Íþróttablaðið - 01.08.1977, Blaðsíða 61
ÍMMÉl
ÍÞRÓTTIR Tt ÚTILÍF
Mjög góð og
óvænt frammi-
staða fatlaðra
í Stoke-Mand-
villeleiknum
Fatlað íþróttafólk frá fslandi tók í
sumar í fyrsta sinn þátt í Stoke
Mandevill leikunum í Bretlandi og
stóð sig með mikilli prýði. Hörður Bardal
(lamaður á öðrum fæti) vann til tveggja
bronzverðlauna. f 100 m skriðsundi á 1:16,6
og í 100 m baksundi á 1:31,4 mín. Arnór
Pétursson (lamaður á báðum fótum) hlaut
bronzverðlaun í lyftingum, lyfti 80 kg. Aðrir
keppendur stóðu sig einnig með ágætum en
voru óheppnir að því leyti að lenda í upp-
hafi á móti mjög sterkum mótherjum, sem
m.a. komust í úrslit.
Nýlega sæmdi fþróttasamband fs-
lands þrjá menn viðurkenningum
fyrir mikil og heilladrjúg störf í
þágu íþróttanna.
Sveinn Zoéga hlaut heiðursorðu fSf.
Sveinn var alhliða íþróttamaður á yngri ár-
um og hefur ekki síður lagt fram drjúgan
skerf til félagsmálanna. Sat hann í stjórn
knattspymufélagsins Vals í 18 ár, þar af 9 ár
sem formaður fulltrúaráðs félagsins. Auk
þess átti hann sæti í stjórn KR í 13 ár, þar af
formaður í 5 ár og í stjórn Knattspymu-
sambands fslands sat hann í 14 ár.
Guðsveinn Þorbjömsson og Sveinn
Ragnarsson voru sæmdir gullmerki fSÍ.
Guðsveinn er einn af stofnendum Hauka
í Hafnarfirði og keppti fyrir félagið árum
saman í knattspyrnu og handknattleik. Síð-
an átti hann sæti í stjórn Hauka í 20 ár, þar
af formaður í 17 ár.
Sveinn Ragnarsson hefur verið virkur fé-
lagi í íþróttasamtökunum frá barnæsku í
knattspyrnufélaginu Fram og keppti fyrir
félagið bæði í handknattleik og knatt-
spyrnu. Hann hefur sinnt félagsmálum
mikið, sat m.a. í stjórn Fram í 15 ár og í
stjórn HSf í 7 ár. Einnig hefur Sveinn átt
sæti í dómstólum og fjölda nefnda.
Myndin hér að ofan var tekin á fundi
framkvæmdastjórnar ÍSÍ, þar sem afhend-
ing viðurkenninganna fór fram og er Sveinn
Zoega að þakka fyrir hönd þeirra félag-
anna.
Þátttakendur íslands voru þessir: Elsa
Stefánsdóttir í borðtennis; Guðný Guðna-
dóttir í borðtennis; Amór Pétursson í
spjótkasti, lyftingum og borðtennis; Viðar
Guðnason í lyfttingum og borðtennis; og
Hörður Bardal í sundi, 100 m frjálsri aðferð
og 100 m baksundi. Fararstjóri var Páll B.
Helgason, orku- og endurhæfingalæknir og
honum til aðstoðar Magnús B. Einarsson
læknir. Þjálfarar voru Júlíus Arnarson og
Magnús H. Ólafsson.
Mynd þessi var tekin daginn áður en
fatlaða fólkið lagði upp í ferðina og með
þeim á myndinni eru forystumenn úr
íþróttahreyfingunni og samtökum fatlaðra.
Er tíðindamaður fþróttablaðsins hitti
fólkið við heimkomuna lét það í ljósi mikla
ánægju með ferðina og þátttökuna, sem þó
hefði á köflum verið mjög erfið. Er enginn
vafi á að þessi fyrsta þátttaka og góða
frammistaða verður mikil lyftistöng og afl-
gjafi í áframhaldandi starfsemi á þessum
vettvangi og kom það reyndar þegar fram á
sjálfum leikunum að fatlað íþróttafólk
annarra þjóða hefur mikinn áhuga á að taka
upp samskipti við jafningja sína hér á landi.
61