Íþróttablaðið - 01.10.1989, Side 31
„Mér þykir það mjög merkilegt að
þjálfa yngri flokkana," segir Ingvar
Jónsson þjálfari.
ráði ekki ferðinni. Án þeirra getum
við einangrast og þá erum við komnir
á hálan ís. Að mínu mati erum við um
5-10 árum á eftir liðum í Evrópu hvað
getu varðar og um 40-50 árum á eftir
Bandaríkjamönnum. Þetta bil þurf-
um við að brúa og ég er bjartsýnn á
að það takist."
— Hvað er að þínu mati mest
ábótavant í íslenskum körfuknatt-
leik?
„Okkur vantar fyrst og fremst hæð-
ina. Ef einhverjir strákar nálgast tvo
metra halda þei r utan og nægi r þar að
nefna Pétur Guðmundsson og Flosa
Ólafsson. Þeir hafa skilað okkur litlu
hingað til en við verðum að reyna að
halda í þá sem eru stórir. Ég skil ævin-
týraþrá manna en ég skil ekki flenni-
fyrirsagnir dagþlaða þegar íslenskur
leikmaðursemur viðerlend lið, hvort
sem það er í handbolta, körfubolta
eða fótbolta. Það er slæmt fyrir okkur
að missa alla þessa stráka úr landi."
— Hefurðu horft upp á marga efni-
lega stráka gufa hreinlega upp og
verða aðengu þegar þeirfullorðnast?
„Það vill oft verða svo að þeir sem
fá mestaathygli á unglingsárunum ná
ekki að fylgja því eftir og hverfa í
fjöldann. Hitt er mun algengara að
strákar sem fá enga athygli á sínum
yngri árum blómstra síðar. Sem
dæmi um þetta er Kristinn Kristins-
son, máttarstólpinn í meistaraflokki
Haukatil margraára. Hann var iðinn,
áhugasamur og samviskusamur á
sínum yngri árum en alls ekki bestur.
Eljusemi hans skilaði sér síðar. Ég
held því að margir séu stjörnur á
fölskum forsendum á sínum yngri ár-
um."
— Eigum við marga efnilega körfu-
boltastráka?
„Það hefur sýnt sig þegar 15-17 ára
strákar leika við jafnaldra sína frá
bestu körfuboltaþjóðum Evrópu að
viðeigum menn framtíðarinnar. Hins
vegar er ekki nógu vel haldið utan
um þjálfun stráka á aldrinum 16-20
ára hér á landi. Við komum ekki í
kring nógu sterkum mótum fyrir
þennan aldurshóp þannig að hann
hverfur oft af sjónarsviðinu. Einnig
eru leikmenn teknir allt of ungir í
meistaraflokk. Það er löngu orðið
tímabært að sinna þessum aldri bet-
ur. Ég hef oft verið spurður að því af
hverju ég taki aldrei að mér þjálfun
meistaraflokks og margir halda því
fram að metnaðarleysi ráði þar
mestu. Staðreyndin er sú að mér þyk-
ir það mjög merkilegt að þjálfa yngri
flokkana. Það er mikið og merkilegt
starf og er alveg sama um hvaða
íþróttagrein er að ræða. Ég hef náð
góðum árangri með yngri flokkana
og menn meta árangur þeirra stöðugt
betur. Það kemur þó að því einn dag-
inn að ég taki að mér þjálfun einhvers
meistaraflokks."
Hitahlífarnar styðja við hné, ökkla, kálfa,
olnboga og úlnlið og fást hjá
jjjfjg— STOÐTÆKJASMÍÐIN
llllnSTDÐ
TRÖNUHRAUNI6 - HAFNARFIRÐI
DOMUS MEDICA - REYKJAVÍK
UPPLÝSINGAR íSÍMA 652885
31