Íþróttablaðið - 01.06.1986, Blaðsíða 16
íslandsmótið 1986
VALUR - MIKLAR
BREYTINGAR!
FRAM - STUNDIN
RUNNIN UPP?
fslandsmeistarar Vals hafa orðið fyrir mikilli blóð-
töku. Fjórir reyndir fastamenn úr liðinu leika ekki
með í sumar og er það skarð fyrir skildi. Guðmundur
Þorbjörnsson gerðist atvinnumaður í Sviss að loknu
síðasta keppnistímabili. Sævar Jónsson fór til Noregs
og leikur með Brann undir stjórn Tony Knapp. Heim-
ir Karlsson þjálfar ÍR í sumar og síðast en ekki síst
lagði fyrirliði síðustu 5 ára Grímur Sæmundsen
skóna á hilluna. Valsmenn eiga þó marga unga og
efnilega stráka sem koma til með að fá smjörþefinn af
alvöru knattspyrnu í sumar. Nægir þar að nefna
Bergsvein Sampsted, Jón Grétar Jónsson og Anthony
Karl Gregory. Til liðs við íslandsmeistarana hafa
gengið nokkrir sterkir leikmenn s.s. Ársæll Kristjáns-
son, Ámundi Sigmundsson og Sigurjón Kristjánsson.
Vorleikir Vals gefa ekki tilefni til mikillar bjartsýni
því liðið lék ekki þá knattspyrnu sem einkenndi það í
fyrra. Ian Ross á greinilega erfitt verk fyrir höndum
við að móta nýtt lið og gæti það tekið nokkurn tíma.
Ofan á allt voru allt að 7 leikmenn Vals meiddir um
miðjan maí og var haft á orði að þeir ætluðu að
stofna sunddeild innan félagsins.
Þrátt fyrir allt má búast við að Valur blandi sér í
baráttu toppliðanna þó ólíklegt sé að liðið nái að
halda íslandsmeistarabikarnum á Hlíðarenda.
ÞJÁLFARI: Ian Ross
NÝIR LEIKMENN: Ámundi Sigmundsson (Víkingi)
Ársæll Kristjánsson (Þrótti) Sigurjón Kristjánsson
(ÍBK) Carlos (Portúgal) Hilmar Árnason (Fylki)
FARNIR FRÁ 1985: Guðmundur Þorbjörnsson (Bad-
en Sviss) Sævar Jónsson (Brann, Noregi) Heimir
Karlsson (ÍR) Grímur Sæmundsen (hættur) Kristinn
Björnsson (Stjarnan) Kristján Svavarsson (Austra)
Fram heldur uppteknum hætti og vinnur þá bikara
sem leikið er um á vorin. Liðið hefur virkað mjög
sannfærandi það sem af er sumri og brennir sig lík-
lega ekki aftur á því sem gerðist í fyrra — að missa
niður öruggt forskot. Leikmenn hljóta að vera orðnir
þyrstir í íslandsmeistarabikarinn sem liðið vann síð-
ast 1972. Liðinu er reyndar spáð titlinum í ár og
bendir allt til þess að það takist. Fram hefur á að
skipa bestu framlínumönnum landsins sem eru Guð-
mundarnir Torfason og Steinsson. Guðmundur
Torfason átti í fyrra sennilega sitt besta keppnistíma-
bil frá upphafi og hefur hann líklega verið nær kjöri
knattspyrnmanns ársins en nokkur annar. Arnljótur
nokkur Davíðsson - ungur og efnilegur strákur hefur
verið að blanda sér inn í framlínuna hjá Fram og
hefur aldeilis gert góða hluti. Sennilega eitt mesta
efni yngri leikmanna okkar. Annar nýliði hefur vakið
athygli í vor — sá er Gauti Laxdal. Stórefnilegur pilt-
ur. Þessir strákar koma til með að fylla þau skörð
sem Ómar Torfason og Ásgeir Elíasson skildu eftir —
en þau eru vandfyllt. Breiddin í Framliðinu er mjög
mikil og kemur hún til með að vega þungt þegar upp
er staðið. Líklega verða margir góðir leikmenn sem
kæmust nánast í hvaða lið sem er, að sitja á bekknum
og jafnvel uppi í stúku. Friðrik Friðriksson er orðinn
einn albesti markvörður landsins. Pétur Ormslev,
Viðar Þorkelsson og nánast hver og einn leikmaður
hafa leikið vel það sem af er og er 14 ára bið líklega
á enda.
ÞJÁLFARI: Ásgeir Elíasson
NÝIR LEIKMENN: Þórður Marelsson (Víkingi)
FARNIR SÍÐAN 1985: Ómar Torfason (Luzern Sviss)
Haukur Bragason (KA)
16