Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 26
26 20. mars 2020 SAKAMÁL HELRÁÐ Í HÖFÐABORG n Najwa Petersen bruggaði eiginmanni sínum launráð n Leigumorðingjarnir guggnuðu T aliep Petersen var suðurafrískur tónlistarmaður, nokkuð frægur að sögn og því ekki loku fyrir það skot- ið að einhver sem þetta les kannist við kauða. Taliep, sem fæddist 15. apríl, árið 1950, var múslimi, tvíkvæntur og sex barna fað- ir. Seinni kona Talieps var Najwa Petersen sem var af auðugri, namibískri fjölskyldu komin; Dirk-fjölskyldunni. Fjölskyldan hafði komið ár sinni vel fyrir borð með við- skiptum með ávexti og demanta. Sagan segir að samband Najwa og föður hennar hafi verið náið og sennilega ástæða þess að hún átti að baki þrjú misheppnuð hjónabönd þegar hún giftist Taliep; enginn eiginmanna hennar stóðst samanburð við föður hennar. Það er önnur saga. Frásögn Najwa Þegar þessi saga hefst er Taliep Petersen liðið lík. Hann var myrtur 16. desember, árið 2006, í Höfðaborg í Suður-Afríku. Án efa gerðist ýmislegt í málinu næsta hálfa árið eða svo, en það var þó ekki fyrr en 18. júní, 2007, að Najwa var handtekin. Upphaflega hafði Najwa sagt lögreglu að kvöldið þegar Taliep var myrtur, hefði hún tekið á sig náðir í eigin svefnherbergi, hjónin deildu ekki svefn- herbergi, eftir að hafa tek- ið lyfin sín. Síðan hefði hún hringt í vin sinn sem hefði selt fyrir hana dem- anta til að athuga hvort hann hefði fengið greiðslu. Hann sagði svo vera og að hann væri á leið til hennar með greiðsluna. Krafin um peninga Það næsta sem Najwa vissi, að eigin sögn, var að hún var vakin af hettuklæddum manni sem beindi byssu að höfði hennar og krafði hana um peninga. Najwa sagðist hafa farið með manninum inn í svefn- herbergi Talieps þar sem ör- yggisskápurinn var og séð hann krjúpa á gólfinu og rann blóð úr nefi hans eða munni. Að sögn Najwa var um tvo innbrotsþjófa að ræða, en hún mundi ekki hvort þeir hefðu báðir verið vopn- aðir. Hún lét þann vopnaða fá 50.000 rand og andvirði 300.000 rand í Bandaríkjadöl- um. Síðan var Najwa læst inni í hennar eigin svefnherbergi og þaðan hringdi hún í mág- konu sína. „Á meðan ég talaði við hana heyrði ég skothvell,“ sagði Najwa. Þrjár tilraunir Reyndar var Najwa margsaga um atburða- rás umrædds kvölds og um síðir kom í ljós hvernig í pottinn var búið. Frásagnir annarra sem voru í húsinu, til dæmis fullorðins sonar Najwa frá fyrra hjóna- bandi, voru engan veginn samhljóða frá- sögn Najwa sjálfrar. Najwa var handtekin á heimili sínu og var síðar ákærð, ásamt þremur vit- orðsmönnum, fyrir morðið á Taliep. Við réttarhöldin kom í ljós að hjóna- band Najwa og Talieps hafði sennilega riðað til falls snemma árs 2006. Þá hafði Najwa haft samband við vin Dirk-fjöl- skyldunnar, mann að nafni Fahiem Hend- riks, og beðið hann að finna einhvern sem myndi koma Taliep fyrir kattarnef gegn all- vænni þóknun. Fyrstu tvær tilraun- irnar mistókust, en allt er þegar þrennt er. Þrír leigumorðingjar Það eina sem stóðst nánari skoðun í frásögn Najwa var að þrír menn bönkuðu upp á heima hjá Taliep kvöldið örlagaríka í desember árið 2006 og Taliep fór grunlaus til dyra. Þar voru á ferðinni Abdoer Emjedi, Wa- heed Hassen og Jefferson Snyders, sem höfðu verið ráðnir af Hendriks. Eftir að hafa yfirbugað Taliep og geng- ið duglega í skrokk á honum fór einn þre- menninganna, Waheed Hassen, um húsið með Najwa og safnaði saman fé, skartgrip- um og farsímum. Allan tímann, að sögn Waheeds, spurði Najwa hann ítrekað: „Hvenær ætlarðu að klára þetta?“ Najwa „klárar þetta“ Jefferson mun hafa yfirgefið heimilið áður en stóru tíðindin gerðust og þegar að því kom að „klára þetta“ komu einhverjar vöflur á Waheed Hassen. Waheed hafði sett kodda yfir andlit Talieps en guggnaði þegar að því kom að hleypa af. Najwa tók skammbyssuna af Waheed og skaut einu skoti sem fór í gegnum hálsinn á Taliep. Samkvæmt vitnisburði streymdu tárin niður kinnar Talieps þegar hann gerði sér grein fyrir því að Najwa var með í þessu öllu. Najwa fékk 28 ára dóm, Abdoer Emjedi 24 ár og Waheed Hassen 25 ár en Jeffer- son slapp með skrekkinn og fékk sjö ára dóm. n „Á meðan ég talaði við hana heyrði ég skothvell Tónlistarmaðurinn Taliep Petersen var illa svikinn. Kaldrifjaða eiginkonan Najwa sveifst einskis í ráða- bruggi sínu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.