð heims- byggðin frammi fyrir óþekktum faraldri sem engin lækning var við. Það var al- næmi. Umræðan sem spratt upp á sín- um tíma einkenndist af ótta og óvissu og var í raun ekki ósvipuð þeirri umræðu sem á sér stað í dag um COVID-19. Enginn þorði að stíga upp í „Aids vagnana“ „Sífellt fleiri verða fórnarlömb AIDS og nú er vitað um kringum 2.000 til­ felli. Sjúkdómur­ inn leggst aðallega á homosexualista og eiturlyfja neytendur. Þegar hefur orðið vart nokkurs ótta með­ al almennings hér á landi vegna AIDS og rætt til hvaða ráðstafana sé hægt að grípa svo sjúkdómurinn berist ekki hingað til lands,“ segir í frétt Tímans árið 1983, rúmlega tveimur árum eftir að fyrstu fréttir af hinni nýju og óþekktu veiru birtust í bandarískum miðlum. Í frétt Tím- ans kom fram að það væri „aðeins tíma- spursmál hvenær veiran myndi berast til Íslands.“ Umfjöllun íslenskra fjölmiðla á þessum árum bar merki um hversu mikil vanþekking var á sjúkdómnum og einnig hversu stutt var í fordóma. Talað var um „hommaveikina“ og „kynvill- ingapláguna.“ Þann 13. nóvemer 1985 var greint frá því í DV að tve- ir strætisvagnar hefðu verið settir í sótt- kví í tíu klukkustundir á þvottastöð SVR á Kirkjusandi vegna ótta starfsmanna um að „AIDS-veiran“ leyndist í vögnunum. Enginn starfsmanna þorði að stíga inn í vagnana. Nóttina áður hafði illa haldinn útigangs- maður haft uppi ólæti í báðum vögnunum og lét vagnstjórana og aðra nærstadda vita af því að hann væri með eyðnisjúkdóminn. Við Hlemm komu fjórir lögreglumenn, vopnaðir gúmmíhönskum, og fjarlægðu manninn. Seinna kom þó í ljós að um ein- hvers konar misskilning var að ræða, alla- vega reyndist útigangsmaðurinn ekki vera smitaður af sjúkdómnum. „Það var ekki fyrr en SVR-menn höfðu fengið fullvissu frá heilbrigðisyfirvöldum og lögreglunni um að sagan um sjúkdóm- inn hræðilega væri uppspuni að strætis- vagnarnir tveir voru aftur teknir í notkun,“ segir í frétt DV. „Við tókum þá ákvörðun að koma ekki nálægt þessu fyrr en við hefðum fengið einhverjar leiðbeiningar frá heilbrigðis- eftirlitinu eða læknum um hvernig ætti að umgangast svona,“ sagði starfsmaður á þvottastöð SVR í samtali við DV. Stakk upp á að smitberar yrðu merktir Rúmlega viku síðar birtist pistill undir liðn- um Dagfari í DV. Þar minnist greinarhöf- undur á ofangreinda frétt um strætisvagn- ana: „Sannleikurinn er sá, að það er víðar en í strætó sem fólk er farið að gera varúðar­ ráðstafanir. Á fjölmennum vinnustöðum eru yfirlýstir hommar settir í einangrun og eru vinsamlegast beðnir um að nota sér­ stök salerni, hreinlætistæki og vistarverur. Nú er það svo að það er ekki hægt að loka slíkt fólk inni í búrum þegar það ferð­ ast með strætó en auðvitað kæmi til greina að merkja hugsanlega smitbera líkt og gyðinga forðum og vísa þeim á sérstaka bása í vögnunum öðrum til viðvörunar. Það er að minnsta kosti betra og ódýrara heldur en að aka hverjum og einum vagni í sóttkví í hvert skipti sem grunur leikur á farþega sem fengið hefur veiruna eða gæti hafa fengið veiruna eða mundi geta feng­ ið veiruna.“ Þá lagði greinarhöfundur til að lög- reglufélagið gerði þá kröfu í næstu kjara- samningum að bæði gúmmihanskar og gasgrímur fengjust endurgjaldslaust á liðið ef lögreglan ætti ekki að vera „helsti Aids smitberi landsins“. „Eða hvers eiga stálhraustir glæpa­ menn og þjófar að gjalda þegar lögreglan stendur þá að verki ef þeir geta búist við því að smitast við handtökuna af þessum déskota án þess að koma nokkrum vörn­ um við?“ „Ekki blóð, ekki AIDS“ Í frétt NT árið 1985 segir: „AIDS­hræðslan hefur gripið Ís­ lendinga. Strætisvagnar eru taldir hættu­ legir, salerni á opinberum stofnunum og margt fleira. Spítalarnir finna líka fyr­ ir þessu. Læknum féllust hendur nú fyrir skömmu á Borgarspítalanum, þegar ver­ ið var að svæfa sjúkling fyrir aðgerð. Rétt áður en óminnið tók við reis sjúklingurinn upp og grátbað læknana að láta sig frekar fara, heldur en dæla í sig blóði. Ekki blóð, ekki AIDS voru síðustu orð mannsins áður en hann sofnaði.“ Það sama ár sagði Haraldur Briem sótt- varnarlæknir í sam- tali við DV: „Við fáum fyrsta AIDS-tiIfelIið hér á Íslandi innan tveggja ára, á því er lítill vafi.“ Vildu koma á fót einangrunarstöð Guðjón Ragnar Jónas- sonar var ungur samkynhneigður maður á Íslandi þegar fyrstu til- vik alnæmissjúkdóms- ins komu fram. Í bók sinni Hin hliðin lýsir hann því meðal annars hvernig andrúms- loftið var á þessum tíma. Allt umhverfið var markað „Plágunni“ og margir töluðu fyrir því að einangra þennan „hættulega“ hóp. „Ég minnist þess að móðir mín sem þá starfaði sem hjúkrunarfræðingur hafði miklar áhyggjur af þessu og taldi að hér væri um heimsfaraldur að ræða. Fjölmiðl­ ar tóku í sama streng og þar voru og á tíð­ um yfirlýsingar um hvað þyrfti að gera til að sporna við plágunni.“ Á öðrum stað ritar Guðjón að á sínum tíma hafi alnæmisveiran verið sett í sama flokk og svartidauði. „Svo fáránleg var umræðan að sumir framámenn töluðu í fullri alvöru um mikilvægi þess að koma á fót einangrunarstöð fyrir eyðnismitaða homma. Nokkurs konar sóttvarnarbúð­ um til að einangra þá eyðnisjúklinga sem kynnu vísvitandi að fara ógætilega í sam­ skiptum við annað fólk. Þar átti að vera nóg pláss og auðvelt að koma upp öflugri sóttkví fyrir skítugu börnin hennar Evu.“ n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.