Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.2020, Blaðsíða 19
Gaman heima20. mars 2020 KYNNINGARBLAÐ AÞ-ÞRIF EHF: býður í ljósi aðstæðna nú upp á sótthreinsun á vinnustöðum Á tímum veirusmits og sóttvarna er mikilvægt að hafa í huga að hreinlæti er besta vörnin gegn smitsjúkdómum. Í ljósi aðstæðna og vegna fjölda fyrirspurna hefur AÞ-Þrif ákveðið að bjóða fyrirtækjum og stofnunum upp á sótthreinsun á vinnustöðum. Sú hreinsun felur í sér sótthreinsun á öllum helstu snertiflötum eins og hurðarhúnum, slökkvurum, handriðum og fleiru. „Við höfum töluverða reynslu af því að sótthreinsa vinnustaði og rými þar sem fjöldi fólks fer í gegn. Til að mynda höfum við sinnt ræstingum á starfsstöðvum Strætó á höfuðborgarsvæðinu í mörg ár. Einnig höfum við séð um daglega ræstingu í Smáralind og Egilshöll síðan í fyrravor. Við bjóðum upp á að sótthreinsun sé framkvæmd að degi til eða eftir lokun vinnustaða. Fyrir frekari upplýsingar er hægt að senda okkur tölvupóst á ath- thrif@ath-thrif.is,“ segir Hrund Sigurðardóttir, einn af eigendum AÞ-Þrif ásamt Bjarka Þorsteinssyni og Arnari Þorsteinssyni. Almenn og sértæk verkefni AÞ-Þrif ehf. er hreingerningafyrirtæki sem tók formlega til starfa í júlí 2006. Hjá AÞ-Þrif starfa nú um 130 manns og er fyrirtækið það þriðja stærsta á landinu á þessu sviði. „Við tökum að okkur allt sem viðkemur þrifum. Þá er sérsvið okkar iðnaðarþrif fyrir byggingaverktaka ásamt daglegri ræstingu fyrir fyrirtæki. Auk þess erum við með öfluga gluggaþvottadeild þar sem við þjónustum fyrirtæki, húsfélög og einstaklinga. Við bjóðum svo upp á gólfþrif og mygluþrif. Við hikum ekki við að taka að okkur ýmis sérverkefni, við byggjum á áralangri reynslu og góðri þekkingu. Það er um að gera að hafa samband við okkur ef þú hefur verkefni í huga fyrir okkur. Við leggjum megináherslu á metnað, gæði og umfram allt framkvæmdagleði í öllum okkar störfum.“ AÞ-Þrif er stolt af því að hafa fengið viðurkenningu fyrir Framúrskarandi fyrirtæki þrjú ár í röð. „Einnig erum við Svansvottuð og notum við eingöngu umhverfisvæn efni við ræstingar. Svansvottunin er opinbert umhverfismerki Norðurlandanna og tekur ekki einungis til umhverfismála heldur gerir það einnig gæðakröfur, þar sem umhverfismál og gæðamál fara oft saman. Þetta þýðir að Svansvottunin er einnig gæðastimpill.“ Skeiðarás 12, 210 Garðabæ Sími: 517-2215 Tölvupóstur: ath-thrif@ath-thrif.is Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu fyrirtækisins ath-thrif.is Facebook: AÞ-Þrif ehf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.