Íþróttablaðið - 01.10.1989, Side 15
Kaplakrikanum, sem FH-ingar reka,
en nýlega voru sett upp fljóðljós við
malarvöllinn. Haukar hafa reyndar
líka verið inni á svæðinu með æfing-
ar. Næsta stórverkefni á íþróttasvið-
inu er athafnasvæði Hauka. Þeir eru
búnir að skipuleggja nýtt svæði við
Ástjörn í Hafnarfirði sem er sunnan-
megin í bænum, ofan við Reykjanes-
brautina. Þar munu framkvæmdir
sennilega hefjast í vetur og efst á for-
gangslista Hauka er gervigrasvöllur.
Það er næsta stórverkefnið á þessu
sviði.
Ásíðustu árum hefur samstarf bæj-
arinsviðGolfklúbbinn Keili aukisten
þeir hafa sitt svæði á Hvaleyrinni og
unnið þar þrekvirki. Við höfum verið
í samvinnu við þá um stækkun ágolf-
vellinum, og átt í viðræðum við þá
um byggingu nýs klúbbhúss og
reikna ég með að þau mál verði út-
kljáð á næstu mánuðum. Sama er að
segja um hestamenn því við höfum
átt í viðræðum við þá um byggingu
mannvirkja sem er félagsaðstaða og
reiðhús. Bæjaryfirvöld hafa því verið
að reyna að stuðla að aukinni breidd
og skipulagðri uppbyggingu íþrótta-
málanna.
„Það er nauðsynlegt að fólk, sem hefur aldrei
stundað íþróttir, fái líkd að notfæra sér
aðstöðuna."
Það fyrirkomulag er við lýði varð-
andi uppbyggingu íþróttamannvirkja
í Hafnarfirði að íþróttafélögin greiða
20% hlutdeild en bærinn 80%. Þessi
samstarfssamningur gerir það að
verkum að það ertryggt að allir hags-
munaaðilar samþykkja forgangsröð
þeirra verkefna sem liggja fyrir.
íþróttafélögin leggja til ákveðið fjár-
magn og hafa hönd í bagga með í
hvað skal ráðist hverju sinni.
Bærinn styrkir íþróttafélögin einn-
ig með því að veita þeim afnot af
öllum íþróttahúsum bæjarins endur-
gjaldslaust. Síðan greiðum við FH,
Haukum og fimleikafélaginu Björk
ákveðið rekstrarfé til þess að halda
þessum mannvirkjum í rekstri. Sam-
fskipti bæjarfélagsins og íþróttahreyf-
ingarinnar hata gengið mjög vel
vegna gagnkvæms skilings hlutað-
eigandi aðila.
Öll þau íþróttamannvirki, sem
hafa verið byggð og eru í byggingu,
eru í raun bara skelin utan um starf-
semina. Fólk gerir sér kannski ekki
grein fyrir þeirri gríðarlegu félags-
starfsemi sem fer fram í bænum á
vegum íþróttafélaganna. Keppendur
eru bara toppurinn á ísjakanum en
þar fyrir utan er hinn stóri hópur sem
leggur nótt við dag til að halda starf-
seminni gangandi. Því miður er það
starf allt of oft vanþakkað.
Ég hef áhuga á því að reyna að
koma í veg fyrir að keppnisíþróttirnar
„gleypi" alla íþróttaaðstöðu því þær
geta nánast tekið endalaust við. í
samstarfi við íþróttafuIItrúa og for-
stöðumann nýja íþróttahússins, sem
verður Birgir Björnsson fyrrum hand-
boltakappi, hef ég áhuga á að hleypa
yngstu kynslóðinni inn í húsið fyrir
hádegi á laugardögum og geta krakk-
arnir leikið sér að vild. Það er nauð-
synlegt að fólk, sem hefur aldrei
stundað íþróttir áður fái líka að not-
færa sér aðstöðuna. Það er til fjöldi
fólks sem hefur aldrei stigið inn í
íþróttahús og er hreinlega hrætt við
þau. Þessu þarf að breyta og vonandi
koma foreldrar með krökkunum sín-
um í húsið."
— Styrkið þið einstaka afreks-
menn?
„Við erum með afreksmannasjóð
sem er sameiginlegur sjóður bæjar-
ins og íþróttabandalags Hafnarfjarð-
ar. Við höfum styrkt afreksmenn á
Ólympíuleika og einnig höfum við
úthlutað úr ákveðnum ferðasjóði
m.a. til yngri flokkanna."
— Hafnarfjörður hefur löngum
verið þekktur sem handboltabær en
áttu von á að einhver breyting verði
þar á?
„Hvað sem gerist í öðrum íþrótta-
greinum, þar sem árangur fer stöðugt
batnandi, verður Hafnarfjörður
áfram fyrst og fremst þekktur sem
handboltabær. Árangur f knattspyrn-
unni hefur verið mjög góður og
sömuleiðis ígolfinu. ífimleikum höf-
um við átt meistara og sömuleiðis í
frjálsíþróttum. Og ekki má gleyma
körfuboltanum. Breiddin er því mun
meiri en áður. Bæjarfélag með tæp-
lega 15.000 íbúum á að geta staðið
undir töluvert víðfeðmri íþróttastarf-
semi þar sem góður árangur á að
nást."
— Hvernigsérðu Hafnarfjörð fyrir
þér sem íþróttabæ í framtíðinni?
„Ég sé framtíð Hafnarfjarðar og
íþróttastarfseminnar þar á bæ bjarta
og glæsta. Eins og er er ekkert sem
bendir til annars en hægt sé að vera
glaðurog kátur með þá framtíðarsýn.
Yngri flokkar íþróttafélaganna í bæn-
um hafa náð ágætis árangri og þau
hafa haft þá skynsamlegu stefnu,
með örfáum undantekningum, að
byggja fyrst og síðast á leikmönnum
sem hafa alist upp í félögunum. Það
tel ég happasælast þegar til lengri
tíma er litið. Hingað munu aðkomu-
lið ekki sækja stóra sigra. Alténd sé
ég fyrir mér að Hafnarfjörður verður
hér eftir sem áður mikill og sterkur
íþróttabær."
15