Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Qupperneq 18
Gaman heima 20. mars 2020KYNNINGARBLAÐ PREPPUPP.IS: Sterkara ónæmiskerfi með heimsendum mat frá Preppup F jöldi fyrirtækja býður upp á hentuga þjónustu sem er eins og sérsniðin fyrir þá sem sitja fastir heima fyrir í sóttkví, ja eða okkur hin, sem viljum og þurfum að takmarka ferðir okkar á fjölfarna staði líkt og matvörubúðir. Preppup er eitt þessara stórsniðugu fyrirtækja, en Preppup útbýr næringarríkan heimilismat úr hágæða hráefnum og heimsendir til viðskiptavina sinna. Fyrirtækið er ekki nema sex mánaða gamalt en hefur heldur betur vaxið fiskur um hrygg. Viðskiptavinum fjölgar statt og stöðugt enda finnur fólk hratt mun á sér og á auðveldara með að ná markmiðum sínum. Á undanförnum vikum hefur salan hjá Preppup stóraukist í ljósi breyttra aðstæðna í samfélaginu af völdum Covid-19 veirunnar. Það hefur sjaldan verið jafnbrýnt að viðhalda heilbrigðu ónæmiskerfi og einmitt nú. Margir hafa skipt út ræktarferðum fyrir heimaæfingar til þess að viðhalda ónæmiskerfinu. En það er alveg jafnmikilvægt að borða hollt. Kokkarnir hjá Preppup elda næringarríkan mat sem styður við virkni ónæmiskerfisins og hjálpar líkamanum að berjast gegn sýkingum. Augljós árangur Eigendur Preppup fylgdust grannt með 15 einstaklingum sem neyttu einskis annars en matar frá Preppup í þrjár vikur. Einstaklingarnir náðu allir að grennast eða þyngjast samanber þau markmið sem þeir settu sér, og meðal annars minnkaði kólesteról verulega hjá einum á þessum stutta tíma. Mataræði hefur gífurlega mikið að segja þegar kemur að heilbrigði og markmiðasetningu. Pantaðu strax í dag og komdu ónæmiskerfinu í lag. Ferlið hjá Preppup er sára einfalt 1. Þú pantar 2. Við eldum 3. Sendum matinn 4. Þú hitar og nýtur 5. Sérsniðið matarplan Preppup skiptir réttunum sínum upp í fjóra flokka, sem þú velur á milli eftir því hvert markmið þitt er, hvort sem þú vilt skera niður, bæta á þig, viðhalda þyngd eða ert á veganfæði. Hægt er að fá 1–4 máltíðir á dag 3, 5 eða 7 daga vikunnar. Þá hakarðu við þær máltíðir sem þú vilt fá og hversu oft. Við hverja máltíð sérðu nákvæma útlistun á næringarinnihaldi. Þannig er enginn vandi að halda utan um hvað þú ert að innbyrða. Hver máltíð er sérstaklega samsett þannig að hún innihaldi mikið af næringarefnum en sé jafnframt bragðgóð. Það hefur aldrei áður verið jafn einfalt og ánægjulegt að borða hollt. Tímasparnaður Sendingar berast á mánudögum eða fimmtudögum. Hver máltíð fyrir hvern einstakling kemur í einu boxi sem auðvelt er að grípa með sér ef maður er á ferðinni. Maturinn er tilbúinn til neyslu og má stinga beint í örbylgjuofninn til að hita upp. Stundum þarf þó að taka frá fersk salöt eða jógúrtsósur. Fyrir utan það hve maturinn er hollur og góður, þá sparar það gífurlegan tíma á hverjum degi að þurfa ekki að ákveða hvað eigi að vera í matinn, elda, vaska upp og þrífa eftir á. Með svona góðan og hollan mat er enn auðveldara og skemmtilegra að ná markmiðum sínum. Pantaðu þér hollan og næringarríkan heimilismat frá Preppup á preppup.is Hlíðarsmári 8, 200 Kópavogur Sími: 519-9887 info@preppup.is Instagram: @preppup Kjúklingabringa með nípu, brokkolí, kartöflubátum og hvítlauksjógúrtsósu. Dæmi um veganmáltíð: Oumph í heimagerðu pestó með sætkartöflum, ristaðar hnetur og hvítlaukssósa. Dæmi um máltíð til að viðhalda: Teriyaki nautaspjót með kúskús og mangó-chili salati.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.