Íþróttablaðið - 01.08.1977, Page 25
heldur taka nokkuð af umsögnum ís-
lenzku fréttamannanna, sem fylgdust
með leikjum ytra.
Skortir lýsingarorð
Ágúst I. Jónsson, Morgunblaðinu, um
Hollandsleikinn: Ásgeir Sigurvinsson, er
sannarlega leikmaður í fremstu röð og
var hann heilinn í leik íslenzka liðsins í
a gærkvöldi. Ætti undirritaður að gefa
einkunn fyrir þennan leik væri 5 fyrir
snillinginn frá Standard Liege í það
minnsta.
Um Belgaleikinn: Ásgeir Sigurvinsson
var í sérflokki íslenzku leikmannanna í
þessum leik, sem og gegn Hollandi.
Hefði verið gaman að sjá hann í belgíska
landsliðsbúningnum, en þar voru jafn-
ingjar hans á ferð. Ekki er ólíklegt að
einnig þar hefði hann verið fremstur í
flokki, því Ásgeir virkaði sem beztur
leikmannanna á vellinum, en það ber þó
að hafa í huga að auðveldara er að vera
beztur í slöku liði, en sterkastur meðal
snjallra leikmanna.
I>aö var hann
sem fékk mest rúm í blöð-
unum ytra, jafnvel
meira en mestu uppáhalds-
leikmennimir í viðkom-
andi landsliðum66
STÓRVELDIÐ
ÁSGEIR
SIGURVINSSON
Hallur Símonarson, Dagblaðinu, um
Hollandsleikinn: Ásgeir fyrirliði sýndi
snilldartakta í leiknum og hef ég ekki
séð hann leika betur. Gaf beztu Hol-
lendingunum ekkert eftir, nema síður
væri.
Um Belgaleikinn: Ásgeir er orðinn
hreinn snillingur. Yfirburðamaður á
vellinum, framan af. Áberandi bezti
maður íslands.
Gylfi Kristjánsson, Vísi, um Hol-
landsleikinn: Frammi var Ásgeir Sigur-
vinsson sannkallaður kóngur í ríki sínu
og máttu Hollendingarnir svo sannar-
lega vara sig þegar hann var með bolt-
ann.
Um Belgaleikinn: Bezti maður vallar-
ins var án efa og tvímælalaust Ásgeir
Sigurvinsson. Hreint stórkostlegur leik-
maður, sem á fáa sína líka.
Sigmundur Steinarsson, Tímanum,
um Hollandsleikinn: Ásgeir Sigurvins-
son átti stórleik í gærkvöldi og gaf beztu
mönnum Hollands ekkert eftir. Hann
sýndi allar sínar beztu hliðar og leikur
íslands byggðist í kringum hann.
Um Belgaleikinn: Ásgeir Sigurvinsson
átti stórleik og var maður vallarins. Það
skapaðist alltaf einhver glundroði í vörn
Belga þegar hann nálgaðist mark þeirra.
Einar Karlsson, Þjóðviljanum, um
Hollandsleikinn: Ásgeir Sigurvinsson
sýndi hvað eftir annað og sannaði að
hann er einn bezti knattspyrnumaður
veraldar.
Um Belgaleikinn: Ásgeir sýndi hvað
eftir annað meistaratakta sína og það
var í raun óheppni að þrumuskot hans í
tvígang skyldu ekki hitta fyrir net-
möskva.
SJÁ EINNIG NÆSTU OPNU
25