Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 3
Ritstjóraspjal 1
Stjórnmálamenn þessa lands eru samir við sig. Nú fyrir skömmu
sendi ríkisstjórnin frá sér frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1990. Á
blaðsíðu 64 í þessu merka frumvarpi sést svart á hvítu hvaða skilning
ráðamenn þjóðarinnar hafa á íþróttastarfseminni á íslandi. Skiln-
ingsleysi þeirra er algjört og er greinilegt að þessir „merku" menn
átta sig ekki á mikilvægi íþrótta og heilbrigðis í lífi landsmanna.
íþróttasamband íslands óskaði eftir 54 milljónum fyrir árið
1990 en fékk 21,4 milljónir. Á árinu 1988 námu fjárframlögin 24
milljónum en sú upphæð nam rétt tæpum 2% af kostnaði við rekstur
íþróttahreyfingarinnar. Eins og forráðamenn ÍSÍ segja réttilega, þarf
að leita til ríkja þriðja heimsins til þess að finna samjöfnuð. Þess má
til gamans geta að þegar Albert Guðmundsson var fjármálaráðherra
fékk ÍSÍ úthlutað 26,2 milljónum fyrir árið 1987. Skerðingin á fram-
lögunum með tilliti til verðbólgu er því ekki bara brosleg heldur
hreint hlægileg. Það verður ánægjuleg stund þegar ráðamenn þjóð-
arinnar átta sig á því að stuðningur við íþróttahreyfinguna stuðlar að
heilbrigði einstaklingsins því hann skilar sér í sparnaði í heilbrigðis-
kerfinu.
Meðal annarra fjárframlaga til íþróttahreyfingarinnar fyrir árið
1990 má nefna að Ólympíunefnd íslands fær 3 milljónir, Ólympíu-
nefnd fatlaðra 1,1 milljón, glíman (íslensk þjóðaríþrótt, kynning í
skólum) 2 milljónir og stórmeistarar okkar í skák fá 5,2 milljónir.
Eflaust blinda lottótekjur íþróttahreyfingarinnar ráðamenn
þjóðarinnar en ef þeir myndu nenna að afla sér upplýsinga um það
hvernig þær tekjur skiptast fengju þeir eflaust bakþanka.
Það er dálítið skondið að sjá hversu vel er stutt við bakið á
stórmeisturum okkar í skák. Hvers vegna er ekki stutt við bakið á
öðrum afreksmönnum í íþróttum? Hvers eiga þeir að gjalda? Hvers
vegna er verið að snobba fyrir skákmönnum? Það er kominn tími til
þess að aðrir afreksmenn fái að sitja við sama borð og þeir!
HÉRAÐSSAMBÖNDIIÍNÁN fSÍ: HÉRADSSAMBANBIÐ IIIÍAFN VH.ÖKI HÉRAÐSS AMBAND SNÁFÉIXSNES- OG HNAPPADALSSÝSLU ÍÞKÓTTABANDALAG VESTMANNAEYJA FIMLEIKASAMBAND ÍSLÁNDS UNGMÉNNA- ÖG iÞRÓTTASAMBAND FRJÁLSÍÞRÖTTASAMBAND fSLÁNDS AÚSTURLANDS Gl IMLSAMBAM.) ÍSLA.NT'S UNGMENNASAMBAND ATIUNVE: NTNGA GOLFSAMBAND ÍSLANDS :
HÉRADSSAMBAND strandamanna HÉRAÐSSAMBANÐ SÖÐUR-ÞINGEYINGA HÉRADSSAMBAND VESTlíR-fSFlRÐINGA ; 1 NGMKNNASAMBANI) B0RGARFJARÐAR FíANDKNATTLEIKSSAMBAND ÍBI.AXDS UNGMENNASÁMBAND DALAMANNA 1 IF.S 1AIÞRÖTI ASA.MíiAN! > IM AVDS UNGMÉNNASAMBAND EYJAFJARDAR fÞRÓTTASAMBANDTSLANDS
nbKArlooAMDAiNl,) riULUÍNÓAK V ÍKUK HÉRAÐSSAMBANDIÐ SKARPHÉÐINN ÍÞRÖTTABANDALAG AKRANESS UNGMENNASAMBAND SKAGAFJARÐAR KARATESAMBAND ÍSLANDS UNGMENNASAMBAND V-HÚNVETNINGA : ! KNATTSPYRNUSAMBAND ÍSLÁNDS
IPRO11 AdANDALAG AKUKe.xRAR ÍÞRÓTTABANÐALAG HAFNARFjARÐAR ÍÞRÓTTABANDALAG ÍSÁFjARÐAR ÍÞRÓTTABANDALAG KEFLAVÍKUR ÍÞRÓ'ITABANDALAG ÖLAFSFJARDÁR (ÞRÖTTABAN! IAI.AG RKVKJAVIKUR fÞRÓTTABANDALAG SIGLUFJARDAR ÍÞRÓTTABANDALAG SI.TiURNKSJA UNGMENNASAMBANDIÐ ÚLFUÓTUR LYFTINGASAMBAND ÍSLANDS UNGMENNASAMBAND N-ÞINGEYINGA SIGLINGASAMBAND ÍSLANDS SKÍÐASAMBAND ÍSI.ANDS SÉRSAMBÖNDINNAN ÍSf; SKOTSÁMBAND ÍSLANDS BAD.VIINTONSAMBAND ÍSLANDS SUNDSAMBáND fSLANDS BLÁKSAMBAND ÍSLANDS TENNISSAMBAND ÍSLANDS BORÐTENNISSAMBAND ÍSLANDS
Forsíðumyndina af Kristjáni Arasyni
tók Grímur Bjarnason.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þorgrímur Þráinsson
Beinn sími ritstjóra: 685057
Ritstjórnarfulltrúi ÍSÍ:
Stefán Snær Konráðsson
Ljósmyndarar: Grímur Bjarnason,
Kristján Einarsson,
Gunnar Gunnarsson
Skrifstofa ritstjórnar:
Bíldshöfða 18. Sími 685380
Aðalritstjóri:
SteinarJ. Lúðvíksson
Framkvæmdastjóri:
Halldóra Viktorsdóttir
Áskriftargjald kr. 1.020,00 (jan.-jún.)
Hvert eintak í áskrift kr. 340,00
Hvert eintak í lausasölu kr. 389,00
Áskriftarsími: 82300
Utgefandi: Frjálst framtak hf.
Skrifstofa og afgreiðsla:
Ármúla 18, sími 82300
Öll réttindi áskilin varðandi
efni og myndir.
Prentstofa G. Benediktssonar hf.
3