Íþróttablaðið - 01.08.1977, Side 39
sa þakíð
einnig hann er kominn í raðir hinna beztu,
og með mjög góðri frammistöðu á heims-
leikum stúdenta nokkru síðar undirstrikaði
Vilmundur getu sína. En hvorki sigurinn á
Reykjavíkurleikunum, né góð frammistaða
á heimsleikunum var Vilmundi neitt stór-
takmark. Hann ætlar sér enn meira, — er
ákveðinn í að komast enn framar í hóp
hinna beztu, og þeir sem fylgzt hafa með
honum og þekkja elju hans og áhuga, eru
ekki í vafa að því takmarki muni hann ná,
jafnvel strax á Evrópumeistaramótinu í
frjálsum íþróttum sem fram mun fara næsta
sumar. Ólympíuleikarnir í Moskvu eru
Vilmundi aðaltakmarkið eins og er, hvort
sem hann keppir þar í 100 og 200 metra
hlaupi, eða í 400 metra hlaupi.
Vilmundur Vilhjálmsson er 23 ára Reyk-
víkingur. Um hann má segja að hið forn-
kveðna hafi sannast að eplið falli ekki langt
frá eikinni, þar sem faðir Vilmundar var
kunnur frjálsíþróttamaður á sínum tíma,
Vilhjálmur Vilmundarson, sem keppti í
kúluvarpi á Ólympíuleikunum í London
1948 og stóð sig með miklum ágætum. Var
Vilhjálmi spáð miklum frama sem íþrótta-
manni, en því miður hætti hann keppni
alltof fljótt.
— Ætli það megi ekki segja að íþrótta-
áhuginn sé mér í blóð borinn, sagði Vil-
mundur er Iþróttablaðið átti viðtal við hann
skömmu áður en hann hélt til Englands úr
sumarleyfi sínu, en Vilmundur stundar líf-
eðlisfræðinám við háskóla þar. — Það var
ekki bara pabbi sem hafði áhuga á íþrótt-
um, sagði Vilmundur, — heldur einnig
mamma. Hún lék á sínum tíma handknatt-
leik með KR og varð Reykjavíkurmeistari í
þeirri íþróttagrein. íþróttir og íþróttamenn
bar því oft á góma heima hjá mér, þegar ég
var ungur og sjálfsagt hefur þessi heimilis-
áhugi beint mér inn á íþróttabrautina.
Knattspyrna með
Víkingi
Þótt foreldrar Vilmundar hefðu stundað
frjálsar íþróttir og handknattleik urðu þess-
ar íþróttagreinar þó ekki fyrir valinu hjá
honum til að byrja með, heldur knatt-
spyrna. Lék Vilmundur með Víkingi í öllum
yngri flokkunum og þótti mjög efnilegur
knattspyrnumaður, enda unnu Víkingar
mörg mót á þessum tíma. Meðal þeirra sem
léku í Víkingsliðinu með Vilmundi voru
þeir Stefán Halldórsson sem nú er atvinnu-
maður í knattspyrnu með belgíska liðinu
Royal Union og Gunnar Örn Kristjánsson,
einn af beztu knattspyrnumönnum Víkinga.
Fyrstu kynni Vilmundar af frjálsum
íþróttum var þátttaka í Hljómskálahlaupi
ÍR, hjá Guðmundi Þórarinssyni, en síðan
fór hann á frjálsíþróttanámskeið hjá KR
árið 1968, og má vel vera að það námskeið
hafi orðið til þess að beina huga hans frekar
að þessari íþróttagrein. Um skipti sín úr
knattspyrnu í frjálsar íþróttir, sagði Vil-
mundur:
— Það kemur margt til að ég valdi frjálsar
íþróttir. Mér fannst alltaf gaman í knatt-
spyrnunni og á knött út í Englandi sem ég
leik mér oft með þegar ég er að hita upp. Ég
lék með Víkingi síðast í 3. flokki. en þegar
ég átti að ganga upp og fara í 2. flokk, fór
áhuginn að minnka hjá mér — mest vegna
þess að mér fannst svo mikil læti og harka í
knattspyrnunni. í eðli mínu er ég mjög ein-
þykkur maður og alls ekki félagslyndur,
þannig að erillinn í kringum knattspyrnuna
átti ekki við mig. Þá var annað sem fór í
39