Íþróttablaðið - 01.06.1986, Síða 14

Íþróttablaðið - 01.06.1986, Síða 14
19 háð undir nýju nafni, Mjólkurbikarinn — Bikar- keppni KSÍ. Fjöldi landsleikja verður hérlendis í sumar í öllum aldursflokkum. Sigfried Held hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari og væntir landinn mikils af störfum hans — bæði hvað varðar fræðslu- og uppbyggingarstarfsemi. ísland tekur þátt í und- ankeppni Ólympíuleikanna í fyrsta skipti síðan 1975. En stórviðburður ársins verður án efa landsleikur íslands og Frakklands 10.september í undankeppni Evrópukeppni landsliða. Þá mun besti knattspyrnumaður heims Michel Platini reyna að leika listir sínar á Laugardalsvellinum. Við vonum að sjálfsögðu að honum verði ekki kápan úr því klæðinu. Knattspyrnuáhugamönnum ætti ekki að leið- ast þessa dagana því nú er boltinn farinn að rúlla fyrir alvöru — bæði á íslandi og í úrslitakeppni HM í Mexíkó. Þegar hafa nokkrar umferðir verið leiknar í deildarkeppninni og vænta má mikillar spennu í öllum aldursflokkum og deildum. Margir góðir leikmenn hafa lagt skóna á hilluna eins og gengur — og enn aðrir hafa lagt land undir fót og leika erlendis. Nýir og efnilegir leik- menn skjóta upp kollinum í staðinn og er ís- lensk knattspyrna sannarlega ekki á flæðiskeri stödd hvað efnivið varðar. Knattspyrnuleikir á vegum KSÍ í sumar eru áætlaðir 1748 og er það töluverð fjölgun frá í fyrra. Átta ný lið taka þátt í íslandsmótinu í ár - öll leika þau í 4.deild. Bikarkeppni KSÍ verður

x

Íþróttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.