Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Síða 22
1. MAÍ 2020 DV
FYRIR BÓKMENNTAUNNENDUR
Ármann Jakobsson @ArmannJa
Fjöldi tísta: 11,3 þús. | Fylgjendur: 2,5 þús.
Ármann er prófessor í íslenskum miðaldabókmenntum og rithöfundur. Hann
skrifaði meðal annars sögulegu skáldsöguna Vonarstræti og glæpasöguna
Útlagamorðin. Ármann er virkur tístari en hann byrjaði að tísta árið 2016.
Þó að sum tístin fjalli eðlilega um bókmenntir þá er Ármann líka hnyttinn
og vel máli farinn.
@ArmannJa ∙ 27. apríl
„A: Þetta eru erfiðir tímar.
B (Friedrich Nietzsche): Já, ekki síst fyrir fólk sem þolir
ekki sjálfsvorkunn.“
Stefán Máni Sigþórsson @Stefan_Mani
Fjöldi tísta: 14,4 þús. | Fylgjendur: 3,1 þús.
Stefán Máni er afkastamikill íslenskur rithöfundur. Hans þekktustu verk
eru meðal annars Svartur á leik, Feigð og Svartigaldur. Stefán hefur verið
á Twitter síðan 2012 og tístir um alls kyns hluti.
@Stefan_Mani ∙ 7. apríl
„Ég: Veistu hvaða Hollywood-leikari er kominn með
COVID-19?
Sonur: Nei
Ég: Will SMIT! Hahaha!
Sonurinn: *dæs*
#pabbatwitter“
Kamilla Einarsdóttir @Kamillae
Fjöldi tísta: 11,1 þús. | Fylgjendur 4,3 þús.
Kamilla er höfundur bókarinnar Kópavogskrónika sem hefur vakið mikla
athygli og verður fljótlega sett upp í Þjóðleikhúsinu. Líkt og í Kópavogs-
króniku einkennast tíst hennar af kaldhæðni, grófum húmor og hispursleysi.
@Kamillae ∙ 25. apríl
„Verð svo stressuð þegar fólk segist vilja koma í heim-
sókn. Hugsa: æ fokk, hvort eru þau að fara að reyna að
selja mér ljóðabók, fá mig í költ eða selja mér rainbow
ryksugu? Alltaf æðislegur léttir að komast að því að þau
vilja bara koma að ríða.“
FYRIR BOLTABULLUNA
Guðmundur Benediktsson @GummiBen
Fjöldi tísta: 13,8 þús. | Fylgjendur: 26,3 þús.
Gumma Ben þarf vart að kynna. Hann hefur verið viðriðinn knattspyrnu
bæði sem leikmaður, þjálfari og svo sem knattspyrnulýsandi. Hann tístir
mikið um íþróttina en einnig má þar finna einstaka tíst um eitthvað annað.
@GummiBen ∙ 19. mars
„Ef ég verð einhvern tímann stór þá ætla ég að verða
Víðir, Þórólfur eða Alma.“
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson @thorkellg
Fjöldi tísta: 6,9 þús. | Fylgjendur: 4 þús.
Þorkell er íþróttafréttamaður á RÚV og virkur á Twitter. Þar má jafnvel
finna einstaka tíst sem ekki fjalla um fótbolta, heldur jafnvel aðrar íþróttir.
@thorkellg ∙ 11. mars
„Jæja þá. Best að líta bara á björtu hliðarnar. Liverpool
verður Evrópumeistari í nokkrar vikur í viðbót allavega.“
VIRKUSTU ÞINGMENNIRNIR
Smári McCarthy @smarimc
Fjöldi tísta: 28.9 þús. | Fylgjendur: 9,6 þús.
Smári hefur setið á þingi fyrir Pírata síðan 2016 en hann hefur verið á Twit-
ter síðan 2008. Tístin hans fjalla flest um pólitík, bæði innlenda og erlenda
og tístir hann helst á ensku.
@smarimc ∙ 13. apríl
„Ef þú ræður bjána í verkefni, ekki þykjast vera hissa
þegar verkið er gert bjánalega“
Andrés Ingi Jónsson @andresingi
Fjöldi tísta: 16,3 þús | Fylgjendur: 3,1 þús
Andrés Ingi tók sæti á þingi 2016 fyrir Vinstri Græna en er núna utan flokka.
Þó hann sé þingmaður þá tístir hann einnig um daglegt líf og málefni líðandi
stundar.
@andresingi ∙ 15. mars
„Hleraði plott barnanna. Næst þegar þau missa tönn
ætla þau engum fullorðnum að segja frá því, til að sjá
hvort þau fái samt klink undir koddann. Skuggalega
mikið útpæld fyrirsát.“
TÍSTANDI ÍSLENDINGAR SEM
VERT ER AÐ FYLGJAST MEÐ
Að tísta á Twitter er góð skemmtun, eða það finnst fjöldanum
öllum af Íslendingum allavega. En hvernig getur þú tekið þátt í
gleðinni ef þú ert þar ekki nú þegar?
FYRIR HÚMORISTANN
Þorsteinn Guðmundsson @ThorsteinnGud
Fjöldi tísta: 4,1 þús. | Fylgjendur: 14,8 þús.
Grínistinn Þorsteinn Guðmundsson skipti nýlega um gír þegar hann gerðist
sálfræðingur á gamals aldri. Það hefur hins vegar ekki kæft niður húmorinn
sem hann fær reglulega útrás fyrir á Twitter.
@ThorsteinnGud ∙ 28. apríl
„Tók Zoom fund einn áðan. Sérkennilega reynsla. Hafði
ekkert að segja en tók eftir því að ég er kominn með
undirhöku.“
Bergur Ebbi Benediktsson @BergurEbbi
Fjöldi tísta: 7 þús. | Fylgjendur: 12 þús.
Rithöfundur, uppistandari, tónlistarmaður, leikari og lögmaður. Er eitthvað
sem Bergur Ebbi getur ekki gert? Tístin hans eru flest lauflétt og hressandi,
og engar áhyggjur – það er lítið um lögfræði þar.
@BergurEbbi ∙ 25. apríl
„Faðma tré?! Faðma tré?! Það er alltaf verið að faðma
þau. Farið út og faðmið rafmagnskassa. Þeir hafa aldrei
fengið faðmlag.“
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir @Loahlin
Fjöldi tísta: 9,1 þús. | Fylgjendur 4,2 þús.
Lóa er myndasöguhöfundur og tónlistarkona. Hún deilir hnyttnum teikn-
ingum sínum á Twitter, sem oftar en ekki snúast um málefni líðandi stundar,
með áherslu á manneskjurnar í samfélaginu.
@Loahlin ∙ 6. janúar
„Ég nota ennþá frasann „rólegan æsing“.“
FYRIR FEMÍNISTA
Hildur Lilliendahl
@hillldur
Fjöldi tísta: 19,7 þús. |
Fylgjendur: 6,7 þús.
Hildur hefur lengi verið áberandi
í jafnréttisbaráttunni á Íslandi og
hún er gallharður femínisti. Konur
og femínismi eru áberandi í tístum
hennar, en líkt og flestir aðrir
tístarar snúast margar færslur
líka um málefni líðandi stundar
og skemmtilegar uppákomur úr
einkalífinu.
@hillldur
∙ 10. apríl
„Síminn minn
er svo mikil
framlenging af
mér sjálfri að á
meðan ég svaf lagði hann kakka-
lakka með því að detta í gólfið
ofan á lakkann á hárréttu augna-
bliki. Ég hneigi mig fyrir þessu
tæki, það getur allt.“
Silja Björk Björnsdóttir
@siljabjorkk
Fjöldi tísta: 9 þús. |
Fylgjendur: 1,5 þús.
Silja er einn af frumkvöðlum her-
ferðarinnar #égerekkitabú sem
snerist um að opna umræðuna
um geðsjúkdóma á Íslandi.
@Siljabjorkk
∙ 21. apríl
„Dagur 42 7
í samkomu-
bann i : He f
komist að því
að draumar
mínir um að vera heimavinn andi
móðir voru dulbúnar martraðir.
Leikskóli á morgun, ég þarf að
mæta á fund. Hlakka til, líður eins
og það séu jólin.“
VINSÆL MYLLUMERKI
Myllumerki eða # eru notuð til að
merkja tíst vissum málefnum eða
umræðuefnum. Sum myllumerki verða
aðeins virk í kringum vissa viðburði á
meðan önnur eru tímalaus.
#12stig Myllumerkið #12stig er notað
í umræðum tengdum Söngvakeppn-
inni og Eurovision.
#Vikan Þetta myllumerki er notuð
fyrir umræður um þáttinn Vikuna með
Gísla Marteini.
#pabbatwitter / #mömmutwitter
Ertu með góðan pabbabrandara eða
mömmugrín? Skelltu því á Twitter og
merktu með ofangreindum myllu-
merkjum.
#sóttkví / #samkomubann
Þetta myllumerki nota Íslendingar
gjarnan til að merkja færslur um
heimsfaraldur COVID-19.
22 FÓKUS