Íþróttablaðið - 01.06.1986, Page 51
Drengjalandslið íslands
í knattspyrnu
Undirbúningur drengjalandsliðsins í knattspyrnu hefur
staðið yfir síðan í febrúar. Upphaflega byrjaði Lárus Lofts-
son þjálfari liðsins með 60 stráka á æfingu en síðan hefur
hópurinn verið skorinn niður. Sá hópur sem kynntur er í
íþróttablaðinu er aðeins forval því endanlegur hópur hefur
enn ekki verið valinn. Lárus á eftir að fylgjast með fleiri
strákum í Reykjavík og úti á landi þannig að enginn er
öruggur í landsliðið enn sem komið er.
Strákarnir hafa æft saman í nokkurn tíma og verður
æfingum íjölgað fram í júní. Stefnan er sett á Norðurlanda-
mótið sem verður í Danmörku í júlí. Evrópukeppni Drengja-
landsliða er síðan í haust en ekki hefur enn verið dregið í
riðla í þeirri keppni.
Sérstakar æfingabúðir verða haldnar á Laugarvatni í viku
í sumar fyrir drengjalandsliðið, unglingalandsliðið og úr-
valdslið úr 4. aldursflokki. Þessi vika er hugsuð sem æfing
fyrir Evrópukeppni landsliðanna.
Að sögn Lárusar Loftssonar þjálfara fer hann um Norður-
og Austurland dagana 14. og 15. júní til að fylgjast með
strákum sem koma til greina í landsliðið. Sem stendur eru í
hópnum eingöngu strákar frá Suð-Vesturlandshorninu en
það getur allt eins breyst. „Strákar utan af landi eiga jafn
mikla möguleika í liðið eins og þeir sem leika á Reykjavíkur-
svæðinu. Svo geta forráðamenn liða úti á landi hæglega bent
okkur á þá stráka sem koma til greina í hópinn“, segir Lárus.
— Eru þetta efnilegir strákar?
„Breiddin í þessum aldurshóp er ekki mikill og það háir
okkar en þetta eru efnilegir strákar. Það vantar nokkur félög
sem hafa ekki fulltrúa í liðið. Verkefnaskortur er enginn þvf
alltaf er eitthvað um að vera. Strákarnir eru áhugasamir og
alltaf til í leiki og æfingar".
— Kemur Sigfried Held til með að hafa einhver afskipti
af liðinu?
„Það er ekki ólíklegt. Ég vona að ég eigi eftir að hafa góð
samskipti við hann og að hann komi með hugmyndir sem
eru ekki til góða“.
— Hugsið þið ekki til framtíðarinnar þegar um val á
landsliði er að ræða?
„Það er alltaf ákveðinn stígandi í þessu hjá landsliðinu.
Að sjálfsögðu erum við ekki bara að tjalda til einnar keppni.
Hvað undirbúning varðar horfum við alltaf til A-landsliðsins
— við verðum að horfa fram á veginn. Reynslan hefur sýnt
að þeir strákar sem leika með yngri landsliðunum hafa skil-
að sér í A-landsliðið. Strákarnir þurfa ætíð að hafa næg verk-
efni svo ekki myndist eyða hjá þeim. Við verðum að halda
þeim við efnið“, sagði Lárus að lokum.
Lárus Loftsson þjálfari
51