Íþróttablaðið - 01.10.1989, Síða 10
„LIÐ ÁRSINS“
1. DEILD
— Valið af þjálfurum 1
Eftirtaldir leikmenn
fengu stig:
Markverðir:
Ólafur Gottskálksson ÍA (5)
Birkir Kristinsson Fram (3)
Halldór Halldórsson FH (1)
Bjami Sigurðsson Val (1)
Varnarleikmenn:
Sævar Jónsson Val (5)
Erlingur Kristjánsson KA (5)
Luka Kostic Þór (4)
Ólafur Jóhannesson FH (3)
Viðar Þorkelsson Frarn (3)
Alexander Högnason ÍA (2)
Guðbjörn Tryggvason ÍA (2)
Einar Páll Tómasson Val (2)
Þorgrímur Þráinsson Val (1)
Jón Sveinsson Fram (1)
Steingrímur Birgisson KA (1)
Jóhann Lapas KR (1)
Gunnar Oddsson KR (1)
Birgir Skúlason FH (1)
Kristján Jónsson Fram (1)
Miðvallarleikmenn:
Þorvaldur Örlygsson KA (10)
Rúnar Kristinsson KR (9)
Pétur Ormslev Fram (8)
Ormarr Örlygsson KA (5)
Ólafur Kristjánsson FH (4)
Bjarni Jónsson KA (3)
Pétur Arnþórsson Fram (3)
Baldur Bragason Val (1)
Hilmar Sighvatsson Fylki (1)
Sigursteinn Gíslason ÍA (1)
Halldór Áskelsson Val (1)
Haraldur Ingólfsson ÍA (1)
Sóknarleikmenn:
Pétur Pétursson KR (7)
Anthony Karl Gregory KA (4)
Hörður Magnússon FH (4)
Guðmundur Steinsson Fram (3)
Baldur Bjarnason Fylki (1)
Kjartan Einarsson ÍBK (1)
deildar liðanna
íþróttablaðið stóð fyrir vali á „Liði
ársins" í 1. deild, annað árið í röð.
Það mæltist vel fyrir í fyrra að láta
þjálfara 1. deildar liðanna velja sterk-
asta byrjunarlið 1. deildarinnar að
þeirra mati og stefnt er að því að hafa
þetta árvissan lið í íþróttablaðinu í
framtíðinni.
Valið fór þannig fram að haft var
samband við þjálfara 1. deildar lið-
anna og þeir beðnir um að stilla upp
sterkasta byrjunarliði deildarinnarað
þeirra mati. Samanlagður stigafjöldi
leikmanna réð því svo hverjir voru í
„Liði ársins" í hverri stöðu.
Eftirtaldir tóku þátt í valinu á „Liði
ársins": Guðjón Þórðarson þjálfari
KA, Ásgeir Elíasson þjálfari Fram, lan
Ross þjálfari KR, Ólafur Jóhannesson
þjálfari FH, Sigurður Lárusson þjálf-
ari ÍA, Guðmundur Þorbjörnsson
þjálfari Vals, Benedikt Guðmunds-
son varaformaður knattspyrnudeild-
ar Þórs (sem hljóp í skarðið fyrir þjálf-
ara liðsins, Milian Duicic, sem var
farinn af landi brott), Marteinn Geirs-
son þjálfari Fylkis, Steinar Jóhannes-
son þjálfari ÍBK og Juri Sedov þjálfari
Víkings.
Samanlagður stigafjöldi var 110
stig og skiptust þau á milli níu liða í
deildinni, aðeins leikmenn Víkings
fóru varhluta af stigagjöfinni. Eftir
skiptingunni markmenn, varnarleik-
menn, miðvallarleikmenn ogsóknar-
leikmenn eru það miðvallarleik-
menn KA frá Akureyri sem hljóta flest
stig eða samtals 18 og eru það flest
stig hjá einu liði í þessari fjórskipt-
ingu á leikmönnum.
Alls hlutu 36 leikmenn atkvæði í
valinu en þar af voru flestir úr Fram,
eða samtals sjö. Þarnæst komu Valur
og KA með 6 leikmenn hvort félag,
FH og ÍA með 5 leikmenn hvort, KR
með4 leikmenn, Fylkir með 2, Þórog
ÍBK 1 mann hvort félag og Víkingur
Samantekt: Lúðvrk Örn Steinarsson
rak lestina með engann mann kjör-
inn.
Stigin skiptust eftirfarandi á milli
liða:
1. KA — 28 stig; 2. Fram — 22 stig;
3. KR - 18 stig; 4. FH - 13 stig; 5.-6.
ÍA — 11 stig; 5.-6. Valur — 11 stig; 7.
Þór — 4 stig; 8. Fylkir — 2 stig; 9.
ÍBK — 1 stig; 10. Víkingur — 0 stig.
Sá leikmaður, sem hlaut glæsileg-
ustu kosninguna, var KA-leikmaður-
inn Þorvaldur Örlygsson. Hann átti
án efa sitt besta sumar sem knatt-
spyrnumaður og að öðrum ólöstuð-
um lagði hann grunninn að sigri KA-
manna í Hörpudeildinni. Þorvaldur
hlaut 10 stig af 10 mögulegum og er
hann þriðji leikmaðurinn sem nær
þessum frábæra árangri í sambandi
við val á „Liði ársins" í 1. deild en í
fyrra fengu þeir Guðni Bergsson, nú-
verandi leikmaður Tottenham, og
Sævar Jónsson Val einniglO stigaflO
mögulegum.
Rúnar Kristinsson og Pétur Orm-
slev fengu einnig mjög góða stiga-
gjöf, en Rúnar hlaut 9 stigog Pétur 8.
Þrír leikmenn hafa verið valdir tví-
vegis í „Lið ársins" í 1. deild, en það
eru þeir Pétur Ormslev Fram, Sævar
Jónsson Val og Ormarr Örlygsson
KA/Fram.
Það er kannski fátt sem kemur á
óvart í þessu vali nema ef vera skyldi
að enginn leikmaður Víkings kemst á
blað, þó svo að í röðum félagsins
leiki nokkrir snjallir leikmenn, s.s.
Goran Micic, Atli Einarsson, Andri
Marteinsson og Guðmundur Hreið-
arsson. Einnig hlýtur að koma nokk-
uð á óvart að landsliðsmarkvörður
Islendinga, Bjarni Sigurðsson, hlaut
aðeins eitt stig og „Leikmaður ársins"
í 1. deild í fyrra, Sigurjón Kristjáns-
son, komst ekki á blað en það sýnir
að lukkudísirnar geta verið hverfular
í knattspyrnunni sem á öðrum svið-
um.
10