Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.06.1986, Side 7

Íþróttablaðið - 01.06.1986, Side 7
Ritstjöraspiall ÞORGRÍMUR ÞRÁINSSON Aðeins níu mánuðum eftir jarðskjálftana miklu í Mexíkó er landið orðið vettvangur eins mesta íþróttaviðburðar heims — úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Opnunar- leikur úrslitakeppninnar verður leikinn 29. maí en réttum mánuði síðar verða nýir heimsmeist- arar væntanlega krýndir. Líkast til mun athygli allra knattspyrnuáhugamanna heims beinast að hverju fótmáli snillinganna i Mexíkó. Um tíma leit út fyrir að úrslitakeppnin þyrfti að fara fram í öðru landi en íbúar í Mexíkó hafa unnið hörðum höndum að endurbyggingu mannvirkja — margir eiga þó enn um sárt að binda. Bestu knattspyrnumenn heims verða í sviðsljósinu í Mexíkó en líkast til munu nýjar stjörnur skjóta upp kollinum. Ógjörningur er að segja til um hverjir eru líklegastir til að hljóta hinn eftir- sótta titil en margir eru tilnefndir. í slíkri keppni er ekki eingöngu spurning um að vera með — flestir ætla sér að sjálfsögðu að sigra. Á sama tíma og boltinn rúllar í Mexíkó heldur deildarkeppnin áfram hér á landi. Líklega falla stjörnur íslands í skuggann meðan þeir bestu eru á skjánum en engu að síður eru íslenskir knattspyrnumenn á mikilli framfarabraut. Verum minnug þess að með örlítilli heppni hefði „litla“ ísland hæglega getað verið meðal þátttökuþjóða í Mexíkó! Sá tími kemur vonandi að við teljumst meðal þeirra bestu í heiminum. Þegar bestu knattspyrnuþjóðir heims kvíða því að leika á íslandi, hljótum við að vera á réttri leið. Áður fýrr þótti ísland léttur andstæðingur — samanber hið fræga tap 2:14 fyrir Dönum um árið. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og slík úrslit heyra sem betur fer sögunni til. Mikil og góð uppbygging á sér stað hjá landsliðum íslands — efniviður er nægur og verða verkefni því að vera fyrir hendi til þess að leikmenn öðlist þá reynslu sem skiptir ávallt sköpum þegar að alvörunni kemur. Forsíðumynd er af Bjarna og Sævari. Ljósmynd: Þorgrímur Þráinsson. Ritstjóri: Þorgrímur Þráinsson Auglýsingastjóri: Hafsteinn Viðar Jensson Skrifstofa ritstjórnar: Ármúla 38 Útgefandi: Frjálst framtak hf. Stjórnarformaður: Magnús Hreggviðsson Skrifstofa og afgreiðsla: Ármúla 18 Símar 82300 — 685380 Áskriftargjald kr. 565,00 (hálft ár) Hvert eintak í áskrift kr. 188,33 Hvert eintak í lausas. kr. 229,00 Setning, umbrot, filmuvinna prentun og bókband: Prentstofa G. Benediktssonar Litgreining kápu: Prentmyndastofan. Málgagn íþróttasambands íslands HÉRAÐSSAMBÖND INNAN ÍSÍ: HÉRAÐSSAMBAND SNÆFELLSNES- OG HNAPPADALSSÝSLU HÉRAÐSSAMBAND STRANDAMANNA HÉRAÐSSAMBAND SUÐUR-ÞINGEYINGA HÉRAÐSSAMBAND VESTUR-ÍSFIRÐINGl HÉRAÐSSAMBAND BOLUNGARVÍKUR HÉRAÐSSAMBANDIÐ SKARPHÉÐINN ÍÞRÓTTABANDALAG AKRANESS ÍÞRÓTT ABANDALAG AKUREYRAR ÍÞRÓTTABANDALAG HAFNARFJARÐAR ÍÞRÓTTABANDALAG ÍSAFJARÐAR ÍÞRÓTTABANDALAG KEFLAVÍKUR ÍÞRÓTTABANDALAG ÓLAFSFJARÐAR ÍÞRÓTTABANDALAG REYKJAVÍKUR IÞRÓTTABANDALAG SIGLUFJARÐAR ÍÞRÓTT ABANDALAG SUÐURNESJA fÞRÓTTABANDALAG VESTMANNAEYJA UNGMENNA- OG ÍÞRÓTT ASAMBAND AUSTURLANDS UNGMENNASAMBAND A-HÚNVETNINGA UNGMENNASAMBAND BORGARFJARÐAR UNGMENNASAMBAND DALAMANNA UNGMENNASAMBAND EYJAFJARÐAR UNGMENNASAMBAND KJALARNESSÞINGS UNGMENNASAMBAND SKAGAFJARÐAR UNGMENNASAMBAND V-HÚNVETNINGA UNGMENNASAMBAND V-SKAFTFELLINGA UNGMENNASAMBANDIÐ ÚLFLJÓTUR UNGMENNASAMBAND N-ÞINGEYINGA SÉRSAMBÖNDINNAN i'Sl': BADMINTONSAMBAND ÍSLANDS BLAKSAMBAND fSLANDS BORÐTENNISSAMBAND ÍSLANDS FIMLEIKASAMBAND ÍSLANDS FRJÁLSÍÞRÓTTASAMBAND fSLANDS GLÍMUSAMBAND ISLANDS GOLFSAMBAND ÍSLANDS HANDKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS ÍÞRÓTT ASAMBAND FATLAÐRA JÚDÓSAMBAND ÍSLANDS KARATESAMBAND ÍSLANDS KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLANDS KÖRFUKNATTLEIKSSAMBAND ÍSLANDS LYFTINGASAMBAND ÍSLANDS SIGLINGASAMBAND ÍSLANDS SKIÐASAMBAND ÍSLANDS SKOTSAMBAND ÍSLANDS SUNDSAMBAND ÍSLANDS 7

x

Íþróttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.