Íþróttablaðið - 01.06.1986, Page 19
íslandsmótið 1986
ÞÓR - STERKIR Á
HEIMAVELLI!
Þriðja sætið í l.deild 1985 er besti árangur sem
Þór hefur náð frá því liðið komst í l.deild. Akureyr-
ingarnir sætta sig ekki við neitt annað en að bæta
þann árangur og því ætti það ekki að takast? Liðið er
firnasterkt á heimavelli — tapaði þar aðeins tveimur
stigum í lyrra en árangur á útivelli verður liðið að
bæta ef þeir ætla sér stóra hluti. Þetta er ekki spurn-
ing um neitt annað en hugarfar. Liðið þykir leika
létta og skemmtilega knattpyrnu og hefur á að skipa
tveimur af skemmtilegustu framherjum íslands. Það
eru Halldór Áskelsson og Bjarni Sveinbjörnsson.
Halldór hefur þegar skapað sér nafn sem góður
landsliðsmaður. En sem betur fer eru þeir ekki einu
mennirnir í liðinu sem kunna eitthvað fyrir sér á gras-
inu því í Þór er fjöldi góðra leikmanna. Siguróli
Kristjánsson (Moli) kom skemmtilega á óvart sem ný-
liði og komst í 21 árs landsliðið. Hann á vafalítið eftir
að hrella andstæðingana í sumar. Skemmtilegur
strákur! Baldvin markmaður var meðal þeirra bestu í
l.deild og er geysilega vaxandi. Blaðamaðurinn síkáti
Kristján Kristjánsson fær að sleppa ritvélinni annað
slagið og leikur með Þór áfram. Sem sagt — liðið er
vænlegt til árangurs.
ÞJÁLFARI: Björn Árnason.
NÝIR LEIKMENN: Logi Einarsson (Leiftri) Þórarinn
Jóhannesson (Reyni Á) Fjölnir Guðmundsson (KA)
KR - KOMINN TÍMIÁ ÞÁ
KR-ingar urðu síðast íslandsmeistarar í knatt-
spyrnu 1968 og eru menn orðnir fremur hungraðir í
titil. Liðið hefur bæði frábærum þjálfara og leik-
mönnum á að skipa og er því ekkert að vanbúnaði.
Gordon Lee hefur gjörbreytt liðinu til hins betra og
leikmenn eru að sjálfsögðu einu ári reyndan en í
fyrra. Kjölfesta liðsins felst í leikmönnum á borð við
Ágúst Má Jónsson, Gunnar Gíslason, Jóstein Einars-
son, Stefán Jóhannsson, Sæbjörn Guðmundsson,
Willum Þórsson og Hálfdán Örlygsson. Ekki slæmur
mannskapur því enn fleiri ungir og efnilegir leikmenn
eru í liðinu. Öflugt unglingastarf KR er að skila ár-
angri og bera leikmenn eins og Rúnar Kristinsson,
Heimir Guðjónsson og Þorsteinn Guðjónsson þess
vitni. Allir þrír eru framtíðarleikmenn.
Auk þess hefur Vesturbæjarliðinu borist góður
liðsauki í landsliðsmanninum Lofti Ólafssyni og
Heimi Bergssyni frá Selfossi. Ef reyndustu leikmenn
ná að sýna sínar bestu hliðar er liðið til alls líklegt.
Gústi hefur loksins fengið náð fyrir augum landsliðs-
nefndar — sem hann á sannarlega skilið og gæti
frammistaða hans vegið þungt í sumar.
ÞJÁLFARI: Gordon Lee
NÝIR LEIKMENN: Loftur Ólafsson (Þrótti) Heimir
Bergsson (Selfossi)
19