Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Qupperneq 36

Dagblaðið Vísir - DV - 01.05.2020, Qupperneq 36
36 FÓKUS 1. MAÍ 2020 DV Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og undir fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Sérfræðingur svarar Kristín Tómasdóttir, hjónabandsráðgjafi með meiru, hefur gengið til liðs við DV og mun svara spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börn og ástina. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu frá konu sem ber tilfinningar til einstaklings sem er ekki eiginmaður hennar. H æ, Kristín. Mér finnst ég vera í erfiðri stöðu þessa dagana, en svo er mál með vexti að ég held að ég sé orðin ástfangin af samstarfsmanni mínum. Ég og maðurinn minn erum búin að vera gift í 20 ár og erum komin á miðjan aldur, börnin orðin voða sjálfstæð og lífið snýst mikið bara um vinnuna. Ég hugsa stöðugt um samstar fsfélagann, roðna eins og smástelpa þegar hann er nálægt mér og hef tekið eftir því að ég er farin að mála mig og klæða mig eins og ég sé á leiðinni á ball fyrir vinnu- daginn. Síðan sakna ég hans svakalega þegar hann er ekki í vinnunni og verð hálf ómöguleg. Vandamálið mitt er í raun þetta, fyrst ég finn fyrir tilfinningum til sam- starfsfélaga míns, þýðir það að hjónabandið mitt sé búið? Ætti ég að fara frá mannin- um mínum eða er þetta ein- hver grár fiðringur? Ekkert óeðlilegt Sælar og takk fyrir spurning- una. Starfið mitt gengur að svo miklu leyti út á að spyrja spurninga. Oftast finna skjól- stæðingar mínir lausn sinna mála í sínum eigin svörum. Þess vegna kitlar það mig að vita meira um hvað liggur að baki líðan þinni en fyrst ég get ekki spurt þá fylli ég í eyðurnar og vona að það komi ekki að sök. Ég velti helst fyrir mér hvers vegna þú setur sama- semmerki á milli þess að verða skotin í vinnufélaga og að enda hjónaband þitt. Er einhver annar vandi til stað- ar í hjónabandinu? Langar þig út úr því? Ef ekki, þá get ég sagt þér að margir sem eiga í parsamböndum finna fyrir tilfinningum til ann- arrar manneskju á einhverj- um tímapunkti. Það fer svo alveg eftir því hvers eðlis til- finningarnar eru og hvernig viðkomandi bregst við þeim, hverjar afleiðingarnar verða. Algengt að þrá eitthvað sem er ekki í boði Hversu vel þekkir þú vinnu- félaga þinn? Byggja tilfinn- ingar þínar á fantasíum um hann eða raunverulegum samskiptum? „Ást við fyrstu sýn“ getur verið öryggistil- finning í tengslum við eitt- hvað sem þú þráir. Algengt er að þrá eitthvað sem er ekki í boði nema með því að ímynda sér það í annarri manneskju. Fantasíur fólks ríma oft ekki við lífsskoðanir. Fant- asíur eru hugmyndir og ímyndanir sem geta veitt sefjun þrátt fyrir að vera al- gjörlega á skjön við það sem sami einstaklingur myndi í raun vilja gera. Hugmyndin um vinnafélaga þinn, hvort sem hún er af tilfinninga- legum eða kynferðislegum toga, getur veitt þér ein- hverja nautn sem þú myndir mögulega ekkert fá út úr ef af henni yrði í raun og veru. Þá vitum við vel að þegar einhvern skortir eitthvað í parsambandi þá er auðvelt að leita annað eftir því sem ekki er uppfyllt. Út frá þeim forsendum sem þú gefur upp í spurningu þinni gef ég mér að það sé ekki allt eins og þú myndir vilja hafa það í hjónabandi þínu. Hefur þú rætt við maka þinn um það? Er kominn tími á að kaupa sér krumpugalla í stíl? Ef líf ykkar hjóna snýst fyrst og fremst um vinnuna, þá er ekkert undarlegt við að með tímanum líði hjónabandið fyrir það. Í góðum hjóna- böndum er til staðar vinátta og þar nýtur fólk samveru við hvort annað. Ef líf ykkar snýst um vinnuna, samvera ykkar er lítil og þú ert farin að líta í kringum þig, þá gæti verið ráð að reyna að finna þráðinn á milli ykkar hjóna á ný. Er kominn tími á að kaupa sér krumpugalla í stíl, golf- sett eða gönguskó? Búa til ánægjulegar stundir, skapa samtöl og minningar sem áður var ekki tími fyrir? Kannski gætir þú nýtt þetta skot til þess einmitt að bretta upp ermar og laga núverandi samband. Eins og ég væri nú örugg- lega góð í því, þá get ég ekki sagt neinum hvort hann eigi að vera eða fara í sínu sam- bandi. Það er ákvörðun sem við þurfum öll að taka sjálf á okkar forsendum. En ég get sagt þér að það skilur enginn klukkan 17.00 á þriðjudegi án formála eða eftirmála. Skilnaður er alltaf ferli sem fólk þarf að leyfa sér að ganga í gegnum og stundum þarf að taka eitt skref áfram og tvö aftur á bak. Í slíku ferli getur fólk mátað sig við aðra aðila, sumir stytta ferlið verulega með því að halda framhjá og aðrir snarhætta við þegar þeir finna að grasið er ekki alltaf grænna hinum megin. Mögulega ert þú í skiln- aðarferli. Mögulega kalla þessar tilfinningar á að þú leggir vigt og vinnu í núver- andi hjónaband þitt. Andaðu inn og hlustaðu eftir því á hvorri vegferðinni þú ert. n ÆTTI ÉG AÐ FARA FRÁ MANNINUM MÍNUM? Ég velti helst fyrir mér hvers vegna þú setur samasem- merki á milli þess að verða skotin í vinnufélaga og að enda hjónaband þitt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.