Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Blaðsíða 36
36 FÓKUS 1. MAÍ 2020 DV
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og undir fullum
trúnaði.
Fjölskylduhornið
Sérfræðingur svarar
Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi
með meiru, hefur gengið til liðs við DV
og mun svara spurningum lesenda um
málefni er varða fjölskylduna, börn og
ástina. Að þessu sinni svarar Kristín
spurningu frá konu sem ber tilfinningar
til einstaklings sem er ekki eiginmaður
hennar.
H æ, Kristín. Mér finnst ég vera í erfiðri stöðu þessa dagana, en svo
er mál með vexti að ég held
að ég sé orðin ástfangin af
samstarfsmanni mínum.
Ég og maðurinn minn erum
búin að vera gift í 20 ár og
erum komin á miðjan aldur,
börnin orðin voða sjálfstæð
og lífið snýst mikið bara um
vinnuna. Ég hugsa stöðugt
um samstar fsfélagann,
roðna eins og smástelpa
þegar hann er nálægt mér
og hef tekið eftir því að
ég er farin að mála mig og
klæða mig eins og ég sé á
leiðinni á ball fyrir vinnu-
daginn. Síðan sakna ég hans
svakalega þegar hann er
ekki í vinnunni og verð hálf
ómöguleg. Vandamálið mitt
er í raun þetta, fyrst ég finn
fyrir tilfinningum til sam-
starfsfélaga míns, þýðir það
að hjónabandið mitt sé búið?
Ætti ég að fara frá mannin-
um mínum eða er þetta ein-
hver grár fiðringur?
Ekkert óeðlilegt
Sælar og takk fyrir spurning-
una. Starfið mitt gengur að
svo miklu leyti út á að spyrja
spurninga. Oftast finna skjól-
stæðingar mínir lausn sinna
mála í sínum eigin svörum.
Þess vegna kitlar það mig
að vita meira um hvað liggur
að baki líðan þinni en fyrst
ég get ekki spurt þá fylli ég
í eyðurnar og vona að það
komi ekki að sök.
Ég velti helst fyrir mér
hvers vegna þú setur sama-
semmerki á milli þess að
verða skotin í vinnufélaga og
að enda hjónaband þitt. Er
einhver annar vandi til stað-
ar í hjónabandinu? Langar
þig út úr því? Ef ekki, þá get
ég sagt þér að margir sem
eiga í parsamböndum finna
fyrir tilfinningum til ann-
arrar manneskju á einhverj-
um tímapunkti. Það fer svo
alveg eftir því hvers eðlis til-
finningarnar eru og hvernig
viðkomandi bregst við þeim,
hverjar afleiðingarnar verða.
Algengt að þrá eitthvað
sem er ekki í boði
Hversu vel þekkir þú vinnu-
félaga þinn? Byggja tilfinn-
ingar þínar á fantasíum um
hann eða raunverulegum
samskiptum? „Ást við fyrstu
sýn“ getur verið öryggistil-
finning í tengslum við eitt-
hvað sem þú þráir. Algengt
er að þrá eitthvað sem er
ekki í boði nema með því
að ímynda sér það í annarri
manneskju.
Fantasíur fólks ríma oft
ekki við lífsskoðanir. Fant-
asíur eru hugmyndir og
ímyndanir sem geta veitt
sefjun þrátt fyrir að vera al-
gjörlega á skjön við það sem
sami einstaklingur myndi í
raun vilja gera. Hugmyndin
um vinnafélaga þinn, hvort
sem hún er af tilfinninga-
legum eða kynferðislegum
toga, getur veitt þér ein-
hverja nautn sem þú myndir
mögulega ekkert fá út úr ef
af henni yrði í raun og veru.
Þá vitum við vel að þegar
einhvern skortir eitthvað í
parsambandi þá er auðvelt
að leita annað eftir því sem
ekki er uppfyllt. Út frá þeim
forsendum sem þú gefur
upp í spurningu þinni gef ég
mér að það sé ekki allt eins
og þú myndir vilja hafa það
í hjónabandi þínu. Hefur þú
rætt við maka þinn um það?
Er kominn tími á að kaupa
sér krumpugalla í stíl?
Ef líf ykkar hjóna snýst fyrst
og fremst um vinnuna, þá er
ekkert undarlegt við að með
tímanum líði hjónabandið
fyrir það. Í góðum hjóna-
böndum er til staðar vinátta
og þar nýtur fólk samveru
við hvort annað.
Ef líf ykkar snýst um
vinnuna, samvera ykkar er
lítil og þú ert farin að líta í
kringum þig, þá gæti verið
ráð að reyna að finna þráðinn
á milli ykkar hjóna á ný.
Er kominn tími á að kaupa
sér krumpugalla í stíl, golf-
sett eða gönguskó? Búa til
ánægjulegar stundir, skapa
samtöl og minningar sem
áður var ekki tími fyrir?
Kannski gætir þú nýtt þetta
skot til þess einmitt að bretta
upp ermar og laga núverandi
samband.
Eins og ég væri nú örugg-
lega góð í því, þá get ég ekki
sagt neinum hvort hann eigi
að vera eða fara í sínu sam-
bandi. Það er ákvörðun sem
við þurfum öll að taka sjálf á
okkar forsendum. En ég get
sagt þér að það skilur enginn
klukkan 17.00 á þriðjudegi án
formála eða eftirmála.
Skilnaður er alltaf ferli
sem fólk þarf að leyfa sér að
ganga í gegnum og stundum
þarf að taka eitt skref áfram
og tvö aftur á bak. Í slíku
ferli getur fólk mátað sig við
aðra aðila, sumir stytta ferlið
verulega með því að halda
framhjá og aðrir snarhætta
við þegar þeir finna að grasið
er ekki alltaf grænna hinum
megin.
Mögulega ert þú í skiln-
aðarferli. Mögulega kalla
þessar tilfinningar á að þú
leggir vigt og vinnu í núver-
andi hjónaband þitt. Andaðu
inn og hlustaðu eftir því á
hvorri vegferðinni þú ert. n
ÆTTI ÉG AÐ FARA FRÁ
MANNINUM MÍNUM?
Ég velti helst fyrir mér hvers
vegna þú setur samasem-
merki á milli þess að verða
skotin í vinnufélaga og að
enda hjónaband þitt.