Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 38
38 FÓKUS 20. mars 2020
YFIRHEYRSLAN
Linda
Jóhanns-
dóttir
Linda Jóhannsdóttir hönnuður lýsir sjálfri sér sem lita
glöðum húmorista. Merkið hennar, Pastelpaper, er að gefa út
tvær nýjar mynda og kortalínur sem munu eflaust fegra heim
ili landsmanna, en samhliða fyrirtækjarekstrinum gerir Linda
upp íbúð í Hlíðunum. Linda er í yfirheyrslu helgarinnar.
Hvar líður þér best? Í ævintýrum með skemmtilegu fólki, finnst ekkert skemmtilegra en að upplifa nýja hluti,
sjá nýja staði, kynnast nýrri menningu og fólki.
Hvað óttastu mest? Að hafa ekki nægan tíma með þeim sem ég elska mest.
Hvert er mesta afrek þitt? Það eru til svo mörg klisjuleg, svo við þessari spurningu, reynum að
forðast þau. Myndi samt segja mitt mesta afrek að elta drauma mína og standa upp þegar lífið fellir
mig. Ég stofnaði Pastelpaper nýútskrifuð úr Listaháskólanum, það er ekki alltaf auðvelt að reka lítið
hönnunarfyrirtæki á Íslandi, en enginn sagði að lífið yrði auðvelt.
Furðulegasta starf sem þú hefur tekið að þér? Vá, þau eru frekar mörg furðuleg, en
ætli það furðulegasta sé ekki að vera syngjandi blómasendill.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni? „She had fun“ og svo yrði að vera undirtitill .…
sem ég læt þann sem skrifar bókina um að finna.
Hvernig væri bjórinn Linda? Það kom á markaðinn bjór um daginn sem heitir Linda
B sem var næstum því næg ástæða til að byrja drekka bjór, en nei, því miður er hann
jafn vondur og hinir, minn bjór væri því alls ekki bjór heldur kokteill í dós, „let’s face it“,
kokteilar eru bara meira „fun“.
Besta ráð sem þú hefur fengið? „Do it!“
Hvert er leiðinlegasta húsverkið? Að ryksuga, það er bara eitthvað við það
að ryksuga sem fer alveg með mig, já, það og brjóta saman þvott, bara af því það er svo
tímafrekt ef það er gert rétt og það verður að gera það rétt.
Besta bíómynd allra tíma? Það er ekki einhver ein, fer eftir degi og stuði, en ég horfi bara
á myndir sem enda vel.
Hvaða hæfileika myndir þú vilja búa yfir? Að geta lesið hugsanir.
Hver er mesta áhætta sem þú hefur tekið? Mér finnst fátt vera áhætta,
meira bara tækifæri sem ýmist ganga upp eða ekki, síðasta tækifæri sem ég ákvað
að grípa var að kaupa íbúð sem hafði ekki verið snert í 72 ár og hafði verið í eigu
sömu fjölskyldunnar frá því að hún var byggð. Er að gera hana alla upp, enda er
hún virkilega komin til ára sinna og ég hef verið að pósta því skemmtilega ferli
á Instagram fyrir þá sem hafa gaman af því að fylgjast með, finnið mig undir
llindajohannsdottir á Instagram ef þið viljið sjá hvort hún verði einhvern tím-
ann tilbúin.
Hvaða frasi eða orð fer mest í taugarnar á þér? Get ekki! Það
er ekkert verra, afi minn er mín helsta fyrirmynd í lífinu og hann hefði
aldrei sagt: ég get ekki. Flestir afar eru ofurhetjur í huga barnabarna
sinna, en afi minn var ofurhetja og ekki bara í mínum augum. Þú
getur allt sem þú vilt, stundum þarftu bara að berjast aðeins meira
fyrir því og stundum er útkoman önnur en þú hélst.
Hvaða geturðu sjaldnast staðist eða ert góð í að
réttlæta að veita þér? Ég er frekar góð í að réttlæta
hluti, ævintýraferðir eru eitthvað sem alltaf er hægt að
réttlæta.
Hvaða leynidraum áttu þér? Ég á mér marga
drauma sem ég mun elta en leynidraumur minn er að
vera leikari og grínisti, hvort ég elti hann veit ég ekki.
En ég á mér tvö mottó, það er betra að sjá eftir
hlutum sem þú gerðir en gerðir ekki og „Never
regret things that once made you smile“, svo
það er aldrei að vita hvort ég elti líka þann
draum.
Hvað er á döfinni hjá þér? Ég er að
gefa út tvær nýjar línur, þær áttu að
koma út á HönnunarMars en honum er
frestað en ég ætla samt að gefa þær
út. Önnur heitir Colors of Iceland og
er eins konar litakort fyrir Ísland
og hinn er lína af ljósmyndum
eftir mig. Það er hægt að sjá
myndir inni á Instagram
Pastelpaper.
MYND: KRISTNN SVANUR
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is