Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 41
/
„Kristján Arason er allra besti íþróttamaður sem ég hef haft
undir minni stjórn. Það er alveg sama hvað hann tekur sér
fyrir hendur, hann er toppmaður í öllum greinum. Nægir þar
að nefna sund, leikfimi og allar boltagreinar. Kristján býr yfir
geysilega góðri tækni sem sundmaður og sama er upp á
teningnum í körfuboltanum. Hann hefði getað orðið afburða-
maður í þeirri grein því hann er örvhentur og það er mikill
kostur í körfubolta. Kristján var ávallt í byrjunarliðinu hjá mér
í unglingalandsliðinu í körfubolta. Sem persónuleiki er Kri-
stján draumur hvers þjálfara. Það lið, sem hann leikur hand-
knattleik með, verður topplið, sama hvar í heiminum það er.
Enda hefur það sýnt sig. Hann er mjög góður félagi í hópi. Það |í
fer ekki mikið fyrir honum en hann er gífurlega mikilvægur.
Kristján fær allra hæstu einkunn hjá mér."
Þessi meðmæli gefur Ingvar Jóns-
son, „faðir" körfuknattleiksins í
Hafnarfirði, Kristjáni Arasyni lands-
liðsmanni í handknattleik. lngvar
var leikfimikennari Kristjáns um
tíma og þjálfaði hann í körfubolta í
3. og 4. flokki Hauka auk þess sem
hann var þjálfari unglingalandsliðs-
ins sem Kristján lék með um tíma.
Það var sama hvar borið var niður
í kunningjahópi Kristjáns eða meðal
þeirra sem hafa haft afskipti af hon-
um í gegnum tíðina, svörin voru öll á
einn veg: „Kristján Arason er einstök
manngerð. Hann er framúrskarandi
góður drengur í alla staði og það
fylgir honum mikil gæfa."
KVIÐ
DIN“
41