Íþróttablaðið - 01.06.1986, Blaðsíða 43
Mexíkó ’86
ALSÍR
Alsír hefur skráð nafn sitt á spjöld sögunnar með því að vera fyrst
Afríkuþjóða til að komast í í úrslitakeppnina tvisvar í röð. Enginn efast
um þeirra möguleika eftir sigur á Vestur-Þjóðverjum í heimsmeistara-
keppninni 1982 — sem hlutu reyndar silfrið þegar upp var staðið.
Þrátt fyrir meiðsli eins fykilmanna liðsins,Lakhdar Belloumi í undan-
keppninni komist liðið taplaust til Mexíkó. Eina vandamálið fyrir úr-
slitakeppnina er sú staðreynd að margir bestu leikmanna Alsír leika er-
lendis. Þeirra á meðal er framherjinn skæði Rabah Madjer sem leikur
með F.C. Porto í Portúgal. Landsliðið ætti þó að njóta þess að hluti
leikmanna er með reynslu á við bestu atvinnumenn heims. Knattspyrna
var upphaflega kynnt Alsírmönnum í kringum 1980 en deildarkeppni
þar í landi hófst ekki fyrr en í byrjun sjötta áratugarins þegar þjóðin
fékk sjálfstæði. Rúmar 15.000.000 manna búa í Alsír en knattspyrnu-
menn þar í landi eru um 60.000. Þjálfari landsliðs Alsír heitir Rabah
Saadane. Spurningin í Alsír er sú hvort að Alsír verði eitthvað annað en
áhorfendur.
BELGÍA
Belgísk knattspyrna hefur öðlast mikla virðingu í knattspyrnuheimin-
um síðan atvinnumennska var þar tekin upp fyrir 30 árum. Landsliðið
varð í 2.sæti í Evrópukeppninni 1980 og komst í 2.umferð úrslita-
keppni HM á Spáni fyrir 4 árum. Auk þess hefur liðið Anderlecht og
leikmenn eins og Jan Ceulemans og Jean-Marie Pfaff aukið hróður
Belglíu enn fremur. Belgía skipar sérstakan sess í sögu heimsmeistara-
keppninnar því landið var eitt íjögurra Evrópuianda sem tók þátt í
vígsluúrslitum HM í Uruguay 1930. Þá var engin undankeppni haldin.
Leikmenn Belgíu þurftu sannarlega að hafa fyrir því að komast til
Mexíkó. Þeir lentu í 2.sæti á eftir Póllandi í sínum riðli í undankeppn-
inni og sigruðu Holland naumlega í úrslitaleikjum um sæti í Mexíkó.
Belgar komust áfram á marki skoruðu á útivelli. Úrslitamarkið skoraði
varnarmaðurinn Georges Grun á síðustu mínútu leiksins. Án efa eitt
mikilvægasta mark sem Belgi hefur skorað. Landsliðið er frægt fyrir
það að standa sig vel á móti bestu landsliðum heims í stórmótum og
nægir þar að nefna sigur þeirra gegn Argentínu á HM á Spáni 1982.
Landsliðsþjálfari Belgíu heitir Guy Thys og hver veit nema liðið haldi
áfram að kom á óvart.
DANMÖRK
Knattspyrna hefur lengi verið vinsælasta íþróttin í Danmörku en
aðeins á síðustu árum hefur þjóðin náð að vekja á sér heimsathygli á
landsliðsmælikvarða. Meginástæðan er án efa hin mikla aukning frá-
bærra knattpyrnumanna frá Danmörku. Þeirra á meðal má nefna Mort-
en Olsen, Frank Arnesen, Sören Lerby, Mikael Laudrup, Preben Elkjær
og Jesper Olsen. Sá sem hafði hvað mest áhrif í upphafi var Allan Sim-
onsen. Hann var brautryðjandi danskra knattspyrnumanna á erlendri
grund — lék með Borussia Mönchengladbach og var tvívegis valinn
Knattspyrnumaður Evrópu. Danska landsliðið vakti gífurlega athygli í
síðustu Evrópukeppni en þá var liðið slegið út af Spánverjum í víta-
spyrnukeppni í undanúrslitum. Nú leikur liðið í úrslitum HM í fyrsta
skipti. Sjálfstraustinu og hæfileikunum sem einkenna liðið er vandlega
stjórnað af þjálfaranum Sepp Piontek fyrrum bakverði V-þýska lands-
liðsins. En landslið Dana er hið besta sem þjóðin hefur nokkru sinni átt
og gæti hæglega markað spor sín í sögu heimsmeistarakeppninnar.
43