Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 35

Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 35
Hlín Ámadóttir þjálfari ásamt Lindu Steinunni Pétursdóttur íslandsmeistaranum í fimleikum. skömmum fyrirvara hefur Linda Steinunn staðið sig frábærlega vel og lagt hart að sér til þess að standa sig sem best á mótinu." Eftir nokkra mánuði verður bylting hvað viðkemur æfingaaðstöðu fim- leikafólks ífimleikafélaginu Björk því verið er að byggja við íþróttahús Hauka og þar innandyra verður gryfja sem er lykillinn að framförum í greininni. „Það verður mikil bylting hjá okkur þegar við fáum íþróttahús algjörlega útaffyrirokkur. Áhöldin fá að standa óhreyfð í húsinu og með tilkomu gryfjunnar verður hægt að æfaatriði sem maður létsigekki einu sinni dreyma um áður. Álagið, bæði á nemendur og kennara, breytist vegna þess að í gryfjunni er mjúk dýna og þjálfarar þurfa því ekki leng- ur að sjá um móttöku þegar nemend- urnir æfa. Þetta verður eins og að hoppa úr eins hreyfils flugvél yfir í þotu. Með tilkomu gryfjunnar má reikna með miklum framförum fim- leikafólks og eflingu á fþróttinni yfir- höfuð. Við getum sérhæft okkur og gefið hverjum hópi betri tíma. í raun hefur aðstöðuleysið staðið íþróttinni fyrir þrifum á íslandi. Hér á landi hafa tveir Kínverjar verið við þjálfun og sögðu báðir að á Islandi væri mjög efnilegt og hæft fimleikafólk sem væri í raun auðvelt að þjálfa upp á skömmum tíma. Þeir sögðu að í sam- anburði við kínverska unglinga væru „Þetta verður eins og að hoppa úr eins hreyfils flugvél yfir í þotu," segir Hlín. íslensku krakkarnir sterkari og hægt að bjóða þeim mun meira en mörg- um öðrum." Hjá fimleikafélaginu Björk æfa 160 stelpur í 13 mismunandi flokk- um. Sjö þjálfarar halda um stjórnvöl- inn en Hlín segir að skortur sé á hæf- um þjálfurum í fimleikum. „Okkur vantar sérmenntaða þjálfara og er Jónas Tryggvason í raun sá eini sem er faglærður fimleikaþjálfari." — Eru einhverjar stúlkur áþekkar Lindu Steinunni í yngri flokkunum hjá fimleikafélaginu Björk? „Já, við höfum góðan efnivið að vinna úr. Auk fimleikaflokkanna er- um við með danshóp sem hefurorðið íslandsmeistari síðastliðin 2 ár. í hópnum eru sex stúlkur og þjálfari þeirra er Guðrún Björk Kristinsdóttir. Margar fimleikastúlkur hætta að æfa á unga aldri en við vonumst til að geta haldið lengur í þær eftir að dans- hópurinn kom til sögunnar. Æfing- arnar, sem hann gerir, eru ekki eins krefjandi. Annars hefur það sýnt sig að fimleikar eru mjög góður grunnur fyrir aðrar íþróttagreinar því margar stúlkur, sem hafa hætt hjáokkur, hafa skarað fram úr í öðrum íþróttagrein- um. Að lokum má geta þess að við leggjum mikla áherslu á að vera með útlærða kennara sem leiðbeinendur fyrir yngstu fimleikastúlkurnar sem eru ekki nema 5 og 6 ára. Staðreynd- in er nefnilega sú að uppeldis- og sálfræðilegi þátturinn er ekki síður mikilvæguren þjálfunin." 35

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.