Íþróttablaðið - 01.06.1986, Síða 12
Guðmundur
herjar Fram-hrognamál, pólsk-þýsk-
íslenska.
í 2. deildinni 1983 kom JÓHANNES
ATLASON og hjálpaði Andrei, og var
svo með okkur 1984. Jói er skemmti-
legur og góður karakter, og mjög
kröfuharður þjálfari, með „sérstaka"
rödd. Svo er hann einstaklega laginn í
að svekkja menn í „mórölskum" leik
sem við köllum „SEGJA“:
Síðast en ekki síst er það ÁSGEIR
ELÍASSON sem nú er með Fram-liðið
annað árið í röð. Geiri er einn albesti
þjálfari sem ég hef haft og hefur kennt
mér margt. Hann er taktískur og ein-
staklega góður þjálfari og á stóran þátt
í að mér gekk betur í fyrra en nokkru
sinni fyrr. Árangur liðsins talar líka
sínu máli. Það vantaði bara herslumun
til að öll mót ynnust í fyrra og nú eru
tveir titlar komnir."
Það er greinilegt að metnaðurinn er
í lagi hjá Guðmundi, enda segist hann
alltaf reyna að vinna, sama í hverju sé
keppt og við hverja, „jafnvel þó maður
tefli skák við „011a“.“
HVAÐ GERÐIST
1985
Guðmundur talar um herslumuninn
sem vantaði til að allt ynnist í fyrra, en
hvað gerðist? Hver er orsök þess að lið
sem hefur 10 stiga forystu um mitt
mót gloprar henni niður og endar í 4.
sæti?
„Á því er engin einhlít skýring, held-
ur margar og margþættar ástæður. Við
klikkum í krítískum leikjum, t.d. 2-6
gegn ÍA uppi á Skaga í furðulegasta
leik sem ég hef spilað. Það fannst mér
vera vendipunkturinn, en einnig má
nefna leikinn gegn Þrótti á Fögruvöll-
um, 1-1. Við leikmennirnir klikkuðum,
það er ekki spurning."
Hvað með 1. deildina í ár og mögu-
leika Fram?
„Það eina sem vantar hjá Fram nú er
betri árangur í 1. deild. Fram varð síð-
ast meistari 1972, svo það er löngu
kominn tími á okkur. í fyrra sögðum
við reyndar, ef ekki núna þá aldrei, en
nú er komið nýtt ár. Og sleppum við
við meiðsli verður Fram í fremstu röð.
Vinni leikmenn markvisst saman að því
að koma íslandsbikarnum í Safamýrina
getur það vel gerst. Við erum taplausir
Gummi lék um nokkurra ára skeið
með hljómsveitum.
í ár og ég vona að framhald verði þar
á.“
FASTIR LIÐIR EINS
OG VENJULEGA
Snúum okkur að „föstum liðum“,
Guðmundur.
— Eftirminnilegir leikir?
„Allir Evrópuleikirnir eru sérlega
minnisstæðir, þeir fyrstu gegn Hvid-
ovre ekki síður en leikirnir í haust. Það
var gaman að komast í 2. umferð og
vinna þá atvinnumannaliðið sterka
Rapid Vín hér heima (2-1, og skoraði
Guðmundur Torfason sigurmarkið:
innskot blm.). Bikarúrslitaleikirnir eru
sömuleiðis eftirminnilegir, þeir
ánægjulegu sem og hinir sem höfðu
svekkelsi í för með sér. Það er svo stutt
milli gleði og sorgar í þessu, en hvoru
tveggja er reynsla sem maður nýtur
góðs af. Úrslitaleikurinn í bikarnum
1980, gegn ÍBV, gleymist ekki. Ég
meiddist í nára, en við höfðum skipt
báðum leyfilegu varamönnunum inn á,
svo ég skrölti áfram en hafði hægt um
mig. Undir lok framlengingar fengum
við aukaspyrnu fyrir utan teig, sem
mér tókst að skora úr eftir að Marteinn
hafði truflað einbeitingu þeirra sem í
varnarveggnum stóðu og sent svo bolt-
ann til mín, 2-1 og kærkominn sigur.
Bikarúrslitin í fyrra voru einnig
skemmtileg, og fögnuðurinn ólýsan-
legur í leikslok er 3-1 sigur yfir ÍBK var
í höfn.“
í síðastnefnda leiknum átti Guð-
mundur Torfa sannkallaðan stórleik,
lagði upp tvö fyrstu mörkin sem Pétur
Ormslev skoraði, Ragnar Margeirsson
minnkaði muninn, en Gummi Torfa
kórónaði frábæra frammistöðu með
því að innsigla sigur Fram, 3-1. Er und-
irrituðum það til efs, að Guðmundur
Torfason hafi í annan tíma leikið betur.
SKEMMTILEGIR
MEÐSPILARAR OG
ERFIÐIR
ANDSTÆÐINGAR?
„Það er erfitt að draga einhvern út
úr af meðspilurunum, því það hefur
verið gott að spila með þeim öllum,
misgott að vísu eins og gengur. í fyrra
náðum við t.a.m. mjög vel saman nafn-
amir frammi, Steinsson og ég, með
Ómar Torfa skammt undan og Pétur,
Ásgeir og Kristin Jóns. aðeins aftar.
Það er mjög gott að spila með öllum
þessum mönnum.
Andstæðingarnir geta líka verið
skemmtilegir, t.d. Valsmaðurinn Guðni
Bergsson o.fl. sem eru léttir og hressir
á milli átakanna. Þorgrímur Þráinsson
og Jósteinn Einarsson í KR eru með
erfiðari varnarmönnum íslenskum og
svo má ég til með að nefna vin minn
Ársæl Kristjánsson, sem gert hefur mér
marga skráveifuna. Hann er einn sá al-
grófasti, og mætti gjarnan spara takk-
ana eins og sagt er. Þetta er ekkert
persónulegt, við erum góðir félagar
utan vallar.“
UPPÁHALDS-
LEIKMENN OG
UPPÁHALDSLIÐ?
Fyrsta uppáhaldið var Ásgeir Sigur-
vinsson. Hann var að verða stórt nafn í
íslenskri knattspymu um það leyti sem
ég var að byrja að æfa í Eyjum. Þegar í
3. og 2. flokki var hann orðinn afburða
leikmaður. Marteinn Geirs. var einnig
góður, hafði góð áhrif á lið og var
skemmtilegur meðspilari. Af erlendum
leikmönnum er Michel Platini númer
eitt, tvö og þrjú.
Mitt uppáhaldslið í ensku deildinni
12