Íþróttablaðið - 01.10.1989, Síða 22
„FÆRA ÞARF MIKLAR
Arnþór Ragnarsson landsliðsmaður í sundi
Þegar Arnþór Ragnarsson var
pínulítill púki og buslaði í sundlaug-
inni með mömmu sinni átti hún fullt
í fangi með að halda aftur af honum.
Enn verr gekk að fá hann upp úr
lauginni þegar almenningstfmanum
lauk. Sundfélag Hafnarfjarðar var
með reglulegar æfingar að loknum
almenningstímunum og smám sam-
an byrjaði Arnþór að æfa með félag-
inu. Frá 11 ára aldri hefur hann æft
reglulega og er í dag einn af fremstu
sundmönnum íslands.
Arnþór er 22 ára gamall og lauk
stúdentsprófi fyrir tveimur árum.
Vegna þess hve mikill tími fer í sund-
æfingar er hann atvinnulaus sem
stendur en það horfir til betri vegar.
Þrettán ára gamall sigraði Arnþór í
100 metra bringusundi á aldurs-
flokkamóti á Akureyri, hlaut tímann
1.19 mín. Síðan hefur hann sett fjölda
meta. í dag á hann þrjú íslandsmet: í
50 metra bringusundi, 31,50 sek. í
100 metra bringusundi, 1.07.16 mín.
og í 200 metra bringusundi, 2.25.84
mín. Bringusundið er hans aðalgrein
en hann hefur þó töluverðan áhuga á
að reyna fyrir sér í fjórsundi og skrið-
sundi.
Þeir, sem ætla sér að ná toppár-
angri í sundi, verða að æfa gífurlega
vel og líður ekki sá dagur að Arnþór
feráæfingu. Hann æfirað jafnaði 5-6
klukkutímaádagen aukþessstundar
hann lyftingar fyrri hluta keppnis-
tímabilsins. „Annars er það ekki
krafturinn sem skiptir máli í þeim
vegalengdum sem ég einbeiti mér
að. Þar er það fyrst og fremst liðleik-
inn ogtæknin sem skiptir máli."
Arnþór hefur keppt á mörgum
mótum á erlendri grundu og var
meðal keppenda á Ólympíuleikun-
um í Seoul. „Mérgekk þokkalega þar
en það mót var algjör frumraun og
mikil pressa á mér. Það var geysilega
mikil reynsla að keppa í Seoul sem
kemur að notum síðar. Annars gekk
mér betur á Ólympíuleikum smá-
þjóða sem haldnir voru á Kýpur sl.
sumar. Þar setti ég íslandsmet í grein-
unum þremur og var vel upplagður.
Á Kýpur átti ég möguleika á 1. eða 2.
sætinu í öllum greinunum og það
hvatti migtildáða. Þarvarlíkafremur
heitt og allar aðstæður virtust henta
mér vel."
— Hefurðu sett stefnuna á Ólymp-
íuleikana á Spáni 1992?
„Já, það er markmiðið. Síðan Frið-
rik Ólafsson tók við þjálfun sundfé-
lagsins hefur árangurinn verið góður
og er ég bjartsýnn á framhaldið. í
sumum tilfellum getur tekið langan
tíma að aðlagast nýjum þjálfara og
þeim breytingum sem hann getur
komið með en svo var ekki þegar
Friðrik tók við."
— Hvernig er aðstaða til sundæf-
inga f Hafnarfirði?
„Hún hefur alls ekki verið nógu
góð undanfarið. Það hefur verið
slæmt að geta ekki stundað morgun-
æfingar þegar okkur hentar. Við höf-
um þvf oft þurft að leita til Laugar-
dalslaugarinnar. Morgunhanarnir í
Hafnarfirði, sem sækja sundlaugina,
eru ekki ánægðir með að við skulum
þurfa á einni braut að halda affjórum
á morgnana. Þetta horfir þó til batn-
aðar þegar nýja laugin verður tekin í
notkun."
— Hvað þurfa íslenskir sundmenn
að gera til þess að komast í allra
fremstu röð sundmanna f heiminum?
„Þeir þurfaað færa miklarfórnirog
gefa sig í íþróttina nánast allan sólar-
hringinn. Að loknu stúdentsprófi
þurfa margir að gera upp hug sinn
varðandi frekari sundiðkun þvf mikl-
ar æfingar stangast á við vinnu eða
frekara nám. Mig langar til þess að
gefa mig allan í sundið fram yfir
22