Íþróttablaðið - 01.10.1989, Side 9
ík
Jón Grétar Jónsson hafði sannarlega
ástæðu til að fagna, því hann lék ein-
staklega vel í sumar.
Guðjón Þórðarson kampakátur
ásamt Gauta Laxdal og Erlingi Kri-
stjánssyni.
skjóli aftimburstafla, að stofna Knatt-
spyrnufélag Akureyrar því í dag er
félagið eitt öflugasta íþróttafélag
landsins og íslandsmeistari í blaki og
knattspyrnu.
Strákarnir í meistaraflokki KA í
knattspyrnu skutu öllum andstæð-
ingum sínum ref fyrir rass á nýaf-
stöðnu íslandsmóti og hömpuðu bik-
arnum eftirsótta í lokin. Þar með
brutu þeirblað íknattspyrnusögu Ak-
ureyrarog gáfu þann tón sem bærinn
hefur eflaust beðið eftir um langt
skeið. Þrátt fyrir bága aðstöðu til
knattspyrnuiðkana á Akureyri, að
vetrarlagi ogá vorin, sýndu strákarnir
aðallter hægtefviljinn erfyrir hendi.
Samheldni, kraftur, leikgleði og sig-
urvilji voru aðalsmerki KA á Islands-
mótinu og liðið uppskar eins og það
sáði.
Sigur KA á íslandsmótinu var sigur
liðsheildarinnar en af öðrum ólöst-
uðum lék Þorvaldur Örlygsson,
landsliðsmaður, einstaklega vel í
sumar. Það kom því ekki á óvart að
enska stórliðið Nottinham Forest
skyldi bera víurnar í hann og er það
von allraað hann nái aðsýna sitt rétta
andlit í slagnum í Englandi.
Guðjón Þórðarson sýndi það og
sannaði í sumar að hann er þjálfari
framtíðarinnar og bar baráttugleði
KA-liðsins þess merki að hann héldi
um stjórnvölinn.
Anthony kyssir þann eftirsótta.
Stefán Gunnlaugsson, formaður
knattspyrnudeildar KA, hefur löng-
um verið umdeildur stjórnandi en fá-
ir menn eru meiri félagsmenn og
fórnfúsari en einmitt hann. Hann á
stóran þátt í sigri KA á íslandsmótinu
því án trausts formanns og styrkrar
stjórnar næst enginn árangur. Stefán
hefur haldið vel á spilinum fyrir KA
undanfarin ár og fáir hafa meiri
ástæðu til aðgleðjastyfirárangrinum
en Stefán.
Efað líkum lætum verðurframhald
á glæstum árangri KA á næstu árum
því það félag, sem hefur einu sinni
upplifað það að vinna til æðstu verð-
launa í knattspyrnunni á íslandi,
sættir sig við fátt annað. Sigur KA á
Islandsmótinu gaf öðrum félögum,
sem ekki hafa unnið íslandsmeistara-
titilinn, byr undir báða vængi því þau
gera sér það Ijóst að Valur, Fram og
IA eru ekki lengur eingöngu áskrif-
endur að bikarnum eftirsótta.
9